Fréttablaðið - 08.12.2022, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 08.12.2022, Blaðsíða 10
Fyrir einhverja skrítna tilviljun er ég orðinn bankastjóri þarna rétt liðlega þrítugur. Maður fær allt að því kjána- hroll yfir því í dag. Einhverjir kunna að vera ósam- mála öllu sem ég segi en það er líka bara allt í lagi. Lárus Welding, fyrrverandi forstjóri Glitnis banka, segist líta á það sem hluta af mikil­ vægum lærdómi að segja frá sinni upplifun af aðdraganda og eftirmálum bankahruns­ ins. Hann hefur ekki veitt við­ töl eða tjáð sig um atburðina í fjórtán ár en segir nú loks sögu sína. Í bókinni Upp gjör banka manns sem kom út í vikunni rekur Lár us Weld ing, fyrrverandi for stjóri Glitn­ is, atburðina fram að falli bankanna og efnahagshruni í október árið 2008. Hann segir tilurð bókarinnar frekar einfalda. Honum hafi fund­ ist kominn tími á að segja frá sinni upplifun eftir að hafa haldið sig frá öllum viðtölum og umræðu í öll þessi ár. „Svo er að vissu leyti mjög hollt að gera upp hluti sem hafa mikil og djúpstæð áhrif á mann. Þessir sautján mánuðir sem ég var í Glitni munu líklega aldrei fara frá mér. Ég hef verið spurður út í þetta árum saman en svo kemur bara sá tíma­ punktur að sagan er orðin of löng og flókin til að útskýra hana í stuttu máli. Þess vegna er þetta orðið að bók og ég vona bara að hún verði til einhvers gagns,“ segir Lárus. En af hverju taldi hann ekki tíma- bært að gera það fyrr? „Þetta voru hrikalegir atburðir sem kölluðu fram sterkar tilfinn­ ingar. En andrúmsloftið hefur róast og þetta er spegill og saga sem hefur ekki verið sögð að mínu viti.“ Lár us var ráðinn for stjóri Glitn is vorið 2007, þá aðeins þrítug ur. Hann gegndi stöðunni í sautján mánuði fram að bankahruni. Við tók bar­ átta í dómsölum þar sem Lárus var meðal annars með réttarstöðu sak­ bornings í rúman áratug. Að sögn Lárusar er enginn vafi á því að eitt og annað fór úrskeiðis í tengslum við hrunið. Hann segir þó aðalatriðið vera, frá öllum hliðum, að hægt sé að læra af atburðum sem þessum. „Ég hef alltaf sýnt því skilning að það þyrfti að fara fram uppgjör sem fæli í sér víðtækar rannsóknir en það voru kannski vonbrigði að út úr þeim rannsóknum kom svona langt og óskilvirkt ferli í dómskerf­ inu, sem kannski skilaði að mínu viti ekki alveg rétta lærdómnum eða niðurstöðunum. En eins og ég segi tókst mér að vera nokkuð æðrulaus í því ferli öllu þó að það hafi tekið mjög langan tíma. Fólk lendir í alls konar erfiðleikum í lífinu. Þetta voru strembnir tímar fyrir alla og það voru margir í miklu erfiðari stöðu en ég. Þetta er bara eitt af þessum verkefnum sem maður þarf að læra af,“ segir Lárus og bætir við: „Á endanum skipti mestu að standa upp einhvers vísari. Ef maður nýtir mótlætið rétt þá getur maður lært heilmikið. Sérstaklega um sjálfan sig.“ Hafandi sagt það segist Lárus aldrei hafa upplifað annað en að fólk sem starfaði í íslensku bönk­ unum hafi verið að vinna af heilum hug. „Ég er fullkomlega sammála því að margt hefði mátt gera betur. Við vorum ekki nógu varkár og fórum of geyst. En ég held samt að sú skýring sé ekki alls kostar rétt að í íslensku bankakerfi hafi slæmt fólk verið að verki.