Fréttablaðið - 08.12.2022, Page 30
Tískupallarnir í haust
ljómuðu af innblásinni tísku
fyrir vor og sumar 2023 og
hönnuðir léku sér með liti,
form, áferð og gegnsæi af
einskærri list.
Fjólublár mun koma aftur sem
einn aðalliturinn vorið og sumarið
2023 að mati WGSN Insider og
vekur upp tilfinningar tengdar
heilsuhreysti og veruleikaflótta.
Nú er fólk að jafna sig eftir óvissu-
tíma af völdum faraldurs og mun
leita í heilsubætandi venjur fyrir
líkama, geð og sál. Liturinn Digital
Lavender, sem er eins konar ljós,
pastel, lillablár litatónn, mun veita
stöðugleika, jafnvægi og skýra
tengingu við heilsuna.
Samkvæmt Elle Magazine er
tískan samt sem áður einstaklega
fjölbreytt og litrík, þrátt fyrir að
drappaður fái samt sem áður að
vera áberandi eins og endranær.
Hversdagsklæðnaður verður í fínni
kantinum, pallíettur á sterum
verða áberandi, sama er með
gegnsæ efni og allt þar á milli. Það
má því búast við fjölbreyttri tísku
næsta vor.
Tíska og list
Vogue lýsti tískusýningunum á
tískuvikunum í upphafi hausts
sem hátíðlegum, innblásnum og
uppfullum af áhugaverðum línum
þar sem tíska og list fóru ein-
staklega vel saman. Áhrif tíunda
áratugarins hafa farið dvínandi
upp á síðkastið en ef miðað er við
tískupallana í haust mun hann
ná nýjum hæðum í vor og sumar
2023. n
Liturinn mun veita
stöðugleika, jafn-
vægi og skýra tengingu
við heilsuna.
Jóhanna María
Einarsdóttir
jme
@frettabladid.is
Fjólubláir tískudraumar
Áhrifavaldurinn Kiki Yang Zhang var með puttann á fjólubláa púlsinum fyrir
utan tískusýningu Rochas á tískuvikunni í París í lok september.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Victoria Beck-
ham sló tvær
tískuflugur
í einu höggi
með hönnun
sinni á þessum
gegnsæja, ljós-
fjólubláa kjól
sem sýndur var
á tískuvikunni í
París í septem-
ber fyrir vor og
sumar 2023.
Tískusýning Sinéaad O’Dwyer vakti athygli í haust þar
sem módel voru fjölbreyttari en venja er. Hér má líta
gegnsæjan kjól úr línunni frá tískuvikunni í London.
Þessi fjólubláa
yfirhöfn er úr
smiðju Simorra
sem sýndi
nýjustu vor- og
sumarlínuna
fyrir 2023 á
tískuvikunni
í Barcelona
í október
síðast-
liðnum.
6 kynningarblað A L LT 8. desember 2022 FIMMTUDAGUR