Fréttablaðið - 09.12.2022, Side 11

Fréttablaðið - 09.12.2022, Side 11
Karl Th. Birgisson n Í dag Tjáningarfrelsið er ákaflega mikil­ vægt. Vonandi erum við sammála um það. En einmitt þess vegna er áríðandi að kunna að umgangast það. Sú regla gildir einkum og sérílagi um stjórnmálamenn. Nýjasta dæmið Í vikunni sá Ásmundur víðförli Friðriksson ástæðu til þess að ráðast á starfsfólk Ríkisútvarpsins og nafngreinda leikkonu úr ræðu­ stóli alþingis. Tilefnið þarf ekki að koma þeim á óvart, sem hafa heyrt Ásmund tala um útlendinga, múslimista og fleira úr þeim ranni. Honum þótti Ríkisútvarpið vítavert af því að Ilmur Kristjáns­ dóttir og Gísli Marteinn Baldursson töluðu af „dónaskap“ um forstjóra Útlendingastofnunar. Leiðum nú efnisatriðin alveg hjá okkur, en Ásmundi til upplýsingar þá er tjáningarfrelsið einmitt mikil­ vægast fyrir þá sem eru dónalegir. Það er ekki til varnar þeim sem tjá ást sína og kærleik, heldur hinum sem stuða og ögra. Í þeim tilvikum skiptir það ein­ mitt mestu máli. Skilningsleysi þingmannsins á þessari staðreynd er eitt. Hitt er alvarlegra að hann telji sig – því að hann er þrátt fyrir allt í einhvers konar valdastöðu – að hann telji sig mega blása svona í ræðustóli. Hann má það ekki. Einmitt af því að hann er alþingismaður og hefur atkvæðisrétt um fjárframlög til Ríkisútvarpsins. Annar þingmaður, Andrés Ingi Jónsson, hélt sig líklega vera að andmæla Ásmundi þegar hann féll í sama pytt með gusugangi og lýsti aðdáun sinni á tilteknum dagskrár­ lið í Ríkisútvarpinu. Sko. Ásmundur og Andrés mega hafa skoðun á því sem þeir vilja, en sem alþingismenn þurfa þeir að kunna að hemja sig. Starfinu fylgja nefnilega tjáningarmörk. Ef þeir eru ósáttir við þau, þá er þeim frjálst að fá sér aðra vinnu og gaspra um Gísla Mar­ tein eins og þeir vilja. Eða barnaefni í sjónvarpinu. Þarf að nefna Brynjar? Þar er nú annar, sem gerir sér enga grein fyrir stöðu sinni, hvort heldur sem alþingismaður eða aðstoðar­ maður dómsmálaráðherra. Hann blaðrar um Rauða krossinn sem ígildi pólitískra andstæðinga, svo nýlegt dæmi sé tilgreint. Við höfum líklega mörg tilhneig­ ingu til að fyrirgefa Brynjari vit­ leysuna, af því að hann er húmoristi og vel meinandi manneskja. En dómgreindarleysið minnkar ekki við það. Og svo þið haldið ekki að þessar athugasemdir séu flokkspólitískar nefni ég eitt dæmi enn: Þegar Namibíumálið kom upp krafðist Helga Vala Helgadóttir þess í þingsal að eignir Samherja yrðu kyrrsettar. Það er ekki hlutverk löggjafans að heimta kyrrsetningu á eignum fyrirtækja úti í bæ, hvort sem þau heita Samherji eða Sorpa. Til þess höfum við dómstóla og eftir atvikum sýslumenn. Þögnin uppsker að vísu engin læk á Facebook. En í henni felst listin að halda kjafti, þrátt fyrir réttmæta reiði. Það er einkar mikilvæg list. Listin að halda kjafti Þessir fjórir Á nýlegum landsfundi Sjálfstæðis­ flokksins notaði Bjarni Bene­ dikts son ótrúlega langan hluta af ræðutíma sínum í furðulegt rant gegn Fréttablaðinu. Ég skil ekki enn röksemdirnar, hvað þá þörfina eða hvatirnar til þess að ráðast svona að einum fjölmiðli, en ég veit svosum ekki margt. Veit þó að svona tala ekki stjórn­ málamenn með sjálfstraust, heldur þeir sem upplifa sig umsetna eða ofsótta. Dæmin eru legíó, en í hugann koma Richard Nixon og Donald Trump. Austan við okkur gæti hugurinn hvarflað til Rússlands og Ungverjalands. Nærtækari er Davíð Oddsson. Árum saman neitaði hann Stöð 2 um viðtöl, þótt ekki skorti tilefnin. Davíð var nefnilega í nöp við eiganda stöðvarinnar, eiginlega með hann á heilanum, eins og fjöl­ mörg dæmi sýndu og er rækilega skrásett. Þess vegna talaði hann ekki við eina sjónvarpsstöð. Leifarnar af þessari smáu hugsun getið þið séð í Reykjavíkurbréfum Morgunblaðsins, sem Matthíasi Johannesen þykir sennilega ekkert gaman að lesa. Hugarheimur Davíðs er kunnug­ leg óreiða, en það kom óþægilega á óvart að sjá Bjarna Benediktsson bætast í þennan félagsskap hinna ringulreiðu. Við hin Þetta var svolítið um tjáningu og þá sem eru í ábyrgðarstöðum. Um okkur hin gilda líka nyt­ samlegar ábendingar. Til dæmis spurningin: Er gagnlegt að ég segi þetta? Gerir það eitthvað fleira en að fróa frústrasjónum mínum? Einnig sú regla að með réttinum til tjáningar fylgir ekki samsvar­ andi kvöð um að opinbera fordóma sína og heimsku. Bara alls ekki. n Innbundin Rafbók Hljóðbók „Skáldsagan Gratíana er enginn eftirbátur Hansdætra og ég er ekki frá því að þetta sé hennar besta verk til þessa.“ RAGNHEIÐUR BIRGISDÓTTIR / MORGUNBLAÐIÐ „... minnir á íslensk bókmenntastórvirki ... eftir höfunda eins og Guðrúnu frá Lundi og Halldór Laxness.“ BRYNHILDUR BJÖRNSDÓTTIR / FRÉTTABLAÐIÐ „Gratíana er yndisleg bók. Mikið öfunda ég þá sem eiga þá ánægju eftir að lesa Hansdætur og Gratíönu.“ STEINGERÐUR STEINARSDÓTTIR Hjartastyrkjandi örlagasaga eftir Benný Sif Ísleifsdóttur um íslenskar alþýðukonur, sorgir og sigra, drauma og þrár. , Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið 10–19 alla daga til jóla | www.forlagid.is LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA FÖSTUDAGUR 9. desember 2022 Skoðun 11FRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.