Morgunblaðið - 21.12.2022, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 21.12.2022, Blaðsíða 26
ÍÞRÓTTIR26 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 2022 EFSTAR Í HELSTU TÖLFRÆÐIÞÁTTUM Í SUBWAY-DEILD KVENNA Í KÖRFUBOLTA STIGAHÆSTAR: Aliyah Collier, Njarðvík............... 328 (25,2) Danielle Rodriguez, Grindavík .. 292 (22,5) Kiana Johnson, Val....................... 271 (20,8) Daniela Wallen, Keflavík .............. 261 (20,1) Sanja Orozovic, Breiðabliki......... 248 (19,1) Tinna G. Alexandersdóttir, Hau. 240 (18,7) Keira Robinson, Haukum ........... 238 (18,3) Taylor Jones, Fjölni...................... 225 (22,5) Raquel De Lima, Njarðvík ........... 206 (17,2) Greeta Uprus, ÍR........................... 201 (16,7) Elma Dautovic, Grindavík ........... 199 (16,6) Urté Slavickaite, Fjölni ................ 198 (16,5) Jamie Cherry, ÍR ........................... 176 (16,0) Eva M. Kristjánsdóttir, Hauk...... 174 (14,5) Anna Ingunn Svansdóttir, Kefl. ... 157 (12,1) Karina Konstantinova, Keflavík .. 153 (11,8) Bríet Sif Hinrinsdóttir, Njarðvík. 152 (11,7) FLEST FRÁKÖST: Aliyah Collier, Njarðvík................. 191 (14,7) Isabella Sigurðardóttir, Br/Nja .. 163 (12,5) Daniela Wallen, Keflavík .............. 139 (10,7) Amanda Akalu, Grindavík........... 139 (10,7) Taylor Jones, Fjölni........................ 121 (12,1) Eva M. Kristjánsdóttir, Hauk......... 117 (9,7) Keira Robinson, Haukum .............. 116 (8,9) Elísabeth Ægisd., Haukum ............ 111 (8,5) Ásta Júlía Grímsdóttir, Val............ 109 (9,1) Sanja Orozovic, Breiðabliki.......... 108 (8,3) Simone Sill, Fjölni ........................... 107 (9,7) Elma Dautovic, Grindavík ............ 105 (8,7) Danielle Rodriguez, Grindavík ...... 98 (7,5) Dagný L. Davíðsdóttir, Fjölni ......... 97 (8,1) Kiana Johnson, Val........................... 96 (7,4) Sigrún S. Ámundadóttir, Fjölni ..... 96 (7,4) Greeta Uprus, ÍR ...............................91 (7,6) FLESTAR STOÐSENDINGAR: Kiana Johnson, Val........................... 98 (7,5) Keira Robinson, Haukum ............... 89 (6,8) Danielle Rodriguez, Grindavík ...... 73 (5,6) Aliyah Collier, Njarðvík.................... 71 (5,5) Karina Konstantinova, Keflavík .... 65 (5,0) Raquel De Lima, Njarðvík .............. 64 (5,3) Daniela Wallen, Keflavík ................. 55 (4,2) Hekla Nökkvadóttir, Grindavík ..... 54 (4,1) Urté Slavickaite, Fjölni ................... 45 (3,7) Sanja Orozovic, Breiðabliki............. 41 (3,1) Taylor Jones, Fjölni.......................... 38 (3,8) Anna Ingunn Svansdóttir, Kefl. ..... 34 (2,6) Tinna G. Alexandersdóttir, Hau. ... 34 (2,6) Jamie Cherry, ÍR .............................. 32 (2,9) Katla Rún Garðarsd., Keflavík....... 32 (2,5) Sigrún S. Ámundadóttir, Fjölni ..... 32 (2,5) Rósa Björk Pétursdóttir, Breið....... 31 (2,4) FLEST FRAMLAGSSTIG: Aliyah Collier, Njarðvík.............. 505 (38,8) Daniela Wallen, Keflavík ............. 392 (30,1) Kiana Johnson, Val....................... 356 (27,4) Danielle Rodriguez, Grindavík .. 339 (26,1) Keira Robinson, Haukum ........... 