Fréttablaðið - 08.12.2022, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 08.12.2022, Blaðsíða 26
Styrkurinn veitti meðal annars tækifæri til að komast á afskekkta staði til þess að skilja og túlka nátt- úruna með aðferðum vísinda og myndlistar. Úkoma verkefnisins varð kveikjan að meist- araverkefni nemandans sem fólst einnig í sam- tvinnun lista og vísinda. Pavla Dagsson Waldhauserová Sea Saver Karlsson ehf. er eitt þeirra sprotafyrirtækja hverjum Nýsköpunarsjóður námsmanna og Tækniþró­ unarsjóður hefur gagnast einstaklega vel. Í samstarfi við Háskólann í Reykjavík vinnur fyrirtækið að því að þróa tækni sem mun gjörbylta björgunaraðgerðum í sjóslysum. „Ég las það fyrir nokkrum árum í einhverju riti hve slys á sjó eru tíð. Einnig eru björgunaraðgerðir þar oft árangurslitlar þar sem tíminn skiptir gríðarlegu máli. En rétt og snör viðbrögð eru frumskilyrði fyrir björgun lífs á sjó, bæði vegna hættu á drukknun og ofkólnunar í sjónum,“ segir Ágúst Karlsson, verkfræðingur, frumkvöðull og einn eigandi Sea Saver ehf. Í framhaldi fór Ágúst að huga að því hvort það mætti ef til vill draga úr dauðaslysum á sjó með nýjustu tækni. „Þá fóru hjólin að snúast og hugmyndin þróaðist í huga mér þar til ég smíðaði módel í bílskúrn- um. Ég sýndi það frumkvöðli sem fannst það efnilegt. Næsta skref var að fara með módelið í Háskól- ann í Reykjavík þar sem það fékk góðar undirtektir,“ segir Ágúst. Gjöfult samstarf Þá var næsta skref að kynna hug- myndina fyrir Siglingaráði sem veitti milligöngu um styrk til verk- efnisins á vegum Samgöngustofu. „Í framhaldi var leitað til Rannís og Tækniþróunarsjóðs sem varð til þess að verkefnið hlaut styrk úr Nýsköpunarsjóði námsmanna til að geta greitt fjórum nemendum í HR laun fyrir sumarvinnu við áframhald á þróun verkefnisins. Auk þess fékk Sea Saver úthlutun úr styrktarsjóðnum Fræ, einn- ig á vegum Tækniþróunarsjóðs, og kom sá styrkur sér einstak- lega vel til kaupa á íhlutum fyrir búnaðinn, sem er mjög dýr. Áður hafði Háskólinn í Reykjavík haldið sérstakt þriggja vikna námskeið sem sneri eingöngu að þróun á ákveðnum þáttum búnaðarins. Nýverið var svo undirrituð sam- starfsyfirlýsing sem tryggir að HR mun koma að þessu samstarfi áfram og í þessari viku er að ljúka öðru þriggja vikna námskeiði. Þá má geta þess að Landsbjörg – Björg- unarskóli sjómanna, hefur einnig sýnt verkefninu mikinn áhuga.“ Sem fyrr segir er Sea Saver Karlsson í góðu samstarfi við HR. „Skólinn leggur til afburðanem- endur í rafmagnstæknifræði, orku- og véltæknifræði auk viðskipta- fræðinema sem koma að gerð viðskiptamódelsins undir leiðsögn sviðsstjóra skólans. Ég sem „höfuð- strumpur“ að verkefninu ásamt dóttur minni Ástu Karen fram- kvæmdastjóra, eigum þessu fólki mikið að þakka og hefur samvinn- an verið mjög skemmtileg og lær- dómsrík. Að ógleymdum stuðningi og styrkjum Rannís við verkefnið, sem verið hefur þungamiðjan í framkvæmdinni fram til þessa, en fjárhagsleg staða mála er nánast alfarið byggð á stuðningi Rannís. Það er okkar reynsla að samvinna á milli frumkvöðla, atvinnulífs og háskóla sé farsælasta leiðin til að ná árangri í nýsköpun og verð- mætasköpun.