Fréttablaðið - 08.12.2022, Síða 12
n Halldór
n Frá degi til dags
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jón Þórisson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is, AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is
FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is, Lovísa Arnardóttir lovisa@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri.
Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101
Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is. VEFSTJÓRI: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Guðmundur Gunnarsson ggunnars@frettabladid.is, HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is
MENNING: Þorvaldur S. Helgason tsh@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Það er á
sársauka-
fullum
tímum sem
þessum
sem stjórn-
málahreyf-
ingum er
hættast við
að gleyma
stefnu-
skrám
sínum í
skiptum
fyrir snyrti-
leg excel-
skjöl.
Sigmundur Ernir
Rúnarsson
ser
@frettabladid.is
gar@frettabladid.is
Mannleg mistök
Nokkuð mörg dæmi dúkka nú
upp um að haft hafi verið rangt
við á nýlegum tilboðsdögum.
Vörur hafi verið auglýstar á
afslætti sem kynntur var sem
hlutfall af háu verði sem áður
hafi verið – en var bara samt
aldrei. Neytendur eru hins vegar
nokkuð vel á verði þegar kemur
að verði og deila með sér upp-
lýsingum þar sem sýnt er fram
á að verslanir hafi gefið upp of
hátt fyrra verð til að láta afslætt-
ina líta betur út. Þegar eigendur
eru beðnir um skýringar eru
þær nánast alltaf þær sömu: ein-
hverjum öðrum en þeim sjálfum
urðu á mannleg mistök.
Hinir vitleysingarnir
Það er náttúrlega fátt mann-
legra en að benda á einhvern
annan en sjálfan sig þegar
babb er komið í bátinn. Það er
alkunna. Þetta vita stjórnmála-
menn og embættismenn best
allra eins og reyndar gildir um
nær alla skapaða hluti undir
sólinni og jafnvel lengra áleiðis
út í vetrarbrautina. Þetta hefur
ekki síst sannast í yfirstandandi
tragíkómedíu um sölu á hluta
af eign ríkisins í Íslandsbanka.
Allir sem að málinu koma,
bæði í aðdraganda og kjöl-
far sölunnar, virðast öldungis
gáttaðir á því hversu allir hinir
málsaðilarnir séu fákunnandi –
og hreinlega vitleysingar ef satt
skuli segja. n
Orri Páll
Jóhannesson
þingmaður VG
Í fréttum hefur komið fram að núverandi eigendur
óvirkrar verksmiðju United Silicon hf. í Helguvík
hafa sagt upp raforkusamningi við Landsvirkjun.
Samningi sem var ef til vill verðmætasta eignin í
þrotabúi þessa „ævintýris“.
Fáir tóku eftir því að þarna losnuðu á að giska 35
MW sem var búið að ráðstafa í stóriðju og geta nú
nýst til þess að mæta orkuskiptunum. Fleiri slíkir
samningar munu losna í náinni framtíð. Það er því
rakið að mínu mati að taka nú þá umræðu af alvöru
að beina þegar framleiddri orku í farveg orkuskipt-
anna án þess að brjóta nýtt land með tilheyrandi
áhrifum á stórbrotna íslenska náttúru og án þess að
heilu samfélögin logi í óeiningu vegna fyrirhugaðra
virkjunarframkvæmda.
Orkuskiptin sem slík eru ef til vill ekki umdeild, en
við deilum um leiðirnar að þeim. Í skýrslu sem kom út
í mars síðastliðnum um stöðu og áskoranir í orkumál-
um með vísan til markmiða og áherslna stjórnvalda í
loftslagsmálum eru dregnar upp sex sviðsmyndir.
Framan af umræðunni fór mest fyrir þeirri sviðs-
mynd sem áætlar þörf um meira en tvöföldun á
raforkuframleiðslu hérlendis.
Forgangsröðun í þágu náttúru og orkuskipta
Síðan þá hafa ýmsir glímt við að draga upp raun-
hæfari myndir, svo sem með orkuskiptahermi Land-
verndar, vefnum orkuskipti.is og nú síðast orku-
skiptaspárlíkani Orkustofnunar.
