Verktækni - 2020, Blaðsíða 51
51
Ísland í dag – Nærri tveimur áratugum síðar
Ólafur Hjálmarssona, Ásta Logadóttirb, Kristinn Alexanderssonc, Jóhann Björn
Jóhannssonc.
a Trivium ráðgjöf, Borgartúni 20, 105 Reykjavík.
b Lota verkfræðistofa, Guðríðarstíg 2-4, 113 Reykjavík.
cVSÓ ráðgjöf, Borgartúni 20, 105 Reykjavík.
Fyrirspurnir:
Ólafur Hjálmarsson
olafur@trivium.is
Greinin barst 27. febrúar 2020.
Í marsmánuði 2001 skrifaði einn greinarhöfunda ásamt fleirum grein í Verktækni sem bar
nafnið: Ísland í dag – Auknar kröfur til húsa og hönnuða (Verktækni 7. árg. 2001 3. tbl. bls.
12-13. Vefslóð: https://timarit.is/page/5824435#page/n11/mode/2up)
Í umræddri grein er litið til þáverandi stöðu nýrra ráðgjafasviða á íslenskum
byggingamarkaði, sem voru brunahönnun, hljóðhönnun og ráðgjöf í byggingareðlisfræði. Rök
voru færð fyrir því að full ástæða væri til þess að leita sér ráðgjafar á þessum sviðum við
húsbyggingar, ekki síður en á hefðbundnum hönnunarsviðum burðarþols, lagna og
rafmagns.
Nú eru um 19 ár liðin og segja má að staða bruna- og hljóðhönnunar hafi tekið
stakkaskiptum. Í öllum stærri verkum er það orðið viðtekið að leita til bruna- og hljóðhönnuða.
Opinbert eftirlit er mjög virkt á sviði brunavarna en stjórnsýslan getur gert betur í eftirliti með
fullnægjandi hljóðhönnun. Það stendur vonandi til bóta.
Það er sláandi að ráðgjöf og hönnun á sviði byggingareðlisfræði hefur nánast ekkert fleytt
fram á þessum bráðum tveimur áratugum. Því verður að breyta. Við erum að gera alvarleg
mistök sem leiða af sér lekavandamál, raka- og mygluskemmdir sem kosta samfélag okkar
formúur.