Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.06.1938, Side 21
VAKA 1. drgangur . 2. ársfjórðungur
verða þeir herrar yfir Dónárósun-
um og höfnum við Svartahafið og
geta byggt flota þar. En það lítur
engan veginn út fyrir, að Þýzka-
land muni láta sér nægja að
leggja undir sig Rúmeníu, heldur
virðist það aðeins vera ein af
mörgum fyrirætlunum þeirra.
Fyrir löngu síðan
hefir sú hugmynd
Ukraine
komið fram meðal þýzku naz-
istanna, að skilja Ukraine frá
Rússlandi og Pólland og gera það
að „sjálfstæðu" ríki. Þeir hafa
gert þann litla hluta af því landi,
sem lá undir Tékkóslóvakíu, Kar_
patho-Rússland, að „sjálfstæðu“
ríki og hafa lýst því yfir, að þeir
ætluðu innan tveggja ára að vera
búnir að sameina alla Ukraine í
eitt „ríki“. íbúarnir í Ukraine eru
alls um 45 milljónir. Mestur hluti
þeirra, eða rúmar 35 milljónir, búa
í rússneska Ukraine, sem er sjálf-
stætt Sovétlýðveldi. Hinir búa
flestir í Póllandi en nokkrir í
Rúmeníu. Rússneska Ukraine er
mikið iðnaðarland. Er þar gnægð
málma í jörðu og hefir mikill iðn-
aður þotið þar upp á síðari árum.
Þar eru líka miklar rafmagns-
stöðvar og er Dnjeprostroj stærst
þeirra. Hefir þetta mikla iðnað-
arland hina mestu þýðingu fyrir
Rússland, sem mundi falla úr tölu
stórveldanna, eða að minnsta
kosti verða annars flokks stór-
veldi, ef Ukraine yrði skilin frá
því. Mundi því aðeins verða hægt
að framkvæma fyrirætlun nazist-
anna um að skilja það frá Rúss-
landi með því að sigra Rússa í
styrjöld. Er því óhætt að fullyrða,
að ef nazistunum eru alvara með
fyrirætlunina, þá ætla þeir að
heyja strið við Rússa á næstu ár-
um.
í Póllandi búa 3—4 milljónir
Litlu-Rússa. Þeir eru óánægðir
með yfirráð Pólverja og því auð-
velt fyrir Þjóðverja að æsa þá upp
til uppreisnar. En rússneska Uk-
raine virðist ekki vera sérlega
móttækileg fyrir slíka stefnu, þar
eð landið hefir sjálfstjórn, enda er
erfitt að reka áróðursstarfssemi í
ríki Bolschevikanna. Vegna þess-
arar fyrirætlunar virðast Pólverj.
ar nú skyndilega hafa fjarlægzt
Þýzkaland og vera að stofna til
vináttu við Rússa, enda virðist það
vera augljóst, að stefna Þýzka-
lands gagnvart Ukraine leiðir til
glötunar fyrir Pólland, ef hún nær
fram að ganga.
Með því að ná undir sig Ukraine
vilja Þjóðverjar bola Rússum
burtu frá Svartahafi og skilja
Kaukasus frá Sovétríkinu og ná
með því yfirráðunum þar og í allri
Vestur-Asíu.
Skúli Þórðarson er fæddur 21. júní
árið 1900, að Arnórsstöðum á Jökuldal.
Stundaði nám á alþýðuskólanum á Eið-
um 1919—21. Lauk stúdentsprófi í Khöfn
1925, og meistaraprófi í sagnfræði 1936.
Hefir síðan fengizt við blaðamennsku,
sögurannsóknir og kennslustörf í Khöfn
og Reykjavík.
99