Morgunblaðið - 21.12.2022, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 21.12.2022, Blaðsíða 17
MINNINGAR 17 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 2022 ✝ María Elínborg Ingvadóttir fæddist í Hörg á Svalbarðseyri við Eyjafjörð 27. sept- ember 1946. Hún lést á heimili sínu í Kópavogi 10. des- ember 2022 eftir stutt veikindi. Foreldrar Maríu voru Ingvi Júl- íusson, starfs- maður Vegagerðarinnar, f. á Halllandsnesi á Svalbarðs- strönd 6.10. 1923, d. 9.7. 1995, og Guðrún Jónsdóttir hús- freyja, f. í Brekku í Aðaldal 26.4. 1923, d. 16.1. 2008. Systk- ini Maríu eru Herdís, f. 1948; Jón Grétar, f. 1950, maki Hjör- dís Arnardóttir, d. 2021; Bjarni Rafn, f. 1953, maki Rósa Þur- íður Þorsteinsdóttir; Áslaug Nanna, f. 1960, og Ingvi Júlíus, f. 1962, maki Arna Alfreðs- dóttir. Hinn 9. apríl 1966 giftist María Jónasi Gunnþóri Vil- hjálmi Þórarinssyni, f. 26.2. 1944, d. 13.3. 1974, mat- reiðslumeistara og einum af stofnendum Bautans á Ak- ureyri. Foreldrar hans voru Þórarinn Ólafur Vilhjálmsson, f. 6.8. 1904, d. 5.11. 1988, og Guðrún Jónasína Georgsdóttir, f. 26.7. 1908, d. 21.4. 1963, hús- hag sem fór síðar inn í KPMG og starfaði hún þar uns hún lét af störfum og fór að sinna skógrækt af fullum krafti og ýmsum félagsstörfum ásamt því að hafa meiri tíma fyrir barna- börnin. María starfaði frá árinu 1982 með Sjálfstæðisflokknum, var formaður ýmissa nefnda á veg- um flokksins, var formaður Hvatar félags sjálfstæðiskvenna í Reykjavík, sat í miðstjórn flokksins, var varaþingmaður tvö kjörtímabil og sat nokkur skipti á Alþingi. Nýlega fór hún í stjórn samtaka eldri sjálfstæð- ismanna. María sat í stjórn Neytendasamtakanna um árabil og einnig í stjórnum nokkurra fyrirtækja, m.a. Íslandsbanka. Hún skrifaði fjölda greina í blöð og tímarit um stjórnmál og ýmis málefni. María gegndi ýmsum trúnaðarstörfum á vegum skóg- ræktarbænda, var formaður Félags skógareigenda á Suður- landi, sat í stjórn Landssamtaka skógareigenda og stjórn Suður- landsskóga ásamt þátttöku í ýmsu félagsstarfi. Árið 2000 keypti María jörð á Rang- árvöllum sem hún nefndi Ak- urbrekku og hóf hún þar um- fangsmikla skógrækt og byggði myndarlegan húsakost. Skóg- ræktin og ræktun ýmissa plantna og rósa átti hug hennar allan og hún var ötul við að koma kunnáttu og ástríðu sinni áfram til barna og barnabarna. Útför hennar fer fram frá Digraneskirkju í dag, 21. des- ember 2022, klukkan 13. freyja. Börn Maríu og Jónasar eru Guðrún, f. 21.2. 1967, leir- listamaður og Ingvi, f. 14.5. 1973, viðskiptafræð- ingur. Kona hans er Sigurrós Hall- grímsdóttir prent- smiður. Sonur hennar og stjúp- sonur Ingva er Nökkvi Reyr, f. 1998. Börn Ingva og Sigurrósar eru Jónas Nói, f. 2006, Högni Hallgrímur, f. 2007, og María Elena, f. 2009. María ólst upp á Akureyri og var í sveit á sumrin á Hörg, í Brekku og hjá frændfólki á Gautlöndum í Mývatnssveit. María lauk stúdentsprófi við MA og útskrifaðist sem við- skiptafræðingur frá HÍ. Eftir nám starfaði María á hagdeild Verðlagsstofnunar, var deildar- stjóri hagdeildar SÍS og starf- aði hjá Útflutningsráði Íslands sem fjármálastjóri og for- stöðumaður erlendra viðskipta og sem viðskiptafulltrúi við sendiráð Íslands í Moskvu. María var fjármálastjóri Reykjavíkur Menningarborgar, framkvæmdastjóri hjá Íslenska dansflokknum og ráðgjafi hjá Rekstrarverktaki. Hún átti og rak ráðgjafarfyrirtækið Beggja Ein af merkilegri manneskjum sem ég hef kynnst er farin. Maja var mér svo miklu meira en bara tengdamóðir, hún var einn af mín- um nánustu vinum líka. Við náð- um vel saman á mörgum sviðum og gátum rökrætt og spáð í hin ýmsu mál, ekki alltaf sammála sem eðlilegt var en við bárum ætíð virðingu hvor fyrir annarri. Við höfðum sameiginlegan áhuga á myndlist og fórum á einstaka sýningar saman, þó ætluðum við okkur að verða mun duglegri við það í framtíðinni. Maja var svo fróð um margt og það var alltaf hægt að leita til hennar, sama hvort það var til yfirlestrar á texta, fá álit á teikningu, fá ráð eða bara til að