Fréttablaðið - 08.12.2022, Blaðsíða 34
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Pauline Karlsdóttir
til heimilis að Droplaugarstöðum,
áður Ljósheimum 9,
lést á Landspítalanum við Hringbraut,
11. nóvember, í faðmi fjölskyldunnar.
Útförin fór fram í kyrrþey að hennar ósk.
Sigrún Linda Kvaran Jóhann Magnús Jóhannsson
Ævar Ragnar Kvaran Þóra Guðmundsdóttir
Silja Kvaran
Örlygur Kvaran Helga Margrét Hreinsdóttir
og aðrir afkomendur
Ástkæri faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Guðmundur Kristinn
Guðmundsson
arkitekt,
lést á Landspítalanum 13. nóvember sl.
Jarðarförin fer fram í Dómkirkjunni í
Reykjavík föstudaginn 9. desember kl. 12.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á góðgerðafélög
að eigin vali.
Guðmundur Kristinn Guðmundsson
Guðrún Jóhanna Guðmundsdóttir
Dögg Guðmundsdóttir
og fjölskyldur
Útför ástkærs eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
Högna Þórðarsonar
áður til heimilis á Ísafirði,
fer fram frá Grafarvogskirkju
fimmtudaginn 8. desember kl. 13.
Blóm og kransar eru afþakkaðir, en þeim
sem vilja minnast hans er bent á líknarstofnanir.
Streymi frá athöfninni er hægt að nálgast á
www.mbl.is/andlat, eða á youtu.be/Xl6QHnbQnwE
Kristrún Guðmundsdóttir
Hörður Högnason Una Þóra Magnúsdóttir
Þórður Högnason Jolanta Högnason
Kristín Högnadóttir Sigurður A. Þóroddsson
Guðmundur Kr. Högnason Judy-Ann Norton
barnabörn og barnabarnabörn
Okkar ástkæri
Richard Guðmundur
Jónasson
framreiðslumaður,
Sléttuvegi 17, Reykjavík,
lést umvafinn sínum nánustu
1. desember sl. Útför hans fer fram frá
Árbæjarkirkju mánudaginn 12. desember kl. 13.
Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð en þeim sem
vilja minnast hans er bent á líknarsjóð Oddfellowstúku
Þorfinns karlsefnis nr. 10 0513-14-404101, kt. 530793-2069.
Guðrún Egilsdóttir
Hjördís Kristinsdóttir Ingvi Kristinn Skjaldarson
Ingibjörg Kristinsdóttir Þórarinn Halldór Kristinsson
Úrsúla Guðmundsson
barnabörn og barnabarnabörn
Elsku móðir okkar, amma
og langamma,
Pála H. Jónsdóttir
Miðbraut 5, Seltjarnarnesi,
lést á Landakoti 26. nóvember.
Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey.
Við þökkum ættingjum og vinum
auðsýnda samúð og vinarhug. Sérstakar þakkir færum
við Heru heimaþjónustu og starfsfólki L5 á Landakoti.
Minningargreinar eru afþakkaðar að ósk hinnar látnu.
Nives Elena Waltersdóttir Ferrua
Íris Waltersdóttir Ferrua
Sonja Irena Waltersdóttir Ferrua
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Agnar Þór Aðalsteinsson
lést á hjúkrunarheimilinu Sólvangi
þann 24. nóvember síðastliðinn.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Sérstakar þakkir fær starfsfólkið á Sólvangi
fyrir ómetanlega umönnun og kærleik.
Kristín Jóhanna Agnarsdóttir Birgir Reynisson
Ólafía Aðalheiður Agnarsdóttir
Steinþór Agnarsson Anna Þórðardóttir
Ásgeir Þór Agnarsson Bryndís Guðmundsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginkona, móðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
Sæunn Ragnheiður
Sveinsdóttir
Kópavogsbraut 1b,
lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð
í Kópavogi 4. desember. Útför hennar fer fram
miðvikudaginn 14. desember kl. 13.00 frá Kópavogskirkju.
Starfsfólki Hjúkrunarheimilisins Sunnuhlíðar eru færðar
alúðarþakkir fyrir einstaka umhyggju og virðingu við
umönnun hennar. Þeim sem vilja minnast hennar er bent
á Sunnuhlíðarsamtökin.
Ásgeir Jóhannesson
Berglind Ásgeirsdóttir
Lárus Sigurður Ásgeirsson Sigurveig Þóra Sigurðardóttir
Þór Heiðar Ásgeirsson Sigrún Þorgeirsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Það er mikið um nýjungar í jóla-
dagskrá Árbæjarsafnsins í ár.
arnartomas@frettabladid.is
Hátíðarandinn er allsráðandi í Árbæjar-
safni þessa dagana í aðdraganda jóla-
dagskrárinnar sunnudagana 11. og 18.
desember. Viðburðirnir eru almennt vel
sóttir, en í ár varð safnið þeirrar gæfu
aðnjótandi að hljóta styrk frá Betra hverfi
í Reykjavík og verður dagskráin í ár því
enn veglegri auk þess sem aðgangur
verður ókeypis.
