Fréttablaðið - 08.12.2022, Qupperneq 18
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur
Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn:
Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Bjarni Haukur segir að þetta sé
metnaðarfull bók fyrir börn og
hann hafi notið stuðnings og
hvatningar frá sonum sínum sem
eru 8 og 18 ára gamlir. „Bókin
fjallar um kraftinn sem býr í
börnum en þau eru stundum rög
við að nota. Halda að þau geti ekki
gert hluti sem þau síðan geta vel
gert,“ útskýrir hann. „Þannig að
bókin ýtir svolítið undir að treysta
á eigin getu og gera krakkana sjálf-
stæðari,“ bætir hann við.
Sat við skriftir í Covid
Það var í Covid sem Bjarni Haukur
fékk þá hugmynd að setjast niður
og skrifa barnabók þegar hann var
á milli verkefna. Stór sýning sem
hann var að setja upp í Osló stopp-
aði þegar heimsfaraldur skall á en
Bjarni hefur búið í Stokkhólmi í
mörg ár og starfað víða á Norður-
löndunum. Flestir minnast hans
kannski best fyrir Hellisbúann og
Pabbann sem hann samdi og lék
á sviði. Verkin urðu afar vinsæl
hér á landi. „Það eru nú komin 25
ár síðan Hellisbúinn var og 15 ár
síðan Pabbinn var,“ segir Bjarni
Haukur en hann hefur áður gefið
út bókina Pabbinn, sem byggð
var á leikverkinu og var gefin út af
hinni virtu bókaútgáfu Random
House árið 2014.
„Ég hef lengi verið áhugasamur
um Íslendingasögurnar og lesið
Snorra Sturluson, Heimskringlu
og fleiri slíkar bækur. Mig langaði
að vekja forvitni barna á þessum
sögum og gera þær aðgengilegri
fyrir þau. Þá datt mér í hug að
sniðugt væri að búa til barnabók
sem hefði innblástur frá gömlu,
íslensku bókmenntunum og nor-
ræna goðaheiminum. Ég vildi að
þetta væri bæði fyndin bók og
skemmtileg en samt með miklum
krafti og hasar. Ég hef áður unnið
með Pétri Stefánssyni teiknara
sem er mjög flinkur og nefndi
þetta verkefni við hann. Pétur fór
á flug og kom með þessar frábæru
myndir sem gefa bókinni mikið líf.
Það eru yfir 300 myndir í bókinni,
litríkar og líflegar,“ segir Bjarni
Haukur.
Sannkölluð Þruma
„Ég hef lesið bókina fyrir yngri
soninn sem skemmti sér konung-
lega yfir lestrinum en ég hef alltaf
lesið mikið fyrir þá báða. Með því
að lesa fyrir þá hef ég uppgötvað
hvað það er sem virkar vel fyrir
krakka. Ég hef umgengist fjölda
barna í gegnum syni mína og svo
hef ég þjálfað yngri flokka í fót-
bolta og tel mig því vita hvernig
best er að ná til þeirra,“ segir hann.
Aðalsöguhetja bókarinnar er
Þrúður þruma, níu ára brettastelpa
sem þeysist um Nýborg á hjóla-
brettinu sínu. Þegar pabbi hennar,
Þór Óðinsson, hverfur skyndilega
uppgötvar Þrúður yfirnáttúrulega
krafta sem hún er fær um að leysa
úr læðingi. Með hjálp besta
vinar síns,
klifurgarps-
ins Asks og
drapplituðu
dúndrunnar
(ömmu Frigg),
leggur hún í
mjög tvísýnan
leiðangur
og upp hefst
æsispennandi
ævintýri. Mun
Loki, við-
skiptafélagi
„Mér hefur gengið vel að fanga athygli þeirra krakka sem hafa hlustað á söguna,“ segir Bjarni Haukur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Þetta eru hverfin í Nýborg sem eru sögusvið bókarinnar Þrúður þruma – hvirfilbylurinn frá Nýborg.
Það eru yfir 300 teikningar í bókinni eftir Pétur Stefánsson.
Þórs og forstjóri Þitt veður ehf. ná
sínu fram og breyta Nýborg um
ókomna tíð?
Þrúður leggur allt í sölurnar
til þess að komast að sannleik-
anum, finna föður sinn og bjarga
Nýborg. „Það gerast mikil ævintýri
í bókinni og hún er æsispennandi,“
segir höfundurinn. „Bókin fjallar
um kraftinn sem býr í börnum og
hvernig það er að finna út úr því
hvernig manneskja maður er eða
vill vera. Hún fjallar um hvernig
maður verður að góðri manneskju
og sterkri. Hvað er rétt eða rangt í
lífinu og hvað er hið góða eða hið
illa?“ segir hann enn fremur.
Fangar athygli barnanna
Þegar Bjarni Haukur er spurður
hvort það verði framhald af Þrúði
eða hvort hún eigi eftir að birtast
í kvikmynd segir hann ekkert
ákveðið í þeim efnum. „Við sjáum
bara til ef viðtökur verða góðar,“
segir hann. „Ég er núna að byrja
að kynna bókina fyrir krökkum
og unglingum en hún er ætluð
þeim sem eru byrjaðir að lesa og
alveg upp í 14 ára. Hins vegar er
ekkert að því að lesa hana fyrir
yngri börn,“ segir
hann. „Mér hefur
gengið vel að fanga
athygli þeirra
krakka sem hafa
hlustað á söguna.
Þau eru opin og f ljót
að meðtaka enda
alltaf eitthvað að ger-
ast á hverri blaðsíðu
með skemmtilegum
myndum. Bókin er
þykk og ég hef tekið
eftir því að krakk-
arnir eru stoltir af að
lesa svona margar
blaðsíður. Ég hafði
mjög gaman af því
að skrifa þessa bók
og held hún sé eitt
það skemmtilegasta
sem ég hef gert,“ segir
Bjarni Haukur. n
Það
ger-
ast mikil
ævintýri í
bókinni og
hún er
æsispenn-
andi.
Það er mikill
hasar og nóg
að ævintýrum í
Þrúði þrumu.
2 kynningarblað A L LT 8. desember 2022 FIMMTUDAGUR