Fréttablaðið - 09.12.2022, Qupperneq 34
Ég fékk þann
heiður að teikna
jólafrímerkin fyrir
Póstinn árið 2020.
Teiknaði litlar trélita-
teikningar af pipar-
kökum og voru þær með
piparkökuilmi.
Elsa Nielsen hönnunarstjóri
á auglýsingastofunni Kontor
og fyrrverandi Ólympíufari
er mikið jólabarn og nýtir
listræna hæfileika sína líka
utan vinnutíma.
sjofn@frettabladid.is
Elsa er búin að hanna sína eigin
jólalínu sem er ævintýralega falleg
og inniheldur meðal annars jóla-
gjafapappír, jólakort, dagatöl og
fleira fallegt.
„Ég lærði grafíska hönnun í
Listaháskólanum þar sem ég
kynntist allri myndlistarflórunni.
Ég er svo praktísk og var lengi
búin að láta mig dreyma um að
verða auglýsingateiknari svo ég
valdi þá leið. Var samt alltaf mjög
spennt fyrir málun og öllum
hinum brautunum í LHÍ. Mér
finnst ég vera í skemmtilegustu
vinnu í heimi – skapandi og fjöl-
breytt alla daga. En það er líka
gott að geta sinnt listinni fyrir
sjálfan sig, því í starfinu mínu er
ég að hanna fyrir ólíka viðskipta-
vini hverju sinni. Ég er fyrrverandi
Íslandsmeistari í badminton og
Ólympíufari og var á æfingum öll
kvöld í viku hér áður fyrr. Þegar ég
lagði skóna á hilluna myndaðist
ákveðið tómarúm á kvöldin og
listin varð fyrir valinu.“
Heimsmeistari í tvíliðaleik
Þótt Elsa hafi lagt skóna á hilluna
er hún enn að æfa og hefur meira
að segja verið að keppa. „Það er
akkúrat ár síðan ég varð heims-
meistari í tvíliðaleik kvenna í 40+
flokknum og er því ríkjandi heims-
meistari ásamt Drífu Harðar-
dóttur, makkernum mínum. Það
var algjörlega geggjað! Við unnum
stelpur frá Kóreu í úrslitum en
næsta heimsmeistaramót er ein-
mitt í Kóreu næsta september.
Hver veit nema maður skelli sér?
Þetta er mín líkamsrækt og ég
spila tvisvar í viku með hópunum
mínum til margra ára, alltaf á
sama tíma, á sömu völlum.“
Ein trélitamynd á dag í heilt ár
Segðu okkur aðeins frá jólalínunni
þinni, hvaðan þú færð innblástur
og hvernig hún varð til.
„Árið 2015 langaði mig að rifja
upp gamla trélitatakta og ákvað
1. janúar að það yrði mitt áramóta-
heit – að teikna eina litla trélita-
mynd á hverjum degi í eitt ár. Þar
sem keppnisskapið er mikið þá
stóð ég við það og teiknaði 365
teikningar sem voru einhvers
konar myndræn dagbók.
Ég deildi síðan myndunum á
Instagram og margir fylgdust með
og þannig fékk ég hvatningu til að
halda áfram og klára árið. Út frá
þessum teikningum ákvað ég svo
að hanna vörulínu. Nýta þessar
teikningar sem ég var búin að hafa
fyrir að teikna – í heilt ár! #einádag
vörurnar voru svo til sölu í helstu
hönnunarverslunum hér heima en
einnig voru þær til í Illums Bolig-
hus í Danmörku og Wanted Design
í New York um tíma.
Í smásölu á hönnunarvöru þarf
maður að vera duglegur að uppfæra
og koma með nýjar vörur og þetta
var orðið ansi stórt verkefni og erf-
itt að halda utan um ásamt vinnu
minni sem grafískur hönnuður.
Ég setti svo saman jólavörulínu
úr myndunum í kjölfarið sem ég
framleiði enn þá sem áhugasamir
geta nálgast í gegnum Instagram,
@elsanielsen. Svo fæst #einádag
vikudagatal og jólapappírinn hjá
Farva í Álfheimum eða á Farvi.is
sem er dásamleg hönnunarverslun.
