Morgunblaðið - 21.12.2022, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 21.12.2022, Blaðsíða 31
MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 2022 Í Núningi er að finna draum- kenndari ljóð í bland við raunsæið og þannig verður togstreitan á milli þess hlutlæga og þess huglæga sýni- leg. Í verkinu leynist líka fínlegur og snjall húmor sem er til marks um hugvit skáldsins. Í sjötta og síðasta „Iðnaðarljóð- inu“ segir: „Engir veggir eru sléttir, / eitthvað liggur undir“ (55). Sama hversu mikið er sparslað er aldrei alveg hægt að má út það sem liggur að baki. Þrátt fyrir tilraunir til þess að hafa allt slétt og fellt á yfir- borðinu leyna veggirnir ýmsu. Þessa mynd má yfirfæra á mörg ljóðanna; þrátt fyrir að þau séu aðgengileg þá leynist margt undir yfirborðinu. Myndmálið er ekki sérstaklega flókið en þó leynast þar hugmyndir sem fanga mannlega tilvist á frumlegan hátt. Einkenni góðra ljóðabóka er að þær má lesa aftur og aftur án þess að þær verði endanlega krufnar til mergjar og á það svo sannarlega við um þetta verk Elínar Eddu, Núning. N ý ljóðabók Elínar Eddu Þorsteinsdóttur, Núning- ur, er verk sem leynir á sér og hefur að geyma forvitnilegar hugmyndir þar sem framkvæmdir og tilfinningar takast á. Fyrsta ljóðabók Elínar Eddu, Hamingjan leit við og beit mig, kom út árið 2016. Hún hefur einnig gefið út myndasög- ur, þeirra þekktastar eru bækurnar um Gombra. Hún myndlýsti einnig ljóðabókina Klón (2021), sem er samvinnuverk- efni þeirra Ing- ólfs Eiríkssonar. Elín Edda er grafískur hönnuður og öll umgjörð verksins ber þess merki og einstaka ljóð líka. Til dæmis bylgjast ljóðið „Hljóð“ (10- 11) yfir opnuna, sem vekur hug- renningatengsl við einhvers konar hljóðbylgjur. Annað ljóð, „Þrír bjórar, eitt skot og eitt freyðivíns- glas“ (48-49), hlykkjast um síðuna og með þeim teiknar Elín glösin sem titillinn gefur til kynna. Sýn hönnuðarins á heiminn fær líka stundum að vera í forgrunni, ljóð- mælandinn tekur eftir formum og litum og varpar ljósi á þá hluta ver- aldarinnar sem eru áþreifanlegir. Titillinn Núningur og mosagræn kápan gefa um leið fyrirheit um efn- islegan myndheim ljóðabókarinnar og jarðbundið myndmálið. Það er þó ekki náttúran sem er í fyrirrúmi heldur frekar hið manngerða. Hinu manngerða er þó óhjákvæmilega stillt upp gagnvart náttúrunni. Þessar andstæður kallast á í sífellu. Núningi fylgir bókamerki sem jafnframt er reglustika og það fer inntaki verksins vel. Í verkinu er hið manngerða landslag sem og innra landslag mannsins vegið, metið og mælt. Verkinu er skipt í sex hluta og hefst hver þeirra á númeruðu „Iðnaðarljóði“. Þau eru á svörtum flötum sem marka skil í verkinu. Iðnaðarljóðin eru í raun ljóðabálkur þar sem sama myndmálið er gegn- umgangandi. Verið er að sparsla vegg í gömlu húsi og út frá þeirri einföldu gjörð spinnur höfundurinn. Efnisheimurinn er leið ljóðmæl- andans inn í önnur viðfangsefni, bæði í meitluðum ljóðum og þéttari prósa. Hann blandar saman þessu myndsviði iðnaðarins og ýmsum huglægari og innhverfari myndsvið- um, svo sem sviði tilfinninganna. Gott dæmi um þetta má finna í þriðja „Iðnaðarljóðinu“: Hreinskilni er allt of lengi að verða til Það þarfmargar umferðir af hugsunum Það þarf að slípa ámilli svo skilin sjáist ekki Það næst ekki ef viðætlum að flytja inn í september (25) Elín Edda hefur slípað ljóðin vel til. Með því að nýta