Fréttablaðið - 09.12.2022, Page 8

Fréttablaðið - 09.12.2022, Page 8
Almennir sundlaugar- gestir hafa verið mjög kurteisir og þolin- móðir. Guðmundur Pálsson, formaður sunddeildar UMFS Stjórn Reiknistofu bankanna hf., kt. 470111-0540, gerir kunnugt að með heimild í 2. mgr. 27. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög hefur hún tekið ákvörðun um að hlutabréf félagsins verði tekin til rafrænnar skráningar í kerfi Nasdaq verðbréfamiðstöðvar. Stefnt er að því að skráningin taki gildi mánudaginn 27. mars 2023 kl. 08:00. Frá þeim tíma eru hin áþreifanlegu hlutabréf í félaginu ógild í samræmi við heimild í 1. mgr. 14. gr. laga nr. 7/2020 um verðbréfamiðstöðvar, uppgjör og rafræna eignarskráningu fjármálagerninga. Nánar tiltekið verða öll hlutabréf Reiknistofu bankanna hf. tekin til rafrænnar skráningar, en þau eru öll í einum hlutaflokki og gefin út á nafn hluthafa. Útgáfudags er getið á hverju hlutabréfi. Hér með er skorað á alla eigendur hlutabréfa í Reiknistofu bankanna hf. sem telja nokkurn vafa leika á því að eignarhald þeirra sé réttilega fært í hlutaskrá félagsins, að staðreyna skráninguna með fyrirspurn til Reiknistofu bankanna hf. á netfangið hluthafar@rb.is. Komi í ljós við slíka könnun að vafi leiki á eignarhaldi ber eigendum að færa sönnur á það gagnvart félaginu innan þriggja mánaða frá síðari birtingu innköllunar þessarar í Lögbirtingablaði. Enn fremur er skorað á alla þá sem eiga takmörkuð réttindi til hluta- bréfa í Reiknistofu bankanna hf., s.s. veðréttindi, að koma þeim á framfæri við fullgilda reikningsstofnun, sbr. 1. mgr. 6. gr. laga nr. 7/2020 um verðbréfamiðstöðvar, uppgjör og rafræna eignarskráningu fjármálagerninga, innan þriggja mánaða frá síðari birtingu innköllunar þessarar í Lögbirtingablaði. Gæta skal þess að reikningsstofnunin hafi gert aðildarsamning við Nasdaq verðbréfamiðstöð. Stjórn Reiknistofu bankanna hf. hefur ákveðið að eftir að innköllunarfrestur er liðinn og rafræn skráning á hlutabréfum félagsins hefur átt sér stað í kerfi Nasdaq verðbréfamiðstöðvar, skuli arðgreiðslur til hluthafa einungis fara fram í gegnum kerfi Nasdaq verðbréfamiðstöðvar, sbr. heimild í 4. tl. 54. gr. reglugerðar nr. 397/2000 um rafræna eignarskráningu verðbréfa í verðbréfamiðstöð, með síðari breytingum. Hluthafar skulu fela reikningsstofnun sem hefur gert aðildarsamning við Nasdaq verðbréfamiðstöð umsjón með eignarhlut sínum í félaginu og stofna vörslureikning. Reykjavík, 9. desember 2022. Stjórn Reiknistofu bankanna hf. Tilkynning til hluthafa kristinnhaukur@frettabladid.is SUÐURLAND Sundhöllin á Selfossi er löngu sprungin vegna mikillar íbúafjölgunar í sveitarfélaginu Árborg á undanförnum árum og áratugum. Sunddeild Ungmenna- félags Selfoss sendi bæjarráði nýlega áskorun um að f lýta þyrfti uppbyggingu nýrrar sundlaugar. „Tafir á uppbyggingu geta valdið vandræðum með að koma börnum í skólasund,“ segir Guðmundur Pálsson, formaður sunddeildar- innar, sem telur nú um 60 iðkendur. Í Sundhöllinni er 25 metra úti- laug, 18 metra innilaug og barna- laug. Árið 2015 var byggt við Sundhöllina og þá bætt við inni- barnalaug. En það þarf að gera meira til að mæta fólksfjölguninni. Frá alda- mótum hefur íbúafjöldi Árborgar nærri tvöfaldast, það er farið úr 5.691 í 10.834. Börnum á grunn- skólaaldri hefur fjölgað úr 941 í 1.581, eða um 640. Guðmundur segir að til séu teikningar af nýrri laug, sem yrði byggð við hlið Sunnulækjarskóla. Sveitarfélagið hefur stofnað nefnd um uppbyggingu sundlaugar- mannvirkja en hún hefur farið hægt af stað. Engar ákvarðanir eða tímasetningar eru til um nýja sundlaug. „Það eru allar brautir gjörnýttar. Almennir sundlaugargestir