„Við erum að reyna að skapa notalega
stemningu frá ysi og þys jólastússins,“
segir Helga Maureen Gylfadóttir, deildar-
stjóri á safninu. „Starfsfólkið er klætt upp
í búninga og einhverjir jólasveinar skrall-
andi út um allt.“
Á dagskránni í ár verður boðið upp á
fasta liði og verður að vanda hægt að fara
í tímaferðalag og upplifa jólin í húsunum
frá mismunandi tímum, allt frá 1846 til
1959. Þá verður hægt smakka góðgæti á
borð við möndlur, hangikjöt og laufa-
brauð auk þess sem björgunarsveitin
mætir á svæðið til að selja jólatré og eitt
húsið hýsir jólamarkað fyrir líknarfélög.
Þá verður einnig nóg af nýjungum, þar
á meðal aðkoma jólafólanna – jólasvein-
anna sem náðu ekki inn hjá Jóhannesi úr
Kötlum.
„Það er búið að setja upp umboðs-
skrifstofu jólasveinanna, fyrir Giljagaur,
Stekkjarstaur og þá félaga,“ segir Helga
Maureen. „En hinum megin verða jóla-
fólin á borð við Flotnös, Reykjasvelg,
Kleinu sníki og fleiri. Þau eru að reyna að
ná sér í smá bisness en hafa aðeins verið
að misskilja þetta.“
Jólafólin fá þannig kærkomna kynn-
ingu á safninu í ár og bendir Helga
Maureen á að mögulega verði hægt að
bóka einhver þeirra með afslætti til að
skemmta á jólaböllum í ár.
Pólsk jól
Gestum stendur einnig til boða að kynna
sér dæmigerð pólsk jól.
„Við höfum verið í samtali við pólska
samfélagið á Íslandi um það hvað sé líkt
og ólíkt með jólahaldi landanna tveggja,“
segir Helga Maureen. „Við eigum nefni-
lega feikimargt sameiginlegt.“
Líkt og á Íslandi gengur jólahátíðin í
garð í Póllandi á aðfangadag en þar er sú
hefð að lagt sé á borð fyrir óvæntan gest.
„Hjá sumum er það líka gert fyrir ein-
hvern sem er fjarstaddur eða látinn en
getur þá verið með í borðhaldinu í anda,“
útskýrir Helga Maureen. „Svo er hefð
fyrir því í Póllandi að það sé borðaður
fiskur á aðfangadagskvöldi því föstunni
lýkur ekki fyrr en á miðnætti.“
Þá hafa margir tólf rétta máltíð sem
er ýmist táknrænt fyrir postulana tólf
eða mánuðina. Séu þeir allir borðaðir þá
verður nýja árið gott.
„Stundum eru hlutir eins og sósan og
gosið talið sem heill réttur,“ svarar Helga
Maureen spurð út í það hvort tólf réttir sé
ekki heldur vel í lagt. „Það er bara gaman
að eiga þetta samtal því auðvitað búum
við öll saman hérna.“
Að lokum hvetur Helga Maureen gesti
til að bóka miða á dagskrána gjaldfrjálst
á tix.is til þess að flæðið verði sem best.
Hægt er að kynna sér dagskrána í heild á
heimasíðu safnsins. n
Jólafól og pólsk jól á Árbæjarsafni
Heimafólkið
í Árbæ er
duglegt að
skera út
laufabrauð.
MYND/ROMAN
GERASYMENKO
Jólasveinarnir verða á sínum stað.
1953 Dwight D. Eisenho-
wer, forseti Banda-
ríkjanna, heldur
annálaða ræðu um
ágæti kjarnork-
unnar.
1966 Gríska ferjan Herak-
lion sekkur í Eyja-
haf. Um 200 manns
láta lífið.
1971 Undirritað er sam-
komulag um stjórn-
málasamband á
milli Íslands og
Kína. Ári síðar opna
Kínverjar sendiráð í
Reykjavík.
1974 Grískir kjósendur
hafna því að taka
aftur upp konungs-
veldi.
1987 Stofnuð eru sam-
tökin Ný dögun um
sorg og sorgarvið-
brögð.
1991 Leiðtogar Rúss-
lands, Hvíta-Rúss-
lands og Úkraínu
stofna Samveldi
sjálfstæðra ríkja.
1991 Rúmenar sam-
þykkja nýja
stjórnarskrá í þjóð-
aratkvæðagreiðslu.
2006 Leikjatölvan Wii
kemur út í Evrópu.
Merkisatburðir
TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 8. desember 2022 FIMMTUDAGUR