336 (25,8) Isabella Sigurðardóttir, Br/Nja. 267 (20,5) Eva M. Kristjánsdóttir, Hauk...... 236 (19,7) Raquel De Lima, Njarðvík .......... 222 (18,5) Taylor Jones, Fjölni....................... 221 (22,1) Karina Konstantinova, Keflavík . 219 (16,8) Sanja Orozovic, Breiðabliki.......... 211 (16,2) Simone Sill, Fjölni .......................... 191 (17,4) Tinna G. Alexandersdóttir, Hau. 190 (14,6) Elma Dautovic, Grindavík ........... 186 (15,5) Urté Slavickaite, Fjölni ................ 184 (15,3) Ásta J. Grímsdóttir, Val................ 184 (15,3) Greeta Uprus, ÍR........................... 184 (15,3) NBA-deildin Cleveland – Utah ................................... 122:99 Philadelphia – Toronto.............. (frl.) 104:101 Atlanta – Orlando................................. 126:125 Houston – San Antonio ...................... 105:124 Minnesota – Dallas............................... 116:106 New Orleans – Milwaukee .................. 119:128 Oklahoma City – Portland .................. 123:121 Phoenix – LA Lakers .......................... 130:104 Sacramento – Charlotte...................... 119:125 Efst í Austurdeild: Milwaukee 22/8, Boston 22/9, Cleveland 21/11, Brooklyn 19/12, Philadelphia 17/12. Efst í Vesturdeild: Memphis 19/10, Denver 18/11, Phoenix 19/12, New Orleans 18/12, LA Clippers 18/14. Danmörk Bikarkeppnin, 8-liða úrslit: Skjern – Mors ......................................... 28:21⚫Sveinn Jóhannsson skoraði ekki fyrir Skjern. Noregur Storhamar – Sola................................... 27:27⚫Axel Stefánsson þjálfar kvennalið Storhamar. Efstu lið: Kristiansand 16, Larvik 13, Molde 12, Storhamar 12, Sola 10, Fana 10. Svíþjóð Kungälv – Skara..................................... 27:23⚫Aldís Ásta Heimisdóttir og Jóhanna Margrét Sigurðardóttir skoruðu 4 mörk hvor fyrir Skara og Ásdís Guðmundsdóttir 2. Skara er í 8. sæti af 12 liðum með 8 stig eftir 10 umferðir. England Deildabikarinn, 16-liða úrslit: MK Dons – Leicester .................................. 0:3 Newcastle – Bournemouth ........................ 1:0 Southampton – Lincoln............................... 2:1 Wolves – Gillingham ................................... 2:0 Belgía Bikarkeppnin, 16-liða úrslit: OH Leuven – Kortrijk............................... 1:3⚫Jón Dagur Þorsteinsson kom inn á hjá Leuven á 65. mínútu. Ræða við Hákon umsamning Hákon Arnar Haraldsson, lands- liðsmaðurinn ungi sem var á dögunum útnefndur knattspyrn- umaður ársins hjá KSÍ, er í viðræðum við danska félagið FC Köbenhavn um nýjan samning. Þetta staðfesti umboðsmaður- inn Magnús Agnar Magnússon við Ekstra Bladet í Danmörku og sagði að mörg lið hefðu sýnt Skagamanninum áhuga. Hákon, sem er 19 ára, hefur fest sig vel í sessi hjá FCK en hann er með samning við félagið til 2026. Morgunblaðið/Eggert Danmörk Hákon Arnar Haraldsson leikur með FC Köbenhavn. Rúnar kominn aftur til Rúmeníu Knattspyrnumaðurinn Rúnar Már Sigurjónsson er kominn til Rúmeníu á nýjan leik og búinn að semja við Voluntari en hann yfirgaf CFR Cluj í vor og hefur verið án félags síðan. Rúnar er 32 ára miðjumaður og hefur leikið 32 landsleiki fyrir Íslands hönd. Hann lauk í vor sínu öðru tímabili hjá CFR Cluj en hann