Stétt með stétt - 01.05.1941, Blaðsíða 8
4
STÉTT MEÐ STÉTT
Elskar þú land þitt?
Með falslausri gleði eg fagnaði því
að frjáls yrði þjóðin og sjálfstœð á ný.
En þá komu hermenn með þrumandi gný
og þrœldómsins fjötrana hnepptu okkur í.
Hvar, sem þú gengur, um götu eða torg,
glymja í eyru þér skipana org.
Hernámið vekur í hjarta mér sorg.
Hver verður framtíð þín íslenzka borg ?
Ef elskar þú land þitt er velferð þess vís.
Vorgróður dafnar og fegurð þess rís.
En vanti þig manndóm og kœrleikans kraft,
kvíðinn og ómennskan binda á þig haft.
Guðrán Guðlaugsdóttir.
Að svo mjög’ hefir verið um þessa
hlið málsins fjölyrt kemur af því, að
réttur íslenclinga til frjálsrar ákvörð-
tmar hefir verið dreginn, í efa. Eins
og sýnt er, þá er sá efi eigi réttmæt-
ur. Mun og nærri liggja, að hann komi
öllu fremuir af óttanum við, að ef al-
ger riftingarréttur sé nú viðurkennd-
ur, þá verði honum óhyggilega beitt,
heldur en af gaumgæfilegri athugun
atvika málsins og þeirra réttarregina,
sem við eiga.
En það er auðvitað sitt hvað, hvort
menn eiga rétt, og hvort menn vilja
hiklaust beita honum án tafar. Fyrir
varúð í því efni má færa margvísleg
rök, en óttinn við, að óihyggileg á-
kvörðun kunni ,að verða tekin, má eigi
leiða til að afneita þeim aukna rétti,
semi fyrir atburðanna rás hefir áunn-
ist. Maður má eigi neita frelsi sínu
af ótta við, að hann kunni eigi með
það að fara.
Þau, rök, sem þyngst eru á metun-
um, gegn því að, ganga nú þegar frá
endaniegri stjórnarskipun ríkisins.
þar sem afleiðingar af sliti sambands-
sáttmálans erui teknar, eru, að Island
er nú hernumið. Fullveldi þess nú er
því engan veginn óskert og á því