Verktækni - 2020, Page 25

Verktækni - 2020, Page 25
25 Mynd 11: Viðhorf svarenda gagnvart prófunum sjálfakandi ökutækja í grennd við sig Við mat á því hvort ferðamáti henti farþegum þarf að taka tillit til ferðatíma, ferðakostnaðar, tíðni ferða, áreiðanleika ferðamáta og fleiri þátta. Fyrir sjálfakandi almenningsvagn í Stokkhólmi kynntu Guo, Susilo, Antoniou & Brenden (2020) upplifun notenda af þjónustunni. Þau telja upp (1) ferðahraða og ferðatíma, (2) áreiðanleika og hentugleika og (3) öryggistilfinningu sem helstu þætti til að útskýra notkun þjónustunnar. 5. Umræða 5.1. Framtíð samgangna Margir rannsakendur hafa sýnt fram á mikinn kerfislegan ávinning sem ná má þökk sé sjálfakandi tækni ef farþegar nýta bíla í deiliþjónustu í stað bíla í einkaeigu (Bösch et al, 2016; OECD, 2015). Draga má úr umferð ef farþegar sjá aukið notagildi í því að ferðast í samfloti í stað þess að ferðast einir.1 Alls ekki er víst að sú verði raunin. Til þess að vinna að slíkum ávinningi gætu stjórnvöld sett sér þau markmið að draga úr bílaeign (sér í lagi fjölda bíla á heimili) og auka markaðshlutdeild ferða í samfloti og/eða almenningssamgangna. Ef svo er, þá má nýta Mynd 6 fyrir stjórnvöld til að vita hvenær þau vilja grípa inn í. Ef rýna á betur í bílaeign íbúa þarf þó að hafa í huga öryggissjónarmið sem fram koma t.d. í niðurstöðukafla „Öryggi á meðan á ferð stendur“ og lýðfræðileg sjónarmið hvers heimilishalds. Ýmis heimili reiða sig t.d. á bílinn til að flytja yngri börn milli staða og í ferðir til 1 Höfundar leggja engan dóm á sýn einstaklinga til að eiga farartæki, eða hversu mörg farartæki, en óneitanlega er flutningsgeta samgöngukerfis í persónum talin meiri ef fleiri einstaklingar deila einum bíl í samanburði við að hver einstaklingur ferðist einn í bíl, að öðru óbreyttu.

x

Verktækni

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Verktækni
https://timarit.is/publication/957

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.