varð rúmenskur meistari með liðinu bæði árin. Voluntari er í níunda sæti af sextán liðum í Liga I, efstu deildinni í Rúmeníu. Ljósmynd/Szilvia Micheller Rúmenía Rúnar Már Sigurjónsson leikur nú með Voluntari. „Guðrún Brá Björgvinsdóttir komst í gegnum niðurskurðinn á lokaúr- tökumótinu fyrir Evrópumótaröðina í golfi en fjórði hringur var leikinn á La Manga á Spáni í gær. Guðrún Brá lék á 72 höggum eða á 1 höggi yfir pari og er samtals á 2 höggum yfir pari að lokn- um fjórum hringjum af fimm. Hún er í 41.-49. sæti en efstu 60 kylfingarnir komust áfram á fimmta og síðasta hringinn. Þeir tuttugu kylfingar sem ljúka leik á besta skorinu fá fullan þátttökurétt á Evrópumótaröðinni, en Guðrún Brá hefur verið með þátt- tökurétt á mótaröðinni síðustu tvö ár. Guðrún er fjórum höggum frá þeim tuttugu efstu fyrir lokahringinn. „Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, landsliðskona í fótbolta, gæti leikið sinn fyrsta leik á tímabilinu fyrir þýska stórliðið Bayern München er það mætir Benfica frá Portúgal í Meist- aradeild Evrópu á heimavelli í kvöld. Karólína hefur verið að glíma við meiðsli undanfarna mánuði og ekkert spilað frá því á Evrópumótinu í sumar. Alexander Strauss, þjálfari Bayern, staðfesti á blaðamannafundi í gær að Karólína yrði í leikmannahópnum gegn Benfica. Bayern hefur þegar tryggt sér sæti í átta liða úrslitum keppninnar. Glódís Perla Viggósdóttir og Cecilia Rán Rúnarsdóttir leika einnig með félaginu. Leikurinn verður sá síðasti hjá Bayern fyrir jóla- og vetrarfrí. Liðið leikur næst á útivelli gegn Potsdam í þýsku 1. deildinni 5. febrúar næstkom- andi. Bayern er í fimmta sæti deildar- innar, fimm stigum á eftir Wolfsburg. Ætlum að vinna deildina og þann stóra lBirnaValgerður Benónýsdóttir er í stóru hlutverki hjá toppliði Keflavíkur Keflavík trónir á toppi úrvalsdeild- ar kvenna í körfubolta með 24 stig að loknum 13 umferðum. Átta lið eru í úrvalsdeild kvenna og leikin er fjórföld umferð svo deildarkeppnin er tæplega hálfnuð. Með Keflavík í toppbaráttunni eru lið Hauka og Vals með 22 og 20 stig en grann- ar Keflavíkur í Njarðvík, Íslandsmeist- ararnir frá síðasta tímabili, sitja ekki langt undan, í fjórða sætinu með 16 stig. Segja má að deildin sé tví- skipt í ár. Þessi fjögur lið stefna í úrslitakeppnina en í neðri hlutanum er jöfn barátta á milli Grindavíkur, Fjölnis og Breiðabliks. Þau tvö fyrrnefndu eru með 8 stig en það síðastnefnda er með 6 stig. ÍR rekur svo lestina á botni úrvalsdeildarinnar, án stiga, og er í erfiðri stöðu en neðsta lið deildarinnar fellur í vor. Birna Valgerður Benónýsdóttir er lykilmaður í liði Keflavíkur en hún hefur verið talsvert frá keppni í vetur. Hún fékk höfuðhögg í byrjun leiktíðarinnar og var frá vegna þess og sneri svo ökklann illa í leik gegn Njarðvík í byrjun nóvember. Birna er með 14,7 stig að meðal- tali í leik og er meðal stigahæstu leikmanna fyrri hlutans ef tekið er meðaltal skoraðra stiga. Hún skoraði 22 stig í ellefu stiga útisigri í Suðurnesjaslag í Grindavík um miðjan mánuðinn. Morgunblaðið tók Birnu Valgerði tali. Leikgleðin skiptir mestu máli Birna segir leikgleðina öðru fremur hafa skilað