Þegar umræðan um skýrsluna hófst gagnrýndi ég
það hvernig einblínt var á þá sviðsmynd sem gengi
freklegast fram. Mér fannst þá og finnst enn þurfa
að taka af alvöru með í reikninginn að við getum
forgangsraðað þegar framleiddri orku með öðrum
hætti, til að mynda með því að nýta orku í stóriðju-
samningum sem losna í þágu orkuskiptanna.
Nú þegar kemur á daginn að 35 MW hafa losnað
vegna endaloka áforma um kísilmálmverksmiðju í
Helguvík er full ástæða til að staldra við, bæði í þágu
íslenskrar náttúru og í þágu orkuskipta. Það getur
farið saman. Slíkar aðstæður geta kallað á nýtt mat.
Nú er lag! n
Nú er lag
Pólitíkin er oft og tíðum á sjálfstýringu.
Hún er rekin áfram af embættis-
mannakerfinu, sem, ef út í það er farið,
tekur lýðræðislega kjörnum fulltrúum
oft fram í völdum og áhrifum. Enda
koma pólitíkusar og fara. En embættið situr
áfram. Og lifir alla pólitík af.
En þegar mest þarf á því að halda – hinu
raunverulega lýðræði, fulltrúunum sem kosnir
eru til áhrifa og þess mikilvæga starfa að móta
samfélagið, þá reynir auðvitað á pólitíkina. Og
þá einmitt afhjúpar hún sig sjálf.
En aldrei meira og skýrar en á niðurskurðar-
tímum. Þegar skórinn kreppir. Þá opinbera
stjórnmálin sig með skýrustum hætti.
Meirihlutaflokkarnir í Reykjavík standa nú
frammi fyrir þessari mikilvægu áköllun. Og
eftir atvikum minnihlutaflokkarnir líka. Því
það getur enginn skorast undan lýðræðislegri
ábyrgð þegar þrengir að og borgarsjóður þarf að
sníða sér stakk eftir vexti.
Og núna kemur sumsé á daginn úr hverju
flokkarnir eru gerðir. Hverjum þeir vilja hlífa og
hvar þeir vilja beita niðurskurðarhnífnum.
Það er á sársaukafullum tímum sem þessum
sem stjórnmálahreyfingum er hættast við að
gleyma stefnuskrám sínum í skiptum fyrir
snyrtileg excel-skjöl. Og þetta er einmitt líka
tíminn sem svo auðvelt er að gleyma með öllu
kosningaloforðunum og digurbarkalegu tæki-
færisræðunum á opinberum vettvangi.
En núna fellur einmitt það augljósa undir
skærustu birtuna. Næsta litlaus hversdagspóli-
tíkin tekur við af upphöfnum tyllidagaboð-
skapnum. Og það þarf að gera það sem engan
stjórnmálamann langar til að gera nema ef til
vill í lengstu lög, að bregðast einhverjum þeim
ótalmörgu sem telja sig eiga rétt á opinberum
fjárframlögum, kippa jafnvel grundvellinum
undan starfsemi þeirra og afkomu.
Meirihlutinn í Reykjavík – og minnihlutinn
sömuleiðis – er nú í kjörstöðu til að sýna hver
hans raunverulega pólitík er á ögurstundu.
Hvorir tveggja munu nú á næstu dögum og
vikum sýna borgarbúum hvað þeir standa fyrir í
raun og sann.
Og stóra spurningin er ágeng. Mun nauðsyn-
legustu – og á stundum lífsnauðsynlegustu –
þjónustunni verða þyrmt, þar á meðal við börn
og ungmenni, svo og það fólk sem stendur höll-
ustum fæti, eða ekki? Og má vera að þessu verði
snúið á hvolf, að embættismannakerfinu sjálfu
verði einkum hlíft á kostnað framlínunnar,
á tímum þegar borgarstarfsmönnum hefur
fjölgað langt umfram borgarbúa?
Við erum að tala um pólitík. n
Pólitísk afhjúpun
MANNAMÁL
FIMMTUDAGA KL. 19.00
OG AFTUR KL. 21.00
SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 8. desember 2022 FIMMTUDAGUR