Fréttablaðið - 09.12.2022, Side 12

Fréttablaðið - 09.12.2022, Side 12
Ástkær eiginmaður minn, faðir og tengdafaðir, Ríkarður Ríkarðsson lögreglumaður, Breiðvangi 3, Hafnarfirði, lést í faðmi fjölskyldunnar, sunnudaginn 20. nóvember á líknardeild Landakotsspítala. Útför fer fram frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði mánudaginn 12. desember klukkan 13. Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeir sem vilja minnast hans geta styrkt Orgelsjóð Húsavíkurkirkju, reikningur 192-15-380117, kt. 640969-5919, eða Ljósið, reikningur 0130-026-410420, kt. 590406-0740. Útförinni verður streymt. Elfa Dögg Einarsdóttir Elín Hanna Ríkarðsdóttir Alex Rafn Elfarsson Okkar hjartkæra Halldís S. Thoroddsen andaðist á Karólínska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi miðvikudaginn 7. desember. Jórunn Tómasdóttir Skúli Thoroddsen Jón Fjörnir Thoroddsen Eloise Freygang Bolli Thoroddsen Ásta Sigríður Fjeldsted Erik Ribeli, Bryndís Stefánsdóttir og bræðrabörn Það var á þessum degi árið 1843 sem fyrstu jólakortin sem sett voru í sölu voru búin til. arnartomas@frettabladid.is Þótt fyrstu jólakortin sem vitað er um teygi sig aftur til 17. aldar var það þann 9. desember 1843 sem fyrsta jólakortið sem selt var almenningi var búið til. Enski teiknarinn John Callcot Horsley hafði hannað kortið nokkrum mánuð- um fyrr og seldust 2.050 eintök. Kortið, sem var handlitað og steinþrykkt, þótti sumum hneisa en þar mátti sjá mynd af fjölskyldu og ungu barni að fá sér vín saman. Á hvorri hlið kortsins mátti sjá góðverk þar sem fátækum var færður matur og klæði. Áletrunin á kortinu var: „Gleðileg jól og farsælt komandi ár.“ Í dag eru jólakort ómissandi hefð á jólunum og má sem dæmi nefna að í Bandaríkjunum eru yfir tveir milljarðar jólakorta sendir ár hvert. Á Íslandi fóru jólakortin fyrst að birtast undir lok 19. aldar. Í Þjóðólfi 1888 auglýsir Bóka- verzlun Sigfúsar Eymundssonar til að mynda jólakort sem komið höfðu með síðasta póstskipi á 5-50 aura og í Æskunni eru auglýst jóla- og nýárskort árið 1897. Kortin voru venjulega dönsk eða þýsk en jólakort höfðu f ljótt orðið að vinsælum sið í Evrópu og Norður- Ameríku. Það var svo ekki fyrr en eftir alda- mót sem byrjað var að gefa út íslensk jóla- og nýárskort. Þar voru fyrst um sinn aðallega myndir af landslagi eða einstökum kaupstöðum. Síðar meir komu teiknuð kort til sögunnar. Á Þjóð- minjasafni Íslands er varðveitt jólakort með jólamynd frá árinu 1910, gefið út af Friðfinni L. Guðjónssyni en í safnbúð- inni má einmitt nálgast endurprent af gömlum íslenskum jólakortum. Haldið í hefðirnar Þótt jólakortin hafi sprungið út í vin- sældum á sínum tíma hefur netið og tölvupóstur dreg ið talsvert úr vin- sældum þeirra. Eru þau barn síns tíma? „Bréfasendingar eiga sér langa sögu hjá Póstinum og þótt þær séu á undan- haldi eru enn einhverjir sem halda í þá fallegu hefð að senda handskrifað jólakort til vina og ættingja, svo enn er þessi skemmtilegi siður lífseigur,“ segir Þórhildur Ólöf Helgadóttir, for- stjóri Póstsins, og bætir við að miklar breytingar hafi orðið á póstþjónustu á síðari árum. „Fjöldi bréfasendinga hefur dregist saman um hátt í 90 pró- sent  frá aldamótum en á sama tíma hafa pakkasendingar margfaldast.