Keflavík á toppinn það sem af er móti en þjálfari liðsins er landsliðsmað- urinn Hörður Axel Vilhjálmsson. Hún segir mikið lagt upp úr því að leikmenn mæti með mikla orku inn í alla leiki og hafi gaman af því að spila leikina. Hún segir að þegar það takist gangi liðinu vel og að leikgleðin skipti mestu máli. Birna lék í háskólaboltanum í Bandaríkjunum frá árinu 2019, fyrst í Arizona en svo í Binghamton í New York, en hún gekk aftur til liðs við Keflavík fyrir yfirstandandi keppnistímabil. Birna er vön því að fá ekki mikið frí frá körfubolt- anum yfir jólahátíðina en hvað finnst henni um að leikin verði heil umferð í Subway-deildinni milli jóla og nýárs? Illa farið með fjölskyldufólk „Mér finnst það persónulega mjög sérstakt en ég er svo sem vön því að spila yfir hátíðirnar í háskólaboltanum og fæ í raun lengra frí en oft áður. Við höfum ekki rætt þetta mikið innan hópsins en ég er spennt fyrir því að spila og ég vona að við séum það allar. Sjálf er ég ekki með fjölskyldu en almennt finnst mér þó illa farið með fjölskyldufólk með þessu fyrir- komulagi.“ Birna kvaðst vera orðin góð af meiðslunum en segir að það þurfi þó enn að teipa hana. „Ökklinn er orðinn fínn en ég mun finna fyrir óþægindum það sem eftir lifir tímabils. Ég þarf að vera dugleg að vinna í þessu. Kæla og hita ökklann og gera styrktaræf- ingar.“ Keflavíkurliðið fær Fjölni í heim- sókn 28. desember en Fjölniskon- ur, sem urðu deildarmeistarar á síðustu leiktíð, hafa fengið annað hlutskipti á þessari leiktíð. Í jan- úar mætir Keflavíkurliðið hinum liðunum í toppbaráttunni. Þær taka á móti grönnum sínum í Njarðvík snemma á nýja árinu áður en þær heimsækja Breiðablik upp úr miðj- um janúar. Undir lok janúar taka þær á móti Haukum og heimsækja svo Val á Hlíðarenda rétt fyrir mánaðamótin janúar-febrúar. Birnu líst vel á toppbaráttuna sem er fram undan hjá Keflavíkurliðinu. Spenna á toppi og botni „Mér finnst mjög skemmtilegt hvað er mikil barátta á toppnum og ég er mjög spennt fyrir fram- haldinu. Markmiðið okkar í Keflavík er auðvitað að vinna deildina og svo þann stóra í vor. Við ætlum okkur að mæta með mikla orku í alla leiki og gera okkar allra besta með gleðina í forgrunni. Við ætlum að undirbúa okkur og skipuleggja okk- ur vel og mæta tilbúnar í alla leiki. Hörður Axel stendur sig mjög vel í að undirbúa okkur fyrir leikina.“ Það er ekki síður barátta á botni deildarinnar. Birna treysti sér ekki til að spá um botnbaráttuna en sagði þó að hún yrði eflaust ekki minna spennandi. „Það er mikil spenna á toppi og botni og það stefnir í frábæran lokasprett í deildarkeppninni. Svo tekur úrslitakeppnin við svo það eru mjög spennandi og skemmtileg- ir tímar fram undan,“ sagði Birna Valgerður Benónýsdóttir, leikmaður Keflavíkur, í samtali við Morgun- blaðið. Sjá má efstu leikmenn deildarinn- ar í fjórum helstu tölfræðiþáttunum hér fyrir neðan. KÖRFUBOLTI Ólafur Pálsson oap@mbl.is Morgunblaðið/Óttar Geirsson Keflavík Daniela Wallen er í stóru hlutverki hjá Keflavíkurliðinu og er meðal þeirra efstu í deildinni í stigum og stoðsendingum. Birna Valgerður Benónýsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.