Verktækni - 2020, Page 53
53
er mjög áríðandi. Hér erum við sömuleiðis að gera dýr mistök sem vönduð ráðgjöf gæti
komið í veg fyrir með litlum tilkostnaði.
Í dag vitum við að góð lýsingarhönnun bætir
lífsgæði með því að veita góða upplifun rýma,
bætt afköst og svefngæði. Dagsljósið er besta
lýsing sem hægt er að fá yfir daginn og þá
sérstaklega að morgni til. Á Íslandi var á árum
áður dagsljós í byggingum tryggt með því að
byggja lágt og hafa gott bil á milli húsa. Með
slíku borgarskipulagi duga einfaldar
þumaputtareglur til að tryggja næga dagsbirtu í
húsum.
Á síðustu árum hefur íslenskur byggingariðnaður
þróast í þá átt að byggja sem flesta fermetra á
hverri lóð; bæði á hverri hæð og með hærri
byggingum. Það er hér sem vandamálin við að
tryggja nægt dagsljós í byggingum byrja. Þegar
borgarskipulag hvetur til þéttingar byggðar þýðir
ekki lengur að treysta á úreltar þumalputtareglur
til að tryggja dagsljós í húsum. Það segir sig
sjálft að þegar háar og breiðar byggingar standa
nærri hvor annarri er dagsljós skert; sérstaklega á neðri hæðum. Þétting byggðar er vel þekkt
á suðrænum slóðum með hærri sólstöðu en okkar. Þar er markmiðið að takmarka
hitamyndun í húsum frá sólarljósi; enda dvelja íbúar á þeim slóðum langtímum saman
utandyra; þar sem þeir fá nægt dagsljós. Ólíkt því sem hér er.
Á Íslandi er veðurfar sem ýtir undir inniveru og því sérstaklega mikilvægt að tryggja nægt
flæði dagsljóss inn í byggingar. Lág sólstaða og miklar sveiflur í dagsljósastundum á
sólahring gera þær kröfur til okkar við tryggjum nægt dagsljós við þéttingu byggðar. Með því
að horfa fram hjá því erum við hreinlega að skerða lífsgæði íbúa. Fyrir umrædda þéttingu
byggðar er núgildandi byggingarreglugerð úrelt í þessu efni. Góð raflýsing tekur mið að
dagslýsingu í rýminu en kemur aldrei í staðinn fyrir hana; nema í þeim fáu tilvikum sem þar
sem dagsljósið skaðar starfsemina.
Það er viðeigandi að enda þessa grein með bráðum 20 ára gömlum lokaorðum: „Hér verður
okkur, ágætu arkitektar, verkfræðingar og tæknifræðingar, að renna blóðið til skyldunnar:
Komum málum í betra horf og ræðum stöðuna í alvöru við viðskiptavini okkar og verkkaupa.
Við getum ekki aðgerðalaus látið almannaheill lönd og leið. Í samfélagi sem okkar, þar sem
hver og einn verður að eignast sína eigin íbúð, eru þeir fjölmargir sem tapa stórum hluta
eigna sinna vegna þess að við höfum ekki komið réttri þekkingu nægilega vel á framfæri.
Hagsmunir fyrirtækja og opinberra aðila eru þeir sömu.“