Verktækni - 2020, Side 47
47
Jöfn vigtun frammistöðuþátta
Þáttahópar Stig Hámark Einkunn %
Liðsstjórnun 3 16 19%
Liðsumhverfi 5 10 50%
Innri virkni liðs 12 18 67%
Liðsskipulag 7 14 50%
Liðsmeðlimir 9 12 75%
Verk 2 10 20%
Samskipti 5 6 83%
43 86 50%
Heildareinkunnina má einnig ákvarða með því að leggja jafnt vægi á þáttahópana og þá
verður einkunnin 52%. Munurinn er ekki mikill en með því að leggja jafnt vægi á hópana er
einstaka frammistöðuþáttum gefið mismunandi vægi – því hóparnir hafa mismarga þætti.
Höfundar telja frekari þróun þurfi á aðferðafræðinni og rannsóknir á mikilvægi þáttahópa á
heildarframmistöðuna áður en jafnt vægi megi setja á hópana.
Mynd 13 sýnir niðurstöðurnar á ratstjárriti, en ratsjárrit henta vel fyrir myndræna framsetningu
á fjölþátta niðurstöðum. Litirnir standa, eins og áður, fyrir lágmarks (rautt), meðal (gult) og
góða (hvítt) frammistöðu. Aðferðafræðin gefur, eins og sjá má útfrá Tafla 7 og Mynd 13, að
það er einungis viðunandi frammistaða í þremur þáttahópum af sjö, þ.e. innri virkni liðs,
samskiptum og liðsmeðlimum. Niðurstöðurnar benda til þess að nemendateymið eigi við
alvarleg frammistöðuvandamál í tveimur þáttahópum, þ.e., Liðsstjórnun og Verkum, og að
ýmislegt megi lagfæra í þáttahópunum Liðsumhverfi og Liðsskipulag.