Fréttablaðið - 09.12.2022, Qupperneq 28
Jóhanna María
Einarsdóttir
jme
@frettabladid.is
Það er alltaf nóg um að vera
á bókasöfnunum fyrir jólin.
Jólabókaupplestrar, við-
burðir fyrir börnin og ýmis-
legt fleira fyrir fullorðna,
börn og fjölskyldur. Bóka-
safn Kópavogs tekur virkan
þátt í jólaundirbúningnum
og býður upp á ríkulega dag-
skrá fyrir hátíðirnar.
„Það er nóg um að vera á Bóka
safni Kópavogs fyrir jólin. Um
miðjan nóvember héldum við
árlegt bókaspjall þar sem við
fengum til okkar þrjá f lotta
rithöfunda sem lásu úr nýjustu
skáldsögunum sínum og tóku
þátt í líf legum umræðum,“ segir
Bylgja Júlíusdóttir, deildarstjóri
viðburða á Bókasafni Kópavogs.
„Síðustu helgi var svo aðventu
hátíð Kópavogsbæjar sem er
einn stærsti viðburður ársins hjá
Menningarhúsunum. Þá var mjög
hugguleg stemning á bókasafninu
með jólaföndri og sögustundum
fyrir alla fjölskylduna. Við settum
einnig upp gjafainnpökkunarstöð
sem gestir safnsins mega nýta sér
alla daga fram að jólum.
Við erum svo heppin að Tón
listarskóli Kópavogs er hérna
beint við hliðina á okkur í Hamra
borginni. Fyrir Covid var orðin
hefð fyrir því að fá nemendur í
hljóðfæraleik inn á safnið til að
spila nokkur vel valin jólalög fyrir
gesti og gangandi og ætlum við að
taka upp þráðinn að nýju þetta
árið. Tónleikarnir verða á aðal
safninu okkar miðvikudaginn 14.
desember kl. 16.00 og eru öll vel
komin,“ segir Bylgja. Alla viðburði
bókasafnsins og hinna Menn
ingarhúsanna má finna á vefnum
meko.is.
Þrjú hundruð börn í heimsókn
Árlega fá Bókasafn Kópavogs og
Náttúrufræðistofa Kópavogs til sín
heimsóknir frá leikskólahópum í
Kópavogi sem hluti af viðburða
röð sem nefnist Jólakötturinn.
Viðburðurinn er árlegt samstarfs
verkefni bókasafnsins og Nátt
úrufræðistofu.
„Jólakötturinn var
settur á lagg
irnar árið 2004
og er hugsaður
fyrir börn
Jólakötturinn
læðist um í
bókasafninu
Frá vinstri: Bylgja
Júlíusdóttir,
Finnur Ingimars-
son, Haraldur
Rafn Ingvason,
Gréta Björg
Ólafsdóttir,
Sigurlaug Jóna
Hannesdóttir og
Elísabet Indra
Ragnarsdóttir.
Öll starfa þau
hjá Bókasafni
Kópavogs,
Menningarhús-
unum í Kópa-
vogi, Náttúru-
fræðistofu og
Lindasafni. Jóla-
sveinarnir tveir
fyrir framan
skelltu sér svo
með í mynda-
tökuna.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
Jólatré geta verið alls konar. Þetta fallega jólatré var sett
saman úr bókum og marglitri jólaseríu.
Jólakötturinn lifir á nokkuð fábreyttu mataræði miðað við flestar aðrar
kattartegundir, að sögn Haraldar, líffræðings á Náttúrufræðistofu.
Tónlistarskóli Kópavogs heldur árlega tónleika á aðal-
safninu miðvikudaginn 14. desember kl. 16.00.
Í fyrra gaf bókasafnið leikskólunum bókina Rauð við-
vörun! Jólin eru á leiðinni, eftir Sigrúnu Eldjárn,
til að bæta upp fyrir viðburðaleysið vegna faraldurs.
á eldra stigi leikskólanna,“ segir
Haraldur Rafn Ingvason, líf
fræðingur á Náttúrufræðistofu.
„Árlega mæta um 300 börn í
jólakattardagskrána á safninu og
það stefnir í að við fáum svip
aðan fjölda í ár,“ segir Bylgja og
bætir við: „Leikskólahópar koma
á safnið og hlusta á skemmtilega
sögu um jólaköttinn í barnadeild
bókasafnsins. Í sögunum lendir
jólakötturinn í ýmsum ævin
týrum og þarf að takast á við
fjölbreytt verkefni meðal
mannfólksins.“
Kanadagaupur og
jólakötturinn
„Að lokinni sögustund fá börnin
svo fræðslu frá okkur hjá Náttúru
fræðistofu um alls kyns kattardýr,
allt frá litlum húsköttum yfir
í stærðarinnar tígrisdýr. Fyrir
þennan aldurshóp er sjónum aðal
lega beint að sérkennum kattar
dýra og hvað er líkt eða ólíkt með
mismunandi tegundum þeirra, en
minni áhersla er lögð á fæðuval og
atferli jólakattarins sjálfs,“ segir
Haraldur.
Haraldur segir þó jólaköttinn
vera nokkuð sér á báti þegar
kemur að einsleitu fæðuvali.
„Oftast lifa kattardýr á fremur
fjölbreyttri fæðu sem þó kemur
öll úr dýraríkinu. Mikil sérhæfing
í fæðuvali er þó þekkt, til dæmis
hjá Kanadagaupum sem lifa að
mestu á snæhérum. Fátt bendir
hins vegar til að þær séu fyrirmynd
jólakattarins og má trúlega frekar
finna skyldleika hans með öðrum
þjóðsagnaverum á borð við urðar
ketti,“ segir hann.
Bókasafnsjólin í faraldri
Fyrstu jólin í heimsfaraldrinum
þurfti að fella niður alla viðburði
á bókasafninu. „Hópar gátu til að
mynda ekki heimsótt safnið til að
fræðast um jólaköttinn og því var
ákveðið að jólakötturinn myndi
heimsækja leikskólana rafrænt.
Arndís Þórarinsdóttir rithöfundur
skrifaði bráðskemmtilega sögu
um jólaköttinn sem hún las inn á
myndband sem sent var á leik
skólana. Það vakti mikla lukku.
Í fyrra fórum við svo aðra leið og
gáfum leikskólunum góða bók að
gjöf til að bæta upp fyrir viðburða
leysið það árið. Bókin sem varð
fyrir valinu var Rauð viðvörun!
Jólin eru á leiðinni, eftir Sigrúnu
Eldjárn. Um er að ræða spennandi
jólasögu sem hentar einstaklega
vel til lestrar á aðventunni,“ segir
Bylgja. n
Það er alltaf há-
tíðlegt að kíkja í
bókasafnið fyrir
jólin enda eru
bækur eitt það
jólalegasta sem
hugsast getur.
12 kynningarblað 9. desember 2022 FÖSTUDAGURBÓK AJÓL