Árið 2016 hlaut ég nafnbótina
bæjarlistamaður Seltjarnarnes-
bæjar og var með sýningu á öllum
365 litlu teikningunum.“
Teiknaði jólafrímerki
með piparkökuilmi
Elsa sendir enn þá handskrifuð
jólakort. „Mér finnst ekkert
skemmtilegra en að fá jólakort. Því
miður eru þau ekki mörg lengur
en við hjónin vorum með hefð og
opnuðum saman öll jólakortin
þegar krakkarnir voru komnir í
ró á aðfangadag. Þá var opnuð ein
rauðvín og kortin opnuð í kjöl-
farið.
Ég fékk þann heiður að teikna
jólafrímerkin fyrir Póstinn árið
2020. Teiknaði litlar trélitateikn-
ingar af piparkökum og voru þær
með piparkökuilmi. Það er svo
mikil synd að það sé ekki lengur
verið að hanna falleg frímerki – nú
er bara stimpill. Síðustu fjögur ár
hef ég teiknað jólakort fyrir SOS
Barnaþorpin sem hafa selst eins og
heitar lummur hjá þeim – þann-
ig að það eru einhverjir fleiri sem
halda í þessa frábæru hefð.“
Eins og sjá má á jólalínu Elsu er
hún mikið jólabarn og kann að
koma minningum í myndrænt
form. „Mér finnst ekkert betra en
að njóta með fjölskyldu og vinum
í ljósadýrðinni í desember. Svo
finnst mér skemmtilegt að pakka
inn gjöfum og skreyta pakka. Fal-
legur jólapappír gleður.“
Fallegar litasamsetningar
og myndbygging
Elsa málar líka í frítímanum og
nýtur þess að vera með pensil
í hönd. „Ég er náttúrulega pínu
ofvirk. Það er svo gaman að vera
skapandi og fá smá útrás. En það
má aðeins sjá tengingu í graf-
íska hönnun í mínum verkum.
Er að vinna með litla kassa og ég
vil meina að þetta sé eins konar
framlenging af skjápixlum sem ég
er með á skjánum mínum allan
daginn. Ég hef mikinn áhuga á lita-
pallettum og litasamsetningum.
Fyrst var ég að vinna með jarðliti
en núna er ég orðin aðeins villtari
– rétt eins og grafísk hönnun
hefur þróast. Nú snýst þetta frekar
um að vera með skæra skjáliti og
ég held að það færist sjálfkrafa
yfir í listina mína. Ég vinn með
blandaða tækni, með sparsl, sand
og akríl. Hef ekki þolinmæði fyrir
olíuna. Stíllinn minn einkennist
af fallegum litasamsetningum og
myndbyggingu. Með akríllitum
næst þessi dýpt sem ég leitast eftir.“
Elsa segist vera í skemmtilegustu
vinnu í heimi. „Verkefnin eru
ofsalega fjölbreytt og skemmtileg
þar sem ég get nýtt allt sem ég hef
lært og meira til. Það sem ég elska
mest við vinnuna mína er þegar
hugmyndirnar verða að veruleika;
í sjónvarpi, í útvarpi, á húsgafli,
á strætóskýlum, í verslunum, á
skjánum, á netinu og í símanum.
Síðan er ekkert skemmtilegra en
að fá verðlaun fyrir auglýsingar og
dæma í hönnunarsamkeppnum.
Art Directors Club of Europe
bað mig að dæma í árlegri hönn-
unarkeppni í Ríga í Lettlandi fyrir
stuttu síðan og það er svo gott
að koma heim með innblástur
þaðan.“ n
Áhugasamir geta fylgst með Elsu á
Instagramreikning hennar
@elsanielsen
Áramótaheitið að gera eina trélitamynd á dag
Jólalínuna prýða myndir af góðgæti sem kemur með jólin, eins og flatköku, söru, piparköku, konfektmola og
mandarínu svo dæmi séu tekin.
Elsa er einstakleg fjölhæf og býr yfir listrænum hæfileikum sem hún hefur meðal annars nýtt til að skapa sína eigin jólalínu með fallegum myndskreytingum
sem minna á bernskuna, litlu hlutina sem tengjast jólunum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Trélitamyndirnar hennar Elsu í
desember sóma sér vel á jólamerki-
miðum og jólapappír og minna
óneitanlega á jólin. Þessir litlu hlutir
á myndunum fá okkur til að finna
ilminn á jólunum.
6 kynningarblað A L LT 9. desember 2022 FÖSTUDAGUR