“ Íslenskt hugverk bjargar mannslífum Búnaðurinn nefnist Sea Saver og er straumlínulaga fjarstýrt yfirborðs- far, eins konar hraðskeyti. Skeytið er knúið áfram og stýrt af fjórum drifmótorum. Lengd þess er um 120 cm og hámarksganghraði á sléttu er um 14 km/klst. „Búnaðurinn er nýnæmi þar sem um er að ræða virkt björgunartæki sem ætlað er að „finna – sækja – skila“. Skipstjóri eða stýrimaður sendir skeytið frá borði og við tekur sjálfstýring sem vinnur í gegnum gervihnött. Svokallaður sónar og LIDAR er á meðal þess hátæknibúnaðar sem gerir þetta mögulegt. Enn fremur er hægt að kemba ákveðið svæði með því að gefa upp hnit sem afmarkar leitarsvæðið. Þetta á helst við í myrkri, við þröngar aðstæður eða í úfnum sjó. Um aðra tækniþætti er ekki hægt að ræða að svo stöddu opinberlega vegna sjónarmiða um einkaleyfi. Tæknin gerir það mögulegt að bregðast skjótt við þegar menn falla fyrir borð. Því fyrr sem björgunaraðgerðir geta hafist, því betra, því hver sekúnda í sjónum skiptir máli. Með Sea Saver verður einnig hægt að bjarga mönnum úr sjó við erfiðari aðstæður en áður, oft án þess að það þurfi að senda aðra í sjóinn á eftir þeim. Ef maður er meðvitundarlaus eða mikið slasaður þyrfti þó að senda mann með. Sjósetning og fyrstu skipanir eru gerðar með stöðluðu handtæki sem líkist drónastýringu en er einfaldara og með færri skipanir,“ segir Ágúst. Í grundvallaratriðum þarf ekki mikla þekkingu við notkun Sea Saver, en við erfiðari aðstæður og í myrkri, þegar skeytinu er skipað að leita á ákveðnu svæði eða í þrengslum, þarf stjórnandi að vera talsvert kunnugur stjórntækinu. „Meðferð tækisins gæti þá verið þáttur í slysavörnum sjómanna. Búnaðurinn gæti komið björg- unarsveitum til nota bæði við björgun og ekki síður við æfingar þeirra sjálfra eða sem kennslu- gagn. Skeytið gæti að auki verið til taks á baðströndum. Sea Saver er þó fyrst og fremst ætlað að vera til staðar á bátum og skipum.“ Næsta skref hjá Sea Saver Karlsson ehf. er áframhaldandi þróun á skeytinu sjálfu og hönnun á sjálfvirkum sjósetningarbúnaði. „Þetta á að verða alvöru björg- unartæki sem hægt er að treysta. Tækið verður því að uppfylla allar tilheyrandi öryggisreglur og fá samþykki frá öryggis- og úttektar- stofnunum,“ segir Ágúst. Framtíðarsýn „Framtíðarsýn Sea Saver Karlsson ehf. er að hanna, þróa og framleiða hátæknibjörgunarbúnað sem nýt- ist við erfiðar aðstæður við björg- un fólks úr sjávarháska. Markmið með framleiðslu búnaðarins er að efla íslenska hátæknivöru og hugvit, til að skapa verðmæti á mörkuðum innan lands og utan. Þá eru ótalin verðmæti lífsbjargar sem ekki verða metin til fjár,“ segir Ágúst að lokum. n Hver sekúnda í sjónum skiptir höfuðmáli Ágústi vr umhugað um árangursleysi sjóbjörgunaraðgerða og þróaði búnað sem myndi gera gagn við erfiðar aðstæður. