Verktækni - 2020, Side 48
48
Mynd 13 – Ratsjármynd sem sýnir þáttahópana 7 og einkunnir þeirra.
Samantekt
Í þessari grein er beitt tilviksrannsókn til að sýna hvernig hægt er að nota aðferðafræði sem
höfundar hafa þróað til að meta frammistöðu nemendateyma í viðamiklum
verkefnisnámskeiðum. Tilvikið sem við notuðum var nemendadrifið verkefnisnámskeið í
verkfræði sem hefur verið kennt í tíu ár samfleytt. Námskeiðið er valnámskeið sem nær yfir
heilt skólaár. Um 40 nemendur taka þátt í námskeiðinu og yfir veturinn sjá nemendurnir um
að (endur)hanna og smíða eins sætis kappakstursbíl og undirbúa sig fyrir keppni á Formula
Student nemendakeppnum erlendis. Námskeiðið var fyrst kennt skólaárið 2010-2011 og
þurftu nemendur að læra hratt reglur keppninnar, lykilfræðin, handverkið við að smíða bíl og
auk þess að skipuleggja erlendar keppnisferðir. Á um tveimur árum höfðu nemendur aflað
sér nægjanlegrar þekkingar og reynslu til að smíða bíl sem uppfyllti reglur keppninnar og
öryggiskröfur.
Markmið námskeiðsins hvert skólaár hefur verið það sama í gegnum árin - að bæta síðustu
hönnun. Hins vegar hefur frammistaða nemenda á keppnum – mæld í stigum sem fengust á
keppnunum – flökt í kringum sama gildi öll árin og síðustu árin farið örlítið lækkandi. Í
gegnum árin lögðu kennararnir sig fram um að bæta árangur liðsins með því að fá nemendur
til að breyta starfsaðferðum sínum sem höfðu verið óbreyttar frá fyrstu árunum. Kennararnir
lögðu áherslu á að nemendur settu sér skýr og mælanleg markmið og byggðu
hönnunarákvarðanir sína á mælingum. Þessum tillögum mættu nemendur með tregðu og
mótstöðu. Kennararnir voru meðvitaðir um nokkur frammistöðuvandamál innan
nemendahópsins en þeir höfðu ekki framkvæmt kerfisbundið mat og höfðu þar af leiðandi
ekki heildarsýn á vandamálið.
0
0,1
0,2
0,3
0,4
0,5
0,6
0,7
0,8
0,9
1
Innri virkni liðs
Samskipti
Liðsmeðlimir
Verk Liðsstjórnun
Liðsskipulag
Liðsumhverfi