Morgunblaðið - 21.12.2022, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 21.12.2022, Blaðsíða 10
FRÉTTIR Innlent10 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 2022 Það hefur sýnt sig að á erfiðum tímum stendur íslenska þjóðin saman og sýnir stuðning, hver og einn eftir bestu getu. Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur er hafin JÓLASÖFNUN Hægt er að leggja framlög inn á reikning nr. 0101-26-35021, kt. 470269-1119 Einnig er opið fyrir síma á skrifstofutíma S. 551 4349, netfang:maedur@maedur.is Síðumúli 35 (gengið inn að aftanverðu) 108 Reykjavík - S. 568 3920 - Opið 11.00-18.00 Tilvalin jólagjöf Poolborð Buffalo Rosewood 7 fet með fylgihlutum 139.900 kr. Borðtennisborð frá BUTTERFLY 79.900 kr. Fótboltaborð Glory 122 cm fellanlegt 52.300 kr. undirbúningi, tryggja að allir sem koma að verkefninu séu samstiga og sem mest sátt sé sköpuð um ver- kefnið. Reikna má með að umhverf- is- og skipulagsferlar taki tvö ár hið minnsta. Í framhaldi af því þurfi að ráðast í verkhönnun verkefnisins,“ segir í umsögninni. Umsögnin var tekin til umræðu á fundi borgarráðs, sem haldinn var 15. desember sl. Borgarráðsfull- trúar Sjálfstæðisflokksins, Hildur Björnsdóttir og Kjartan Magnús- son, lögðu fram svohljóðandi bókun: „Undirbúningur vegna lagningar Sundabrautar er orðin ein mesta sorgarsaga samgöngumála á Ís- landi. Frá árinu 2010 hafa borgar- stjórnarmeirihlutar undir forystu Samfylkingarinnar og annarra vinstriflokka gripið til margvíslegra ráða til að tefja framgang verk- efnisins og leggja steina í götu þess. Smáhýsi hafa verið byggð á fyrirhuguðu vegsvæði brautarinnar, vildarvinum úthlutað fjölbýlishúsa- lóðum mun nær umræddu vegsvæði en ráðlegt er, sem og landinu undir heppilegustu tengingu brautarinn- ar við Sæbraut. Þannig má áfram telja og virðist það vera stefnumál vinstriflokkanna í borgarstjórn að koma í veg fyrir að Sundabraut verði að veruleika. Fyrirliggjandi umsögn ber það með sér að borg- aryfirvöld hyggist halda áfram að tefja lagningu Sundabrautar með öllum ráðum. Ekki kemur á óvart að fulltrúar Samfylkingar, Pírata og Viðreisnar styðji áframhaldandi tafir vegna Sundabrautarverkefn- isins enda hafa þær verið hluti af samgöngustefnu þessara flokka um árabil. Það kæmi hins vegar á óvart ef áðurnefndum flokkum Það er mat Reykjavíkurborgar að ekki sé raunhæft að flýta fram- kvæmdum við Sundabraut. Þær geti ekki hafist fyrr en árið 2026, eins og áætlanir geri ráð fyrir. Þetta kemur fram í umsögn borg- arinnar til Alþingis við þingsálykt- unartillögu Eyjólfs Ármannssonar og annarra þingmanna Flokks fólksins um að gerð Sundabraut- ar, með brú milli Kleppsvíkur og Gufuness, verði hraðað eftir fremsta megni og framkvæmdir hafnar hið fyrsta, eigi síðar en fyrir árslok 2023. Framkvæmdum verði lokið fyrir árslok 2027 eða fyrr. Í umsögn borgarinnar, sem tekin var saman af samgöngustjóra og send Alþingi 2. desember sl., kemur fram að undirbúningur Sunda- brautarverkefnisins hafi staðið yfir síðustu misseri í samstarfi Vegagerðarinnar og Reykjavíkur- borgar og mikilvægum áföngum sé þegar lokið. Samtal við íbúa mikilvægt Fram undan séu margvíslegir lögbundnir ferlar vegna verkefn- isins, s.s. mat á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar, umhverfismat, frumhönnun vegna framkvæmda og breytingar á aðalskipulagi Reykjavíkur með tilheyrandi umhverfismati valkosta og gerð deiliskipulags. Meta þurfi almenn áhrif framkvæmdarinnar á sam- félag, byggð, umhverfi og náttúru í stóru samhengi. Í öllum þessum liðum verkefnisins skipi samráð og samtal við íbúa veigamikinn sess. „Sundabrautarverkefnið er kostnaðarsamt, umfangsmikið og flókið og mun hafa víðtæk áhrif sem samgönguframkvæmd. Því er mikilvægt að standa vel að öllum tækist að fá fulltrúa Framsóknar- flokksins með sér í þá vegferð að halda tafaleikjunum áfram og spilla þannig enn frekar fyrir þessu þarfa verkefni.“ Borgarráðsfulltrúar Samfylk- ingarinnar, Framsóknarflokks, Pírata og Viðreisnar; Heiða Björg Hilmisdóttir, Einar Þorsteinsson, Alexandra Briem og Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, lögðu fram svohljóð- andi gagnbókun: Bókun kemur á óvart „Bókun Sjálfstæðisflokks varð- andi Sundabraut kemur á óvart. Á vettvangi borgarinnar er unnið eins hratt að þessu verkefni og unnt er. Það er skýr pólitískur vilji fyrir verkefninu og kemur fram í meirihlutasáttmála Samfylkingar, Framsóknar, Pírata og Viðreisn- ar að hafist verði handa við gerð Sundabrautar, að ráðist verði í gerð umhverfismats, hafist handa við víðtækt samráð og nauðsyn- legar skipulagsbreytingar vegna hennar undirbúnar. Að auki kemur fram að leggja þurfi áherslu á að Sundabraut nýtist öllum ferða- mátum, að skoða þurfi loftslags- áhrif framkvæmdarinnar og áhrif hennar á nærliggjandi byggð og rýna mögulegar mótvægisaðgerðir. Umsögn umhverfis- og skipulags- sviðs tilgreinir réttilega þau atriði sem þarf að huga að við undir- búning Sundabrautar og ekki er hægt að sleppa. Eins liggur fyrir að Vegagerðin þarf að ljúka lýsingu verkefnisins af sinni hálfu áður en borgin getur hafist handa við þær hliðar verkefnisins sem snúa að henni. Það er fásinna að borgar- stjórn vinni gegn eigin samþykktri stefnu og þeim mun fjarstæðu- kenndara að fagfólk á umhverfis- og skipulagssviði vinni gegn framgangi þeirrar stefnu.“ lKemur fram í umsögnReykjavíkurborgar vegna þingsályktunartillögulUmhverfis- og skipulagsferlar taki tvö árlSjálfstæðismenn segjameirihlutann tefjamálið en hannhafnar því Ekki raunhæft að flýta Sundabraut Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ljósmynd/Stjórnarráðið Ný skýrslaDagur B. Eggertsson borgarstjóri, Guðmundur Valur Guðmundsson hjá Vegagerðinni, Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra og Bergþóra Þorkelsdóttir framkvæmdastjóri Vegagerðarinnar í byrjun árs. Laugavegi 178, 105 Reykjavík | Sími 551 3366 | misty.is Opið virka daga kl. 11-18, laugardaga kl.10-18 Undirföt sem henta þínum línum Opnun yfir hátíðarnar • Virka daga 11-18 • Þorláksmessu 11-20 • Lokað á aðfangadag Alltaf opið á Misty.is og enginn sendingar- kostnaður fram að jólum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.