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Pavla Dagsson Waldhauser­ ová er vísindamaður við Landbúnaðarháskólann og er forseti Rykrannsóknar­ félags Íslands en hún hafði umsjón með verkefni á vegum skólans sem hlaut styrk úr Nýsköpunarsjóði námsmanna. Verkefnið bar titilinn: Mót mynd- listar og rykrannsókna á Íslandi, þar sem skoðað var hvernig list og rykrannsóknir tengjast og aðferðum myndlistar beitt til þess að rannsaka ryk. Nemandinn var María Rún Þrándardóttir. Um hvað snerist verkefni nemans? „Verkefnið fólst í því að kanna snertifleti myndlistar og rykrann- sókna með aðferðum myndlistar, sér í lagi ljóðlistar og gjörninga. Ryk hefur umfangsmikil áhrif á fjölmörg lífkerfi, til dæmis afköst til sjávar og sveita en einnig lofts- lagið og þar með breytingar á því,“ segir Pavla. „Ég hafði mikinn áhuga á þessu fyrirbæri og þess vegna vildi ég nýta bakgrunn minn í myndlist til að rannsaka ryk frá annarri átt. Markmiðið var frá upphafi að festa upplifun þess að vera í rykstormi á filmu og fanga hljóð hans. Ég fór nokkrar ferðir upp á hálendið yfir sumarið, að Hagavatni, Sand- kluftavatni og að lokum í tíu nátta ferð á Dyngjusand sem er ein helsta uppspretta ryks á norður- hveli jarðar. Þar sameinuðu 25 vís- indamenn frá átta löndum krafta sína til rykrannsókna sem nefnd var inDust-rannsóknin. Verkefnið gekk vel og var meðal annars í forvali til Nýsköpunarverðlauna Forseta Íslands 2022,“ segir Pavla en sótt var um styrkinn í febrúar í fyrra og honum var úthlutað í skrefum sumarið 2021. Hvaða tækifæri fól styrkurinn í sér? „Styrkurinn veitti meðal annars tækifæri til að komast á afskekkta staði til þess að skilja og túlka nátt- úruna með aðferðum vísinda og myndlistar. Útkoma verkefnisins varð kveikjan að meistaraverk- efni nemandans sem fólst einnig í samtvinnun lista og vísinda. Styrkurinn leiddi af sér fjölmörg tækifæri til að kynna verkefnið á ráðstefnum þar sem vísindi mæta listum, svo sem Arctic Festival (ísl. Hátíð norðurhvels jarðar), í Iðnó í september 2022 og High Latitude Dust Workshop (ísl. Vinnustofa um ryk á norðurhveli), í Keldnaholti í febrúar 2022. Fyrir Maríu var mikilvægt að styrkur frá Nýsköp- unarsjóði námsmanna gefur hugmyndaríkum ungmennum drifkraftinn til að þora að taka af skarið,“ segir Pavla. Hefur styrkurinn leitt af sér ný verkefni? „Verkefnið reyndist nytsamlegt í meistaranámi Maríu, sem ætlar að útskrifast núna um jólin í þver- faglegu námi sem ber heitið MSc. í umhverfisbreytingum á norður- slóðum, skammstafað EnCHiL. Meistaraverkefnið fjallaði um mót myndlistar minnar og ýmissa rannsókna á norðurslóðum og því má segja að Rannísverkefnið hafi verið nokkurs konar inngangur að því,“ segir Pavla og bætir við: „Styrkurinn var nauðsynlegur til þess að verkefnið yrði að veru- leika.“ n Styrkurinn var nauðsynlegur  Pavla Dagsson-Waldhauserová er vísindamaður við Landbúnaðarháskólann. MYND/DAVID BRUNER Með Sea Saver verður einnig hægt að bjarga mönnum úr sjó við erfiðari aðstæður en áður, oft án þess að það þurfi að senda aðra í sjóinn á eftir þeim. Ágúst Karlsson 6 8. desember 2022 FIMMTUDAGURNSN 30 ÁR A

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.