Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.06.1938, Side 28
1 AKA 7. árgangur . 2. úrsfjórðungur
^indanna:
Ufskoðun prófessors
J. B. §. flaldaaie
Erindi þetta var flutt í brezka útvarpið i )
nóv. 1929 og var prentað í bók Haldanes, The \
Inequality of Man. Það er úr flokki erinda um \
svipað efni, sem flutt voru af G. Lowes )
Dickinson, Dean Inge, Bernhard Shaw, H. G. \
Wells og Sir Oliver Lodge.
Höfundurinn er f. 1892, fékk háskólamennt- ■
un i Oxford, tók þátt í stríðinu, en hefir síðan '
verið háskólakennari í lífeðlisfrœði, efnafræði \
og arfgengisfrœði. í frístundum sínum stund- (
ar hann garðyrkju af miklu kappi. J. E. í
Eg hlýt að ýmsu leyti
að skera mig frá
hinum, er taka þátt í
þessum rökræðum. í
fyrsta lagi er ég 27 árum
yngri en sá yngsti af
þeim, svo að ég er eini
fulltrúinn fyrir þá kyn-
slóð, sem missti sína
beztu syni í styrjöldinni
miklu. Og ég er vaxinn
upp úr öðrum and-
legum jarðvegi. Sem
barn var ég ekki alinn upp við
lögmál neinna trúarbragða, held-
ur á heimili, þar sem vísindi og
heimspeki skipuðu öndvegi í stað
átrúnaðar. Sem drengur átti ég
óskorað frelsi til þess að kynnast
nýjum hugmyndum og þess vegna
finnst mér nú, hvorki Einstein
vera óskiljanlegur né Freud frá-
fælandi. Sem unglingur tók ég
þátt í stríðinu og lærði að meta
ýmislegt í fari manna, sem
menntamenn komast að jafnaði
ekki í kynni við. Sem fullorðinn
maður er ég líffræðingur og lít á
umheiminn af sjónarhóli, sem
gefur mér óvenjulegt útsýni og,
106
að því er ég vona, ekki allskost-
ar villandi.
*
Til þess að lýsa heiminum í
stuttu máli, eins og hann kemur
mér fyrir sjónir, get ég ekki hjá
því komizt, að nota fullyrðing-
ar. Ég efast ekki um, að sum-
ar af staðhæfingum mínum séu
rangar. Þetta verður nægilega
ljóst af því að líta yfir þær skoð-
anir, sem lærðir menn á undan-
förnum öldum hafa haldið sann-
ar. Það er ekki hægt að lifa lífinu
án þess að þar komizt að hitt og
annað trúarkennt. — En and-
lega heiðarlegur maður hlýtur