Morgunblaðið - 21.12.2022, Side 2

Morgunblaðið - 21.12.2022, Side 2
FRÉTTIR Innlent2 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 2022 Þú finnur fallegar og vandaðar jólagjafir hjá Eirvík Suðurlandsbraut 20 / Reykjavík / Sími 588 0200 / eirvik.is Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.isMenning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.ismbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningarmbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Erlendir ríkisborgarar sem skráðir voru með búsetu hér á landi 1. desember síðastliðinn voru alls 64.735. Þeim hafði fjölgað um 9.758 á einu ári, frá 1. desember 2021, eða um 17,7%. Á sama tímabili fjölgaði íslenskum ríkisborgurum um 1.564 eða 0,5%. Þetta kemur fram í frétt Þjóðskrár (skra.is). Úkraínskum ríkisborgur- um fjölgaði langmest eða um 862,3% frá 1. desember 2021. Í byrjun þessa mánaðar voru alls 2.300 úkraínskir ríkisborgarar skráðir til heimilis á Íslandi samkvæmt Þjóðskrá. Það er fjölgun um 2.061 einstakling á tímabilinu. 1.251 frá Venesúela Ríkisborgurum frá Venesúela sem búa hér á landi hefur einnig fjölgað umtalsvert mikið eða um 174,9% á umræddu tímabili. Nú er 1.251 einstaklingur með venesúelskt ríkisfang búsettur hér á landi. Þá fjölgaði íbúum frá Palestínu töluvert, það er um 156 einstaklinga eða um 96,3%. Pólskum ríkisborgurum fjölg- aði á ofangreindu tímabili um 2.124 einstaklinga eða um 10,0%. Pólskir ríkisborgarar eru nú 6% landsmanna. Þjóðskrá birtir töflu um fjölda íbúa sem voru búsettir hér 1. desember 2022 og eru þeir flokk- aðir eftir ríkisfangi. Þar má m.a. sjá að Litháum fjölgaði um 9,1% á milli ára og voru 5.202 hinn 1. desember sl. Rúmenum sem búa hér fjölgaði um 877 (31,9%) á milli ára og eru þeir orðnir 3.629. gudni@mbl.is lEru orðnir 17,7% þjóðarinnar lFjölgun frá Úkraínu um 862% Erlendum ríkis- borgurum fjölgar Pólland 23.315 (36%) Litháen 5.202 (8%) Rúmenía 3.629 (6%) Lettland 2.688 (4%) Erlendir ríkisborgarar með búsetu á landinu Alls 64.735 1. des. 2022 Úkraína 2.300 (4%) Annað þjóðerni 27.601 (42%)H ei m ild : Þj óð sk rá Sakar and- stöðuna um leikrit Einar Þorsteinsson, starfandi borgarstjóri Reykjavíkur, sakaði borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um að setja leikrit á svið og ætla meirihlutanum annarlegan ásetning varðandi umræðubann sem var samþykkt í síðustu viku um málefni Ljósleiðarans, sem er dótturfélag OR, í borgarstjórn. „Mér þykir leitt að Sjálfstæðis- flokkurinn sé að setja upp þetta leikrit hér í borgarstjórn. Það er ómálefnalegt og ekki í þeim anda sem við lögðum upp með í þetta ferli,“ sagði Einar. Marta Guðjónsdóttir, borgarfull- trúi Sjálfstæðisflokksins, vísaði því á bug að flokkurinn væri að setja á svið leikrit. „Hér erum við að gæta hagsmuna borgarbúa, eins og okkur ber að gera.“ Kjartan Magnússon, borgarfull- trúi Sjálfstæðisflokksins, gagnrýndi það að meirihlutinn hefði lagt bann við því að rætt yrði um málefni Ljósleiðarans á borgarstjórnarfundi í gær. Telur Kjartan að með slíku banni gerist meirihlutinn sekur um valdníðslu og einræðistilburði. Engin fordæmi séu fyrir slíku banni í borgarstjórn. lUmdeilt umræðu- bann meirihlutans Morgunblaðið/Eggert Borgarpólitík Meirihlutinn hafnaði að ræða um málefni Ljósleiðarans. Hægt hefði verið að halda úti fullri starfsemi á Keflavíkurflugvelli í gær og fyrradag, fyrir utan stutt tímabil aðfaranótt þriðjudagsins. Lokun Reykjanesbrautar varð aftur á móti til þess að öllu flugi var aflýst í fyrradag og hluta gærdagsins. Fólk komst ekki á völlinn vegna lokunarinnar og gátu starfsmenn sömuleiðis ekki ferðast til vinnu um Reykjanesbrautina, sem olli undirmönnun á vellinum. „Það sem breytist í veðurað- gerðastjórninni hjá okkur er að við munum fá Vegagerðina í samstarf til framtíðar,“ segir Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia, í samtali við Morgunblaðið. Vegagerðin ákvað ekki í tómarúmi að loka Reykjanesbrautinni í fyrradag, þar sem það þótti nauðsynlegt til að tryggja öryggi þar að sögn upplýs- ingafulltrúa Vegagerðarinnar, G. Péturs Matthíassonar. „Við vitum náttúrlega hvert mik- ilvægi Reykjanesbrautar er, en flugfélögin hafa ekkert með þessa ákvörðun að gera. Það var búið að opna samhæfingarmiðstöð almanna- varna í Skógarhlíð. Þótt við séum veg- haldarinn og stýrum lokunum þá er þetta ekki ákvörðun sem við tökum í tómarúmi,“ segir Pétur og bætir við að lögregla og almannavarnir séu með í ráðum. Ekki liggur fyrir hvenær flugferðir Icelandair verða komnar aftur á áætl- un, en flugfélagið hyggst leigja tvær breiðþotur til þess að mæta uppsafn- aðri ferðaþörf. Vélarnar verða teknar í gagnið í dag. Þetta sagði Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, í samtali við mbl.is í gærkvöldi. Hótel Keflavík yfirfullt í gær „Við erum í mjög góðum málum. Við fengum gistingu hér á hótelinu og þurfum ekki að vera á vellinum eða í fjöldahjálparstöð,“ segir Mariusz, sem mbl.is ræddi við í gær. Hann er á meðal strandaglópa á Hótel Keflavík eftir að flugferðum gærdagsins var aflýst. Hann og fjölskylda hans eru á leið til Póllands í jólafrí. „Þegar búið var að aflýsa fluginu hékk ég bara á línunni hjá Iceland- air til þess að fá nýtt flug. Síðan var bara að taka næsta símtal og redda gistingu,“ segir Mariusz, sem bjó svo vel að þekkja til á hótelinu, svo hann fékk gistingu fyrir sig og fjölskyldu sína. Hótel Keflavík var í gær troðfullt af ferðamönnum. „Hótelið er alveg pakkað og í gær var hér verið að dreifa koddum og sængum til fólks sem beið í lobbíinu og var ekki með gistingu. Það er hugs- að vel um alla sem lentu hér. Hótelið á stórt hrós skilið.“ lFlugvöllurinn hefði getað verið opinn, hefði Reykjanesbraut ekki verið lokað lIsavia hyggst bæta samráð við VegagerðinalLokunin þó talin nauðsynleg Flugfært en ekki ökufært Veronika Steinunn Magnúsdóttir veronika@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Ófært Víða hefur verið ófært vegna veðursins, þar á meðal á Reykjanesbraut. Því var mörgum flugferðum aflýst. Brotin rúða Þessi fólksbíll varð illa úti á vegbrún Reykjanesbrautar og situr þar á kafi í snjóruðningi eftir atburðarás síðustu daga.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.