Verktækni - 2020, Síða 11

Verktækni - 2020, Síða 11
11 3.2. Dreifing og svörun Spurningalistinn var saminn á ensku og þýddur yfir á íslensku. Spurningalistinn var þýddur til baka á ensku af öðrum aðila til að gæta samræmis í spurningum milli landa. Úrbætur voru gerðar og spurningalistanum síðan dreift meðal almennings um alla Evrópu á hverju tungumáli fyrir sig. Þar sem gögnum var safnað frá mars 2020 til júni 2020 á meðan áhrif COVID-19 stóðu í hæstu hæðum voru þátttakendur beðnir að hugsa til ferða áður en veiran raskaði þeim. Spurningalistanum var dreift hérlendis til félagsmanna Verkfræðingafélags Íslands, starfsfólks Vegagerðarinnar, starfsfólks Skipulagsstofnunar, starfsfólks og nemenda Háskóla Íslands, starfsfólks og nemenda Landbúnaðarháskóla Íslands, aðildarfyrirtækja Bílgreinasambandsins og fleiri aðila auk persónulegra tengiliða höfunda skv. Thomopoulos et al. (2020). Svörun var góð. 1.068 aðilar opnuðu spurningalistann en 561 svarandi búsettir á Íslandi kláruðu spurningalistann, rúm 0,15% íbúa, og má því gera ráð fyrir u.þ.b. 2,5% svörunarhlutfalli. Rannsóknin var send um þann tíma sem nemendur HÍ fóru í sumarleyfi, e.t.v. eru tölurnar þar ofmetnar. Ekki var boðin þóknun fyrir svörun spurningalistans. Tafla 1 tekur saman stærðir hópanna sem dreift var til. Svörun var góð. 1.068 aðilar opnuðu spurningalistann en 561 svarandi búsettir á Íslandi kláruðu spurningalistann, rúm 0,15% íbúa, og má því gera ráð fyrir u.þ.b. 2,5% svörunarhlutfalli. Rannsóknin var send um þann tíma sem nemendur HÍ fóru í sumarleyfi, e.t.v. eru tölurnar þar ofmetnar. Ekki var boðin þóknun fyrir svörun spurningalistans. Tafla 1: Dreifingaraðilar og stærð hóps sem dreift var til Dreifingaraðili Stærð hóps Verkfræðingafélag Íslands 4‘000 Vegagerðin 350 Skipulagsstofnun 30 Háskóli Íslands (starfsmenn) 1‘676 Háskóli Íslands (nemendur) 14‘992 Bílgreinasambandið 119 Landbúnaðarháskóli Íslands 350 Persónulegir tengiliðir 1‘000 Samtals . Uþb. 22.500 Svarhlutfall 2.5% Reynt var að ná til fleiri félagasamtaka en þeirra sem greint er frá í ofangreindri töflu til að fá sem fjölbreyttastan hóp svarenda. Fylgst var með lýðfræðilegri lýsingu úrtaksins eftir því sem svörum var safnað og hún borin saman við lýðfræðilega lýsingu Hagstofunnar (Hagstofa, 2020). Þá var athugað hvort grípa þyrfti inn í, þ.e. óska eftir svörun sérstaklega frá ákveðnum samfélagshópum. Ekki var talin vera þörf á slíku, þó vissulega hafi verið reynt að ná til breiðari hóps. Sjá má lýðfræðilega lýsingu úrtaksins í næsta kafla.

x

Verktækni

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verktækni
https://timarit.is/publication/957

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.