Fréttablaðið - 08.12.2022, Blaðsíða 13
Þorsteinn
Pálsson
n Af Kögunarhóli
„Því miður er líklegt að vestræn
stjórnvöld þegi þunnu hljóði þegar
mótmæli verða barin niður af þeirri
grimmd sem talin er nauðsynleg.
Efnahagslegir hagsmunir sem eru
undir ráða of miklu.“
Þetta er tilvitnun í grein sem Óli
Björn Kárason, formaður þingflokks
Sjálfstæðismanna, skrifaði í Morgun-
blaðið í síðustu viku um hugdirfsku
kínverskra mótmælenda og líkleg
viðbrögð vestrænna ríkisstjórna.
Fælni
Hert alræðisstjórn í Kína er vaxandi
ögrun við það alþjóðakerfi og þær
alþjóðastofnanir, sem í áratugi hafa
tryggt lýðræði og viðskiptafrelsi.
Það er ekki aðeins stríð Pútíns,
sem breytt hefur heimsmyndinni.
Kína leikur þar líka stórt hlutverk.
Og popúlistar í Ameríku og Evrópu
setja strik í reikninginn.
Forsætisráðherra stýrir þjóðar-
öryggisráði. Ný skýrsla þess sýnir
skort á fræðilegri heildargreiningu
á afstöðu Íslands út á við í ljósi allra
þessara miklu breytinga á undan-
förnum árum.
Tillaga forsætisráðherra að
breyttu orðalagi þjóðaröryggis-
stefnu, sem nú liggur fyrir Alþingi,
endurspeglar fælni við að taka af
festu á nýjum aðstæðum.
Stjórnvöld horfa svo í gaupnir sér
varðandi aðvaranir bandalagsþjóða
um öryggisbresti í kínverskum
tæknibúnaði.
Kínastimpillinn
Björn Bjarnason, fyrrum ráðherra,
hefur unnið vandaðar skýrslur og
tillögur fyrir ríkisstjórnina og Nor-
ræna ráðherraráðið. Hann skrifar
á heimasíðu sína að sú skoðun sé
undarlega lífseig víða að kínversk
stjórnvöld hafi búið sérstaklega vel
um sig á Íslandi og kínversk áhrif hér
séu óeðlilega mikil.
Ráðgjöf hans nú er þessi: „Fullt
tilefni er fyrir íslensk stjórnvöld að
grípa til róttækra ráða til að þvo af
sér Kínastimpilinn – til dæmis segja
upp fríverslunarsamningnum eða
loka stöðinni á Kárhóli.“
Alþjóðleg einkastofnun
Í ársbyrjun 2021 skipaði forsætis-
ráðherra nefnd til að undirbúa stór-
byggingu og skipulagsskrá fyrir nýja
alþjóðlega einkastofnun, The Grims-
son Centre.
Nú er stofnunin orðin að veruleika
án lagastoðar. Ríkisstjórnin skipar
þrjá stjórnarmenn, háskólarnir tvo
og einkastofnunin Arctic Circle tvo.
Fyrsti áfangi nýrrar byggingar á að
vera álíka og Harpan. Einkastofnun-
in er skattfrjáls. Ekki verður þó séð
að heimild sé fyrir því í íslenskum
lögum. Dótturstofnanir verða starf-
ræktar vítt og breitt um heiminn.
Í stefnuyfirlýsingu stjórnar, sem
birt var í september, segir að Ísland
hafi boðið aðilum frá Evrópu, Amer-
íku, Asíu og Miðausturlöndum til
þess að treysta undirstöður stofn-
unarinnar. Hverjir eru þeir?
Kínversk utanríkisstefna
Frá sjónarmiði þjóðaröryggis er
athyglisvert að fulltrúar ríkis-
stjórnarinnar og háskólanna í stjórn
The Grimsson Centre segja í stefnu-
yfirlýsingunni að sú skipan alþjóða-
stofnana, sem varð til eftir seinni
heimsstyrjöld, sé úrelt.
Þetta er samskonar orðalag og kín-
versk stjórnvöld byggja utanríkispól-
Þjóðaröryggi og Kína
itík sína á og flestar bandalagsþjóðir
okkar vara nú sterklega við.
Ísland hefur fram til þessa tryggt
fullveldi sitt, varnir og alþjóðleg við-
skipti í því stofnanakerfi, sem lýð-
ræðisþjóðirnar byggðu upp í kjölfar
seinni heimsstyrjaldar.
Stjórn stofnunarinnar segir að
þróun alþjóðamála hafi um skeið
byggst á starfsemi í Silicon Valley,
Wall Street og Genf, og Norðurslóð,
sem er heiti nýbyggingarinnar, verði
slíkur staður.
Misvísandi skilaboð um sjálfan
grundvöll utanríkisstefnu Íslands frá
stjórnvöldum og fulltrúum þeirra í
þessari nýju alþjóðlegu einkastofn-
un veikja verulega trúverðugleika
landsins.
Ríkisendurskoðun er hvergi ætlað
að hafa eftirlit með svo risastórri
stofnun, sem stýrt er af fulltrúum
ríkisins. Og engar kröfur eru gerðar
um gegnsæi.
Ekkert eftirlit er með hagsmuna-
tengslum við erlend stjórnvöld og
fyrirtæki í alræðisríkjum eins og
Kína.
Iðnaðarráðherra Arabísku fursta-
dæmanna og rússneskur vísinda-
og stjórnmálamaður sitja í stjórn
alþjóðlegrar einkastofnunar, sem til-
nefnir tvo menn í stjórn The Grims-
son Centre, sem aftur er órjúfanlegur
þáttur í Norðurslóðastefnu lýðveld-
isins Íslands samkvæmt stefnuyfir-
lýsingunni.
Fanga ekki athygli Stjórnarráðsins
Ísland þarf að eiga góð samskipti við
stórveldi þótt þau lúti alræðisstjórn,
þar á meðal Kína.
Hitt er allt annars eðlis þegar
fulltrúar stjórnvalda í alþjóðlegri
einkastofnun enduróma þá stefnu
Kínverja að veikja þær alþjóða-
stofnanir, sem í áratugi hafa varið
grundvallargildi vestrænnar menn-
ingar og stjórnskipulags.
Þessi dæmi sýna að áhyggjur
þingf lokksformanns Sjálfstæðis-
manna af veikleika vestrænna
stjórnvalda gagnvart Kína fanga
jafnvel ekki athygli þeirra sem sitja
á rökstólum í Stjórnarráðshúsinu
við Lækjartorg. n
FIMMTUDAGUR 8. desember 2022 Skoðun 13FRÉTTABLAÐIÐ