Verktækni - 2020, Qupperneq 45
45
reglulega við hvern annan sem og fyrri nemendur og nemendur í liðum erlendra háskóla
(Fyrirbyggjandi félagsmótunarhegðun = 2).
Það má því segja að mannleg færni nemenda sé mjög góð og það ríki gott traust milli
nemendanna og að þeir hafi jákvætt viðhorf til samstarfsins (Viðhorf = 2). Nemendahópurinn
samanstendur af nemendum með mismunandi bakgrunn og hlutfall kvenkyns nemenda hefur
sveiflast á milli 20-40% - sem er mun hærra en hjá erlendu liðunum. Samkvæmt þessu má
fullyrða að nemendahópurinn hafi næga hugræna fjölbreytni til að byggja upp og viðhalda
nýstárlegu og blómlegu teymi (Mannleg hæfni = 1). Einnig er hægt að fullyrða að
nemendurnir hafi almennt gott minni, góða athygli og góð skynjunarferli - þ.e.a.s. góða
örhugræna þætti. Hins vegar skortir á hugræna getu þeirra, til dæmis þegar kemur að
lausnum vandamála, rökhugsun og að læra af reynslunni. Þetta er líklegast vegna þess að
nemendur hafa ekki fengið almennilega kennslu og þjálfun í þessum þáttum (Hugrænir þættir
= 2).
o Verk (2/10)
Fjöldi nemenda sem taka þátt í námskeiðinu hefur verið á bilinu 30 til 40. Af þeim eru iðulega
einn eða tveir nemendur sem hafa viðeigandi reynslu, eða menntun, og 5-6 nemendur sem
hafa áður tekið þátt í námskeiðinu. Nemendahópurinn er mun minni en lið evrópsku
háskólanna sem nemendurnir vilja bera sig saman við og etja kappi við. Tiltölulega fámennt
lið með reynslulitla nemendur getur ómögulega samræmt færni nemenda við verkefni og
úrræði. Umfangið er því hverfandi. Ennfremur, sú staðreynd að lið Háskóla Íslands
samanstendur af fámennu teymi reynslulítilla nemenda sem hafa stuttan þátttökutíma í
verkefninu þýðir að nemendurnir eru undir miklu vinnuálagi - miklu meira en sex ECTS
einingar sem þeir fá yfir veturinn (sem samsvara 150-180 tímum á hvern nemanda).
Verkefnin sem nemendur þurfa að ljúka á skólaárinu eru mörg, krefjandi og umfangsmikil. Á
innan við einu ári þurfa nemendur að skipuleggja vinnuna þannig að þeir geti: Klárað að meta
hönnun síðasta bíls, endurhannað nýjan bíl, aflað fjár til að smíða endurbættan bíl, prófað og
hugsanlega lagað nýja hönnun, skipulagt og undirbúið sig fyrir keppnir og keppt á keppnum
erlendis. Þessu til viðbótar verða nemendurnir að standast próf keppnishaldara til að öðlast
keppnisrétt og nemendur þurfa einnig að skila skýrslum til dómara til að fá hönnun sína
samþykkta (Umfang = 0).
Eins og áður segir þá eru nemendurnir undir miklu vinnuálagi. Fæstir nemendanna búa yfir
reynslu eða menntun á sviðinu sem gerir alla áætlanagerð erfiða. Þeir geta illa metið hversu
mikill tími fer í ákveðin verk (reynsluleysi einkennist oft af bjartsýni). Vegna þessa þá hefur
nánast öll árin verið of knappur tími áætlaður í verk. Of knappur tími og sú staðreynd að
nemendur eru of fáir miðað við öll verkefnin sem þarf að klára hefur orðið til þess að
ákveðnum verkefnum hefur verið sleppt. Til að mynda prófunum á bíl áður en hann fer á
keppni. Skortur á skjölun verkefnisins – heildarhönnun, prófunaráætlun og endurgjöf frá
keppnum – hefur orðið til þess að framþróun verkefnisins hefur verið mjög hæg (Vinnuálag =
0).
Áætlanagerð er mjög erfið því reynsluleysi nemenda veldur því að þeir geta illa metið, á
raunsæjan hátt, þann tíma sem þarf í verk. Reynsla síðustu ára hefur einnig sýnt að
reynsluleysi nemenda einkennist oft af bjartsýni og vegna þessa þá hefur nánast öll árin verið
of knappur tími áætlaður í verk – þó nemendur hafi upplýsingar frá fyrri árum. Of knappur tími
til viðbótar við galla í áætlun (til dæmis þegar verk vantar) og þá staðreynd að
nemendahópurinn er of fámennur miðað við öll verkefnin sem þarf að klára, hefur orðið til
þess að ákveðnum verkefnum hefur verið sleppt. Til dæmis prófunum á bíl áður en hann fer í
keppni. Í nokkur skipti hefur bíllinn verið sendur í keppni áður en hann var fyllilega settur
saman (Samhengi verka og skjala = 0).