Fréttablaðið - 09.12.2022, Síða 10

Fréttablaðið - 09.12.2022, Síða 10
n Halldór n Frá degi til dags ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jón Þórisson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is, AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is, Lovísa Arnardóttir lovisa@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is. VEFSTJÓRI: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Guðmundur Gunnarsson ggunnars@frettabladid.is, HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Þorvaldur S. Helgason tsh@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Við stör- um í staf- rænt tómið en erum í raun og veru ekki að skima eftir öðru- en okkur sjálfum.  Pantanir fyrir hópa og fyrirtæki á hafsteinn@betristofan.com eða í síma 779 2416 Desembermánuður er annasamur tími á mörgum vinnustöðum. Atvinnulífið nær hámarkshraða og vörum er mokað inn til landsins og inn á heimilin. Lengdur opnunar- tími, lengri vaktir, jólavertíð. Meira er kvartað yfir jólunum en þakkað fyrir þau og tal um jólastress virðist vaxa í veldisvexti milli ára. Sé horft á íslenskan veruleika sérstaklega, má skoða grein sem Smári McCarthy og Guð- mundur D. Haraldsson rituðu árið 2011 þar sem kom fram að árið 1980 hefði hver vinn- andi maður á Íslandi unnið að meðaltali um 1.800 klukkustundir á ári og tæpum 30 árum síðar hefði talan verið nánast óbreytt. Þar kom einnig fram að landsframleiðsla væri frekar mikil á hvern íbúa en fyrir hverja unna klukkustund væri hún í lægri kantinum. Þá er vísað í Skírnisgrein Þorvaldar Gylfasonar frá 2007 þar sem sýnt er línulegt samband milli framleiðslu á klukkutíma og vinnustunda íbúa landsins. Þeim mun fleiri vinnustundir, þeim mun minni framleiðsla á klukkustund. Ef við horfum á bandarísk gögn um vinnuaf- köst kemur fram að frá árinu 1950 til 2011 hafi framleiðni aukist umfram 260 prósent, þökk sé tækninýjungum og -þróun. Fólk vinni samt sem áður nánast jafn mikið og áður. Þessi útreikningur er fenginn með því að deila í landsframleiðsluna með unnum klukku- stundum. Eitthvað hér virðist ekki ganga upp. Hug- myndin um þægilegt framtíðarlíf þar sem tæknin bjó til aukinn frítíma virðist hafa vikið fyrir hugmynd um að fagna því að tæknin geri okkur kleift að vinna enn meira en áður, þó að gögnin sýni okkur að það gangi ekki upp. Það má spyrja hvort manntegundinni sé yfirhöfuð treystandi fyrir tækninni. Allir snjallsímaeigendur hafa aðgang að alheim- inum í vasanum en samt er öfgahyggja í vexti vegna þess hvernig við höfum þróað forritin til að færa okkur aðeins upplýsingar sem styrkja okkar skoðanir og heimsmynd. Gervi- greindarforritið Lensa er í tísku hjá Íslending- um þessa dagana. Þar málar tölva stafræn mál- verk eftir sjálfsmyndum, sem sýna notandann í jákvæðu ljósi. Eins og gerspilltur aðallinn forðum lét mála af sér fegrandi málverk fyrir fimmhundruð árum. Við störum í stafrænt tómið en erum í raun og veru ekki að skima eftir öðru en okkur sjálfum. Svo leggjum við tækin frá okkur og höldum áfram að vinna. n Starað djúpt í stafræna tómið Nína Richter ninarichter @frettabladid.is gar@frettabladid.is Tómleiki Knattspyrnumenn í öllum styrkleikaflokkum ástríðunnar eru með böggum hildar þessa dagana. Og það er að vonum. Það var enginn bolti í gær. Það er enginn bolti í dag. Eftir margra daga dásemd þar sem besti bolti í heimi hefur verið leikinn fyrir botni Persaflóa situr tómleik- inn einn eftir. Ekki einasta þarf maður að snúa sér aftur að vinnu á meðan fyrri leikurinn hefur farið fram, heldur þarf maður jafnvel að huga að eldhússtörfum á meðan sá seinni hefur hrifið hugann. Þetta er agalegt. Og það er eitthvað svo asnalega kjána- legt að standa allt í einu uppi með þvottaburstann í hendi, í stað bjórkollunnar … Annar í engu Dagurinn í dag er annar í engu. Altso, hafi dagurinn í gær verið fábreyttur – og án nokkurs knatt- spyrnuskrauts á heimilisskján- um, þá er þessi sem nú líður í lát- leysi sínu og fáskrúði eitthvað svo miklu fátæklegri. Og það má sjá fyrir sér villuráfandi boltabullur á vinnustað sínum og á heimilum í einhverri bjánalegri jólapeysu þessa landsleikjalausu daga í stað hins stórkostlega, að vera í alltof þröngum bol af uppáhaldsliðinu sínu, sem passaði kannski um mann miðjan fyrir einhverjum heimsmeistaramótum síðan. En þetta lagast á morgun. n Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku- og loftslagsráð- herra Vaxandi áhugi er á nýtnihagkerfinu hérlendis; aukinni endurnýtingu og endurvinnslu. Áhuginn virðist mestur hjá fólki undir fertugu og er sá hópur til dæmis langstærsti viðskiptavinahópur verslana með notuð föt og aðra nytjahluti sem eru sá hluti nýtnihagkerfisins sem vex hvað hraðast. Vöxtur hérlendis í sölu á notuðum fötum og hús- gögnum er ekkert einsdæmi og sama þróun á sér stað í öðrum löndum. Í Bretlandi og Bandaríkjunum er álíka vöxtur. Í Bretlandi var ákveðið að breyta þeirri ímynd sem var á sölu notaðra hluta (used goods) og var þá tekið upp heitið „preloved goods“. Ekki er komið neitt gott íslenskt heiti á þetta en ein tillaga sem skotið hefur upp kollinum með notuð föt er „frá- skilin föt“. Samkvæmt upplýsingum sem starfshópur um flýtingu hringrásarhagkerfisins hefur aflað eru um 40 aðilar hérlendis sem sinna sölu á fráskildum nytjahlutum. Skipta má þessum aðilum í tvo megin- flokka: Í fyrsta lagi er um að ræða verslanir með fatnað og nytjavöru sem starfræktar eru af félagasamtökum eða hinu opinbera. Má þar nefna Góða hirðinn og Rauðakrossbúðirnar. Í öðru lagi er um að ræða verslanir sem reknar eru af einkaaðilum og bjóða aðallega föt, húsgögn og nytjahluti sem gjarnan nýta vefinn sér til hags. Allt bendir til þess að vöxtur sé í báðum þessum flokkum. Gera má ráð fyrir að velta stóru verslan- anna með fráskilda nytjahluti sé 8-900 milljónir á árinu 2022. Mjög áhugavert er síðan að skoða einkafyrir- tæki sem hafa skotið upp kollinum á þessu sviði undanfarin ár. Velta tíu stærstu fataverslananna á milli áranna 2020-2021 jókst um allt að 35% og nam röskum hálfum milljarði króna. Við eigum mikið verk fyrir höndum þegar kemur að hringrásarhagkerfinu. Ný hringrásarlög um flokkun heimilissorps taka gildi um áramótin. Það verður áskorun en ábatinn verður mikill. Við eigum að leita að tækifærunum líkt og áðurnefndir aðilar gera. Það margborgar sig. n Fráskilin föt SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 9. desember 2022 FÖSTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.