Fréttablaðið - 08.12.2022, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 08.12.2022, Blaðsíða 42
Sjö hundruð erlendir gestir sækja kvik- myndaverðlaunahátíð- ina hingað til lands og samkvæmt skipuleggj- endum verða hundrað meðlimir heimspress- unnar viðstaddir við- burðinn. Freequent jakkar Kr. 12.990.- Str. S-XXL Bæjarlind 6 • S. 554 7030 Við erum á Facebook Evrópsku kvikmyndaverð- launin verða afhent um kom- andi helgi í Hörpu. Er þetta í fyrsta sinn sem verðlaunin verða afhent á Íslandi en það er gert í Berlín annað hvert ár og í evrópskri borg þess á milli. Að sögn skipuleggjenda er þetta í fyrsta sinn sem Íslendingar eru gestgjafar svo- kallaðs A-lista viðburðar. ninarichter@frettabladid.is Sjö hundruð erlendir gestir sækja landið heim auk heimspressunnar en skipuleggjendur búast við um 100 erlendum blaðamönnum á landinu í tengslum við viðburðinn. Meðal erlendra gesta eru sænski leikstjórinn Ruben Östlund, leik- stjóri hinnar geysivinsælu Triangle of Sadness sem hefur slegið í gegn hér á landi síðustu vikur, og er til- nefnd til verðlauna í nokkrum flokkum. Auk hans mæta þrír leik- arar úr leikhópnum og þar á meðal Zlato Buric sem hlýtur tilnefningu á verðlaununum sem besti leikarinn. Franska leikkonan Léa Seydoux úr Bond-myndinni No Time to Die og Inglorious Basterds eftir Quentin Tarantino er einnig væntanleg til landsins um helgina. Hún er til- nefnd sem besta leikkona ársins fyrir leik í aðalhlutverki, fyrir leik í myndinni One Fine Morning Ilmur Kristjánsdóttir leikkona og listamaðurinn Hugleikur Dagsson verða kynnar á sviðinu í Eldborg. Meðal annarra kynna má nefna danska leikarann Nikolaj Coster- Waldau sem landsmenn þekkja helst úr hlutverki Jamie Lannister úr HBO-þáttunum Game of Thrones. Sinfóníuhljómsveit Íslands, INNI music og GusGus sjá um tónlistar- flutning. Í fréttatilkynningu er Evrópsku kvikmyndaakademíunni svo lýst, að hún leitist við að styðja og tengja saman 4.400 meðlimi sína ásamt því að kynna verk þeirra. „Markmiðið er að miðla þekkingu og fræða áhorfendur á öllum aldri um evr- ópska kvikmyndagerð. Verðlaunin eru þau þekktustu og virtustu í evrópskri kvikmyndagerð og verða í beinni útsendingu í 24 löndum á laugardagskvöldið.“ n Nafntogaðir gestir og tilnefningar fyrir helgina Besta myndin n Alcarrás - Spánn og Ítalía n Close – Belgía, Frakkland og Holland n Corsage – Austurríki, Lúxemborg, Þýskaland og Frakkland n Holy Spider – Danmörk, Þýska- land, Svíþjóð og Frakkland n Triangle of Sadness – Svíþjóð, Þýskaland, Frakkland, Bretland Besta gamanmyndin n Cop Secret/Leynilögga – Ísland n The Divide/La Fracture – France n The Good Boss/El Buen Patrón – Spánn European discovery – Prix fipresci n 107 Mothers/Cenzorka – Sló- vakía, Tékkland og Úkraína n Love According to Dalva – Belgía og Frakkland n Other People/Inni Ludzie – Pól- land og Frakkland n Pamfir – Úkraína, Frakkland, Pólland, Þýskaland og Chile n Small Body/Piccolo Corpo – Ítalía, Frakkland, Slóvenía n Sonne – Austurríki Evrópsk heimildar- mynd n A house made of splinters – Danmörk, Svíþjóð, Finnland, Úkraína n Girl Gang – Sviss n Mariupolis 2 – Litáen, Frakkland og Þýskaland n The Balcony Movie/Film Bal- konowy – Pólland n The March on Rome /Marcia Su Roma – Ítalía Evrópskar teiknaðar myndir n Little Nicholas happy as can be – Frakkland, Lúxemborg n My Love affair with marriage – Lettland, Bandaríkin, Lúxem- borg n My Neighbor‘s Neighbors – Frakkland n No dogs or Italians allowed – Frakkland, Ítalía, Belgía, Sviss, Portúgal n Oink/Knor – Holland, Belgía Evrópskar stuttmyndir n Granny‘s sexual life – Slóvenía, Frakkland n Ice Merchants – Portúgal, Frakk- land n Love, dad – Tékkland, Slóvakía n Techno, mama – Litáen n Will my parents come to see me – Austurríki, Þýskaland, Sómalía Evrópskur leikstjóri ársins n Jerzy Skolimowski fyrir kvik- myndina Eo n Lukas Dhont fyrir kvikmyndina Close n Marie Kreutzer fyrir kvikmynd- ina Corsage n Ali Abbasi fyrir kvikmyndina Holy Spider n Alice Diop fyrir kvikmyndina Saint Omer n Ruben Östlund fyrir kvikmynd- ina Triangle of Sadness Evrópska leikkona ársins n Vicky Krieps fyrir Corsage n Zar Amir Ebrahimi fyrir kvik- myndina Holy Spider n Léa Seydoux fyrir kvikmyndina One Fine Morning n Penélope Cruz fyrir kvikmynd- ina Parallel Mothers n Meltem Kaptan fyrir kvikmynd- ina Rabiye kurnaz vs. George W. Bush Evrópski leikari ársins n Paul Mescal fyrir After Sun n Eden Dambrine fyrir Close n Elliott Crosset Hove fyrir Volaða land n Pierfrancesco favino fyrir Nostalgia n Zlatko Buric fyrir Triangle of Sadness Evrópska handrit ársins n Angelo Tjissens og Lukas Dhont fyrir Close n Arnau Vilarö og Carla Simón fyrir Alcarrás n Kenneth Branagh fyrir Belfast n Afshin Karman Bahrami og Ali Abbasi fyrir Holy Spider n Ruben Östlund fyrir Triangle of Sadness. Ofurstjarnan Penelope Cruz er tilnefnd í ár. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Verðlaunagripir frá Evrópsku kvikmyndaverðlaununum 2021. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY 26 Lífið 8. desember 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.