hugmyndir um húsbyggingu og iðnað setur hún fram stórar hugmyndir með hvers- dagslegu orðfæri. Það er þó ekki þannig að öll ljóðin hverfist um þennan myndheim framkvæmda, efnis og forms. Til dæmis er ljóðið „Lífið, við og þú“ eins blátt áfram og huglægt og verið getur. Lífið er óþarflega hreinskilið en við óþarflega trúverðug og þú óþarflega auðtrúa (38) Þarna kemur hið innhverfa og mannlega í ljós, mótvægið við efnisheiminn. Höfundurinn varpar nefnilega á sinn hátt ljósi á það hver við erum, á breyskleika mannsins og flókna tilvist hans. Með því að tefla fram þessum andstæðum, hinu huglæga og hinu hlutlæga, tekst skáldinu að fjalla á frjóan hátt um skynjun mannsins á heiminum sem og stöðu hans á þessu tímabili í jarðsögunni. Framkvæmdir í innra landslagi BÆKUR RAGNHEIÐUR BIRGISDÓTTIR Ljóðabók Núningur Eftir Elínu Eddu Þorsteinsdóttur. Nóvember útgáfa, 2022. Kilja, 63 bls. Ljósmynd/Kristinn Magnússon Skáldið Elín Edda setur manngert landslag í samhengi við náttúru og tilfinningalíf í ljóðabókinni Núningi. Helgafell fasteignasala, Stórhöfði 33, Sími 566 0000 • www.helgafellfasteignasala.is ÞAÐ SKIPTIR MÁLI... Sýningin Bráðmeð nýjum verkum eftir Harald Jónsson myndlistar- mann stendur nú yfir í Glerhús- inu, nýju sýningarrými að Vestur- götu 33b. Verkin á sýningunni hefur Haraldur unnið í keramik, málmflögur, gúmmí, hljóð og ljós, sem í tilkynningu segir að fléttist saman við rýmið í marglaga heild. „Lýsing sýningarinnar er sjálf dagsbirtan sem safnast saman er hún seytlar inn um glugga og gættir, ljósop sem hreyfist á hraða sólargangsins. Á vetrarsólstöðum í dag, 21. desember, „lokast ljósopið og hægasta ljósmynd á norðurhveli jarðar framkallast í myrkraherberginu sem býr bak við augu hvers og eins sýningar- gests.“ Af þessu tilefni býður Glerhúsið til viðburðar á staðnum milli klukkan 15 og 17 í dag. Þegar ljósopið lokast íGlerhúsi Bráð Frá sýningu Haraldar Jónssonar í Glerhúsinu að Vesturgötu 33b. Boðið er til viðburðar í dag, á stysta degi ársins, þegar dagsbirtu nýtur. Rökkursýning lista- fólks í Fyrirbæri „Rökkur“ er yfirskrift samsýningar fjölda mynd- listarmanna sem hefur verið opnuð í húsa- kynnum sem kallast Fyrir- bæri og er með vinnustofur og gallerí, þar sem sýningin er haldin, áÆgisgötu 7. Sýningin er opin frá kl. 18 til 22 fram á Þorláksmessukvöld. Meðal sýnenda eru Ásta Ólafsdóttir, Hallsteinn Sigurðsson, Berglind Ágústsdóttir, Þrándur Þórarins- son, Habby Ósk, Hrund Atladótt- ir, Eva Ísleifs, Rakel McMahon og Egill Sæbjörnsson. Hallsteinn Sigurðsson Helgi Hjaltalín sýn- ir í Gallerí Skilti Þið öll er heiti sýningar sem myndlistarmaðurinn Helgi Hjaltalín opnar í Gallerý Skilti í dag, miðvikudag, klukkan 17 til 19. Gallerý Skilti er utandyra, á Dugguvogi 43, og rekið af Birgi Snæbiri Birgissyni myndlistar- manni og Sigrúnu Sigvaldadóttur hönnuði. Helgi Hjaltalín Eyjólfsson nam myndlist við MHÍ, í Düsseldorf, í Hollandi og í San Francisco. Hann hefur verið virkur í sýningarhaldi hér á landi um langt árabil og eru verk eftir hann í eigu allra helstu listasafna landsins. Sýning hans í Gallerí Skilti stendur fram í júní og segist hann vinna með það í verkinu að sólarljósið eyði öllu og að tíminn breyti skilningi á orðum ogmyndum. Morgunblaðið/Einar Falur Listamaðurinn Helgi Hjaltalín sýnir nýtt verk utandyra í Dugguvogi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.