“ Að mati Lárusar er þetta eitt af þeim sjónarhornum sem hann vill draga fram. Allur þessi lærdómur en líka þessi mannlegi þáttur. „Ég fór til að mynda sjálfur og sótti mér frekari menntun í kjöl­ farið á þessum atburðum. Til að reyna að skilja hvernig í ósköpunum þetta gerðist. Til að átta mig á þessu sjálfur.“ Í dag segist hann líta svo á að hann hafi verið ótrúlega lánsamur. Eftir standi að hann hafi verið umkringdur góðu fólki í gegnum allt ferlið. „Þetta er auðvitað ótrúleg saga. Fyrir einhverja skrítna tilviljun er ég orðinn bankastjóri þarna rétt liðlega þrítugur. Maður fær allt að því kjánahroll yfir því í dag. Og af því að við erum að tala um lærdóm: þó að ég hafi fundið mig mjög vel í að vera bankamaður þá lærði ég það alla vega af þessu að mig langar ekki að verða bankastjóri. Ég þarf þá ekki að eltast við það meir.“ Í bók inni rek ur Lárus meðal ann­ ars tíma sinn sem framkvæmda­ stjóri Landsbankans í London á árunum fyrir hrun, en líka allt sem á eftir fylgdi. Rannsókn, yfirheyrslur og dómsmál. „Ég reyndi bara að nálgast eftir­ málin eins faglega og ég gat. Svara öllum spurningum og hjálpa til við að gera atburðina upp. Auðvitað var maður ekkert alltaf sáttur sérstak­ lega þegar það var sífellt verið að gera manni upp einhvern slæman ásetning í störfum sínum og vissu­ lega hefur þetta haft mikil áhrif á mitt líf en þetta er bara mín saga. Ein af mörgum.“ Lárus segir hana aldrei geta verið annað en sanna og rétta eins og hann upplifði hana. „Það mun vafalaust koma mörg­ um á óvart hversu hreinskilinn ég er í minni frásögn. Kannski mun það líka koma einhverjum á óvart að aðdragandinn var mögulega ekki eins glannalegur og margir hafa haldið. Mín upplifun af þessum tíma er umfram allt að hafa kynnst vinnusömu fólki sem var að reyna að gera sitt besta og standa sig vel. Ég varð aldrei var við einhvern annarlegan ásetning. Eins undar­ lega og það kann að hljóma í eyrum einhverra.“ Að sama skapi segist Lárus skilja viðbrögðin sem blossuðu upp þegar kerfið féll í heild sinni með afdrifa­ ríkum afleiðingum. „Ég skil það bara fullkomlega. Ég öfunda ekki heldur þá sem voru í sporum rannsakenda, fjármála­ eftirlits, saksóknara eða dóm­ stóla. Þeirra verkefni var gríðarlega vandasamt með öllum þeim þrýst­ ingi og kröfum sem voru í samfélag­ inu. Ekki síður en okkar sem vorum að reyna að bjarga bönkunum. En við hrikalega atburði, þá vill fólk fá skýringar. Það er eðlilegt,“ segir Lárus. Aðspurður hvort hann hafi ekki óttast að stíga aftur fram í sviðs­ ljósið með útgáfu bókarinnar segist Lárus vissulega hafa velt því fyrir sér. „En á endanum taldi ég rétt að varpa þessu ljósi á atburðina. Auð­ vitað er frekar langt um liðið, heil fjórtán ár. En svo er þetta bara lítil bók og sjónarhorn eins manns. Ein­ hverjir kunna að vera ósammála öllu sem ég segi en það er líka bara allt í lagi. Ég hef fullan skilning á því,“ segir Lárus Welding. n Mikilvægt að standa upp einhvers vísari Lárus Welding segist gera sér fulla grein fyrir því að það voru margir í miklu erfiðari stöðu en hann í kjölfar hrunsins. MYND/AÐSEND Guðmundur Gunnarsson ggunnars @frettabladid.is Lárus segist óvenju hreinskilinn í nýútkominni bók sinni. MYND/AÐSEND 10 Fréttir 8. desember 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMARKAÐURINN 8. desember 2022 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.