Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.12.2022, Qupperneq 33

Fréttablaðið - 09.12.2022, Qupperneq 33
Hvað er um að vera í næstu viku? n Skrítin staðreynd vikunnar Sirkusdragdrottningin Enter Serenity er í sýningarheimsókn á Íslandi þessa helgina. Þetta er lokahnykkur ferðalags sem hófst í júní. „Ég er hluti af dragsirkus sem heitir Briefs og er búinn að ferðast með þeim um heiminn. Við byrjuðum í London þar sem við vorum með sýningar í sumar í speglatjaldinu við Thames, svo var það Fringe-hátíðin í Edinborg og svo þrír mánuðir á ferðalagi um Svíþjóð. Ég var svo glaður að sjá að vistarverur mínar á Íslandi eru með eldhúsi! Ég hef ekki eldað síðan í maí!“ Serenity heitir Dylan Rodriguez undir sminkinu og glamúrnum. Dylan er þrautþjálfaður sirkus- listamaður en byrjaði dragferilinn fyrir þremur árum. Mikið af því sem dragdrottningar gera eru ýmsir sirkusfimleikar „…svo þetta kom eiginlega af sjálfu sér. Dragið hefur þó verið lykillinn sem opnaði dyrnar að heiminum sem venjulegi sirkusstrákurinn hafði ekki.“ Með vinsældum þátta á borð við RuPaul’s Drag Race er dragið orðið aðgengilegt skemmtiform. „Auðvitað langar mig að taka þátt Dragið opnar dyr að heiminum einhvern tímann í ástralska Drag Race – ég er bara alltaf á sýningarferðalögum þegar það er verið að taka upp! Ég finn fyrir því alls staðar að fólk segir: „Má ég fá mynd, svo ég eigi mynd þegar allur heimurinn sér þig í Drag Race? Þannig að fólk hefur rosalega trú á okkur Serenity.“ Enter Serenity kemur fram í kvöld með Reykjavík Kabar- ett í Þjóðleikhúskjallaranum og annað kvöld, laugardag, á Ölverki í Hveragerði. „Jú, það er alveg geggjað að koma fram í eldgömlum risastórum leik- húsum, en skemmtilegastar eru barsýningarnar með klístruðu sviðunum.“ Einnig verður nám- skeið á morgun í Kram- húsinu klukkan 13.00 fyrir unglinga sem hafa áhuga á að læra ýmsa dragtengda framkomu. „Þetta hentar öllum kynjum og kemur sér vel í lífinu. Hvort sem þú ert að hugsa um svið, dansgólf eða bara að líða vel í eigin skinni fyrir framan annað fólk þegar þú heldur fyrirlestur.“ Nánar má lesa um námskeiðið á Facebook undir Teen Workshop with Enter Serenity. n Late Night Fiesta Eldhúsið okkar er opið til miðnættis föstudaga og laugardaga treslocos.is 12. desember mánudagur nÞú veist… svona jóla kl. 18.00 og 20.30 Langholtskirkja Karlakórinn Esja, Kvennakórinn Katla, Drengjakór Reykjavíkur og Olga Vocal Ensemble taka höndum saman á stórtón- leikum. nMánudjass kl. 21.00 Húrra Húsbandið spilar eitt sett og svo er sviðið opið. Öllum er Sígrænn gróður aldagömul hefð Jólatréð er eldra en jólin sjálf. Rómverjar og Egyptar skreyttu híbýli sín með sí- grænum gróðri í kringum vetrarsólstöður til að minna á að vorið kæmi alltaf aftur. Svo hvort sem þú skreytir tréð á Þorláks- messukvöldi eða í byrjun október, þá skiptir tímasetningin ef til vill ekki máli í stóra sögulega samhenginu. velkomið að spila, syngja, dansa eða bara njóta tónlistarinnar. 13. desember þriðjudagur nJólasexí með Margréti Maack kl. 18.30 Kramhúsið Tíminn er blanda af danstíma, núvitund, leiklist og þokkaæf- ingum. Tilvalinn tími til að gefa sjálfum okkur í aðventugjöf. nTeiknimyndajól með Viðlagi kl. 20.30 Tjarnarbíó Viðlag flytur vinsælustu teiknimyndalögin sem allir þekkja, en í nýjum búningi með spreng- hlægilegum íslenskum textum eftir kórmeð- limi. Það verður sungið, dansað, hlegið og mögu- lega grátið. 14. desember miðvikudagur nThe Alternate Assembly kl. 20.00 Gaukurinn Fjöllistasýning Andrew Sim þar sem fram koma alls kyns skemmtikraftar. 15. desember fimmtudagur nBingópíla kl. 20.00 Bullseye, Snorrabraut 37 Vinningarnir eru allt frá gjafabréfum á Bullseye til utanlandsferða. ALLT kynningarblað 5FÖSTUDAGUR 9. desember 2022

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.