“ Þá er enn þá hópur sem kýs að senda jólakort. „Það minnkar hópurinn sem sendir jólakort með Póstinum, en þó eru alltaf einhverjir sem halda í þessa skemmti- legu og rómantísku hefð og senda sínum ástvinum handskrifaðar jóla- kveðjur jafnvel með mynd af börnum sínum og viðburðum innan ársins. Undanfarin ár hefur dreifing jólakorta ekki leitt til aukins álags í okkar kerf- um,“ segir Þórhildur Ólöf.  n Jólakortin í gegnum aldirnar Jólakort Horsley, barnið er vonandi bara með Ribena. Jólastelpa í þjóðbúningi, teikning eftir Ragnhildi Ólafsdóttur, 1949. MYND/ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS Skíðamaður, teikning eftir Stefán Jóns- son, 1938. MYND/ ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS arnartomas@frettabladid.is Í tilefni þess að níutíu ár eru liðin frá útgáfu kvæðakversins Jólin koma eftir Jóhannes úr Kötlum hefur verið sett upp örsýning í Þjóðarbókhlöðunni. Kverið er fyrir löngu orðið að einum helsta jólaarfi Íslendinga en þar má meðal annars finna kvæði Jóhannesar um jólasveinana þar sem hann notaði að mestu sömu nöfn á sveinana og séra Páll Jónsson á Myrká sjötíu árum fyrr. Kvæði Jóhannesar er jafnan notað til viðmiðs um fjölda jólasveinanna og hvenær þeir komi til byggða, en þeir eru reyndar mun fleiri en þeir þrettán sem halda til byggða enn þann dag í dag. Árið 1989 eignaðist Landsbókasafn frumeintök teikninga Tryggva Magn- ússonar í Jólin koma og eru þær varð- veittar í handritasafni. Nýlega gaf Mál og menning kverið út á pólsku undir heitinu Idą święta: wiersze dla dzieci. Í gær mættu afkomendur Jóhannesar og þýðandinn Nina Słowińska í Þjóðar- bókhlöðuna til að skoða sýninguna. Bókin var áður gefin út í enskri þýð- ingu Hallbergs Hallmundssonar árið 2015 undir heitinu Christmas is com- ing: verse for children. n Jólin koma á ýmsum málum  Kápan fyrir kverið í pólskri þýðingu. Það minnkar hópurinn sem sendir jólakort með Póstinum, en þó eru alltaf einhverjir sem halda í þessa skemmtilegu og rómantísku hefð. Þórhildur Ólöf Helgadóttir, forstjóri Póstsins 1608 John Milton fæddur. 1749 Skúli Magnússon er skipaður landfógeti, fyrstur Íslendinga. 1793 Fyrsta dagblað í New York-borg, The American Min- erva, er stofnað af Noah Webster. 1926 Sjö hús brenna á Stokkseyri, eða mestallur miðhluti þorps- ins. Ekkert manntjón verður. 1934 Enska leikkonan Judi Dench fædd. 1956 Hamrafell, stærsta skip sem Íslendingar hafa þá eignast, kemur til landsins. Það er 167 metra langt og getur aðeins lagst að bryggju á einum stað á landinu, í Hafnar- firði. 1982 Kvikmyndin E.T. frumsýnd í Laugarás- bíói. Það er frum- sýning myndarinnar í Evrópu. 1995 Bandaríska fimleika- konan McKayla Mar- oney fædd. 1996 Sameinuðu þjóðirnar hleypa af stokkun- um átakinu Olía fyrir mat í Írak. 2010 Nýr Icesave-samn- ingur milli Bret- lands og Íslands er kynntur á blaða- mannafundi. 2010 Lilja Mósesdóttir brýtur blað í sögu þingsins, er hún situr hjá í atkvæðagreiðslu um fjárlagafrum- varp. Merkisatburðir TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 9. desember 2022 FÖSTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.