hafa verið mjög kurteisir og þolinmóð- ir,“ segir Guðmundur um stöðuna í Sundhöllinni en sveitarfélagið á einnig 18 metra útilaug á Stokks- eyri. „Krakkar í Flóahreppi þurfa að fara í sund í Rangárvallasýslu. Þau komast ekki að hjá Selfossi,“ segir Guðmundur en Flóahreppur er austan við Árborg. n Sundhöllin á Selfossi sprungin vegna mikillar fjölgunar íbúa helgisteinar@frettabladid.is UTANRÍKISMÁL Mevlut Cavusoglu, utanríkisráðherra Tyrklands, segir Finna þurfa að aflétta vopnasölu- banni á Tyrkland ef Tyrkir styðji aðild Finna að NATO. Ty rk ne sk i r áðher r a n n lét ummælin falla í tengslum við vænt- anlega heimsókn Antti Kaikkonen, varnarmálaráðherra Finnlands. Bæði Svíþjóð og Finnland lögðu bann við sölu á vopnum til Tyrk- lands 2019 í kjölfar aðgerða Tyrk- lands gegn Kúrdum í Sýrlandi. „Við höfum ekki enn heyrt neinar yfirlýsingar frá Finnum um að þeir muni aflétta vopnasölubanni sínu á okkur,“ segir Cavusoglu. Svíar og Finnar hafa sótt um aðild að NATO en Tyrkir tefja og saka löndin um að hunsa ógnanir í garð Tyrkja. Þeir vilji meiri þrýsting frá Svíum og Finnum á kúrdíska og aðra vígahópa sem Tyrkland skil- greinir sem hryðjuverkamenn. n Tyrkir setja skilyrði við NATO-stuðning Recep Tayyip Erodgan, Tyrklandsfor- seti. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA Pedro Castillo er horfinn af forsetastóli í Perú eftir að hann reyndi að leysa upp þing landsins og efna til „neyðar- stjórnar“ undir sinni forystu og setja á útgöngubann. thorgrimur@frettabladid.is PERÚ Óhætt er að segja að mikil ólga hafi einkennt stjórnmál í Perú á síðustu árum. Í gær leysti perúska þingið forsetann Pedro Castillo úr embætti og lét handtaka hann og ákæra fyrir uppreisn eftir tilraun hans til að leysa upp þingið og stofna til „neyðarstjórnar“. Varaforseti Castillo, Dina Bolu- arte, hefur svarið embættiseið sem nýr forseti Perú, en hún er sjötti for- seti landsins frá árinu 2018. Castillo var kjörinn forseti í fyrra eftir nauman sigur í seinni umferð forsetakosninga á móti Keiko Fuji- mori, dóttur fyrrverandi forsetans Alberto Fujimori. Þótt Castillo hafi borið sigurorð af Keiko má segja að hann hafi sjálfur reynt að fylgja í fótspor Fujimori eldri í gær, því Alberto Fujimori leysti einmitt upp þing Perú og tók sér í reynd ein- ræðisvald árið 1992. Í ávarpi sínu til perúsku þjóðar- innar hafði Castillo tilkynnt að hann myndi stjórna landinu án aðkomu þingsins með stjórnartil- skipunum þar til unnt yrði að kjósa nýtt þing. Hann tilkynnti jafnframt útgöngubann um allt landið og að hver sem léti ekki af hendi ólögleg vopn til lögreglu yrði settur í fang- elsi samkvæmt tilskipun. Tilraun Castillo til að leysa upp þingið heppnaðist ekki eins vel og aðgerðir forvera hans fyrir þrjátíu árum. Her landsins tilkynnti nán- ast um leið og Castillo hafði gefið út yfirlýsingu sína að útspil hans nyti ekki stuðnings hersins. Jafn- vel Boluarte, sem hafði verið kjörin varaforseti á kjörseðli Castillos í fyrra, neitaði að styðja „valdarán“ forsetans og tók afstöðu með þing- inu á móti honum. Aðeins fáeinum klukkustundum eftir að Castillo gaf út tilkynningu um þingrofið hafði lífvarðarsveit hans fylgt honum út á lögreglustöð í Líma. Fregnir herma að Castillo hafi reynt fá hæli í sendiráði Mexíkó þegar ljóst var að sjónvarpsávarp hans hefði fallið í grýttan jarð- veg hjá bæði valdastofnunum og almenningi í Perú. n Dramatískt útspil felldi forseta Perú Pedro Castillo var kominn í hendur lögreglu aðeins fáeinum klukkustundum eftir að hann reyndi að leysa upp þingið. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA 8 Fréttir 9. desember 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.