Fréttablaðið - 08.12.2022, Page 28
Stelpur diffra er námskeið
þar sem lögð er áhersla á að
rækta áhuga stelpna og stálpa
sem hafa gaman af stærð-
fræði og vilja læra umfram
það sem námið í framhalds-
skólum býður upp á.
Hugmyndina að Stelpur diffra fékk
Nanna Kristjánsdóttir, BS-nemi
í stærðfræði við Háskóla Íslands,
þegar hún var að ljúka námi í
Menntaskólanum við Hamrahlíð
fyrir tveimur árum. Hana hafði
langað til að fara í ýmiss konar
stærðfræðinámsbúðir sem haldnar
eru erlendis en þátttaka í þeim er
oftar en ekki mjög kostnaðarsöm,
auk þess sem hún vildi hjálpa til
við að jafna kynjahlutföllin innan
greinarinnar hér heima.
„Markmið búðanna er að auka
þátttöku stúlkna og stálpa í heimi
stærðfræðinnar en þar er töluverð-
ur kynjahalli sem sést til dæmis á
þátttöku í stærðfræðikeppnum og
hvernig hlutfall kvenna og kvára
lækkar mikið á hærri menntunar-
stigum í greininni.“
Nanna vann lokaverkefni í MH
þar sem hún skoðaði hvernig mætti
setja upp slíkar námsbúðir hér á
landi og notaði hún meðal annars
Stelpur rokka sem fyrirmynd.
Þannig vildi hún búa til námsbúðir
þar sem stelpur og stálp fengju
tækifæri til að sökkva sér í heim
stærðfræðinnar samhliða sjálf-
styrkingu og í raun að verða smá
pönkarar innan stærðfræðinnar,“
segir Anna Helga Jónsdóttir, dósent
í tölfræði og leiðbeinandi í verk-
efninu, en það hefur tvisvar hlotið
styrk úr Nýsköpunarsjóði náms-
manna, árið 2021 og 2022.
Styrkir hjálpuðu til
„Það að fá styrkina gerði okkur í
raun kleift að bjóða upp á náms-
búðirnar en gríðarleg vinna liggur
að baki þeim. Með því að fá styrk-
ina gat Nanna unnið í tvö sumur
við það að skipuleggja og svo að
bjóða upp á námsbúðirnar og erum
við óendanlega þakklátar fyrir að
hafa fengið þessa styrki. Styrkirnir
hafa einnig gert okkur kleift að
halda þátttökugjaldi búðanna sem
lægstu fyrir þau sem hafa áhuga á
að taka þátt,“ segir Anna Helga.
Vilja auka þátttöku stelpna og
stálpa í heimi stærðfræðinnar
Anna Helga og Nanna hafa unnið að sumarbúðunum í stærðfræði. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Með því að fá
styrkina gat Nanna
unnið í tvö sumur við
það að skipuleggja og svo
að bjóða upp á náms-
búðirnar og erum við
óendanlega þakklátar
fyrir að hafa fengið þessa
styrki.
Anna Helga Jónsdóttir
Nemendur í sumarbúðum í stærðfræði glíma við dæmi.
„Ólíkt flestum námsgreinum á
háskólastigi eru karlar í meirihluta
í svokölluðum STEM-greinum
(vísindi, tækni, verkfræði og
stærðfræði). Rannsóknir sýna að
ástæðan er ekki sú að önnur kyn
hafi minni áhuga á þessum grein-
um eða minni getu til að stunda
þær heldur séu það ytri þættir, svo
sem skortur á fyrirmyndum, sem
ráða för og því viljum við breyta,“
bætir hún við og segir að áhugi á
verkefninu sé mjög mikill.
„Það er greinilegt að það hefur
verið vöntun á búðum sem
þessum. Sem dæmi má nefna að
allar konurnar sem hafa komið
að kennslu og skipulagningu
búðanna hafa nefnt að þær vildu
óska að sambærilegar námsbúðir
hefðu verið til þegar þær voru
í námi. Að auki hafa ýmis félög
og stofnanir sýnt áhuga á verk-
efninu og lagt okkur lið, svo sem
Verkfræðingafélagið, mennta- og
barnamálaráðuneytið, Verkfræði-
og náttúruvísindasvið Háskóla
Íslands, Raunvísindastofnun,
Íslenska stærðfræðafélagið og
Vísindafélag Íslands.“
Öðruvísi kennslufræði
Þegar Nanna er spurð hverjir séu
helstu áhersluþættir, svarar hún:
„Á námskeiðinu er meðal annars
fjallað um þær greinar stærðfræð-
innar sem falla undir Stærðfræði-
keppni framhaldsskólanna og
spreyta þátttakendur sig á gömlum
dæmum þaðan, svo fáum við
heimsóknir, kynningar og kennslu
frá stærðfræðimenntuðum konum
sem starfa víða í samfélaginu.
Kennslufræðin er ólík því sem
venjan er oft í stærðfræðitímum en
til dæmis leysa þau þrautir, vinna
í hóp, efnið er sett í sögulegt og
samfélagslegt samhengi og þau eru
hvött til þess að ræða saman um
efnið og gera mistök. Á lokadegi
búðanna hafa þátttakendur unnið
stærri verkefni þar sem þau nota
það sem þau hafa lært yfir vikuna
sem verkfæri til að skoða heiminn
í kringum okkur. Haldin hafa verið
tvö námskeið og stefnt er að því að
halda þeim áfram. Nemendur eru í
framhaldsskóla og gert er ráð fyrir
að þau hafi klárað fyrsta árið á því
námsstigi.“
Eins og áður var nefnt miðla
búðirnar stærðfræði á hátt sem er
líkari því hvernig stærðfræðingar
hafa unnið í gegnum aldirnar. Þátt-
takendur hafa bæði talað um að fá
forskot og víðari yfirsýn í skólan-
um eftir búðirnar og meira sjálfs-
traust en á námskeiðunum takast
þau á við ýmiss konar áskoranir og
verkefni sem þau höfðu ekki endi-
lega sjálf trú á að þau gætu leyst í
fyrstu. Nemendur hafa einnig lýst
ánægju með að læra efnið stærð-
fræðinnar vegna en ekki bara til að
muna allt utan að fyrir próf.
„Við höfum passað upp á að
taka tíma í búðunum frá til þess
að fjalla um það stærðfræðinám
sem er í boði í háskólunum en
fá líka yfir vikuna fyrirmyndir
sem starfa í tengdum eða jafnvel
ótengdum greinum, sem nota samt
stærðfræði á einn hátt eða annan.
Það virðist hafa hjálpað mörgum
þátttakendum að móta hugmyndir
um eigin framtíð betur,“ útskýrir
Nanna.
Ýmsar stærðfræðitengdar
sumarnámsbúðir eru til í öðrum
löndum en hafa ekki verið haldnar
hér á landi með sambærilegu sniði
áður. „Þar sem búðirnar draga
innblástur sinn meðal annars frá
Stelpur rokka, auk þess að vera
hannaðar með íslenskar aðstæður
í huga, má með sanni segja að ekki
sé hægt að finna sömu námsbúðir
neins staðar annars staðar,“ segir
Anna Helga en auk hennar hefur
Bjarnheiður Kristinsdóttir leið-
beint Nönnu í verkefninu. „Við
erum afskaplega þakklátar þeim
mörgu konum sem hafa komið og
kennt á námskeiðinu.“ n
Auglýst eftir umsóknum
í Nýsköpunarsjóð námsmanna
Umsóknarfrestur er til kl. 15:00
6. febrúar 2023
8 8. desember 2022 FIMMTUDAGURNSN 30 ÁR A