fá gott spjall yfir kaffi, hún gaf sér alltaf allan tím- ann í heiminum. Hún var alltaf til staðar fyrir fólkið sitt, hún var ættmóðirin – límið sem hélt öllu saman. Þrátt fyrir veikindin var Maja stórhuga og hugðist halda skemmuball í sveitinni sl. haust fyrir stórfjöl- skylduna en við sögðum henni að það yrði að fresta því til betri tíma. Hún var nú ekki alveg sam- mála okkur og viðurkenndi auð- vitað aldrei þróttleysi sitt því þingeyska þrjóskan var jú líka eitt af hennar einkennum. Það verður skrítið að hafa enga Þorláksmessuskötu í Víðihvamm- inum. Þrátt fyrir að ég borði nú ekki skötu þá var alltaf gaman að koma, hitta ættingja og vini og sjá Maju í essinu sínu, umkringda fólkinu sínu, alltaf jafn áhugasöm um hvað væri að gerast í þeirra lífi. Þátt fyrir einstakan dugnað og elju í störfum og áhugamálum gaf Maja sér alltaf tíma í hlutverkið sem hún unni einna mest, ömmu- hlutverkið. Barnabörnin fjögur voru henni allt og það var hún þeim líka. Þegar kom að starfs- lokum hjá henni sökum aldurs vaknaði hún samt snemma á hverjum virkum morgni, rölti yfir í Lindarhvamminn til að fylgja barnabörnunum í skólann, alveg sama hvort það var kafaldsbylur eða sól og stilla. Ég nefndi það einu sinni við hana að ég hefði samviskubit yfir þessu, hún ætti nú frekar að njóta þess að geta loksins sofið lengur og drukkið morgunbollann sinn heima í ró- legheitunum. En nei, það kom aldrei til greina, hún sagði mér að þessar stundir, þessi stutti göngu- túr á hverjum morgni, væru dýr- mætustu stundirnar sem hún ætti því þá ræddu þau um allt milli himins og jarðar, þetta var þeirra stund. Það kom líka í ljós að hún vissi oft meira um daglegt líf barna okkar en við foreldrarnir. Þetta var svo lýsandi fyrir Maju ömmu, barnabörnin áttu alltaf hug hennar allan. Nú er komið að erfiðri kveðju- stund sem ekkert okkar var búið undir því plönin voru mörg og mikil en það er nú víst þannig að ekkert okkar veit fyrir víst hve- nær kallið kemur. Við munum hlúa hvert að öðru í sorginni og yljum okkur við þá hugsun að nú ertu aftur komin í faðm Jónasar eftir langan aðskilnað. Minning þín mun ætíð lifa. Með miklum söknuði kveð ég þig, elsku Maja. Þín tengdadóttir, Sigurrós Hallgrímsdóttir. Ótímabært fráfall vinkonu okk- ar og félaga, Maríu E. Ingvadótt- ur, er okkur öllum þungbært. Við vissum af veikindum hennar, sem hún sjálf var ákveðin í að vinna sigur á. En enginn má sköpum renna. Það var raunar Maríu líkt að standa á meðan stætt var enda veigurinn mikill í vilja og skap- gerð. Hún var heilsteypt, traust og hörkudugleg. Þessum eðlis- þáttum kynntumst við vel í sam- eiginlegum áhuga okkar á ræktun skóga. Þar var hún vissulega fremst meðal jafningja, óþreyt- andi, upplýst og framsýn. Stór- huga var hún einnig í öllu er við- kom skógrækt, nýlega búin að reisa vélaskemmu og kaupa drátt- arvél. Skógræktin hennar í Akur- brekku ber vitni um ótrúlegan eldmóð og elju. Þessi smáa og knáa kona lyfti þar grettistaki. Þrautseigja og þolinmæði eru mikilvægar dyggðir þegar fengist er við að klæða misjafnlega harð- býlt land skógi. María átti þetta allt í fórum sínum. Hún var mjög áhugasöm um stöðu skógræktar og hagsmuni skógarbænda og var formaður Félags skógarbænda á Suðurlandi, FsS, árin 2010-2019. Hún stóð ásamt öðrum fyrir því að plöntuuppeldi legðist ekki af á Suðurlandi með stofnun gróðrar- stöðvarinnar Kvistabæjar. Hún hafði framtíðarsýn og var mikið í mun að skógarbændur mynduðu samtök um vinnslu skógarafurða og markaðssetningu þeirra. Öll þau áform voru vel ígrunduð og jarðbundin. Við undirrituð sátum í nokkur ár saman í stjórn FsS undir for- ystu Maríu. Stjórnarfundir voru haldnir á heimili hennar í Víði- hvammi. Þeir voru vel undirbúnir og móttökurnar voru hlýjar. Til varð gagnkvæm vinátta, sem aldrei bar skugga á. María var glaðsinna, skemmtileg og frjó. Á síðustu árum höfum við, sem störfuðum með henni skipst á heimsóknum, skoðað ræktunar- starfið hvert hjá öðru og glaðst og lært af þeim samfundum. Nú söknum við vinar í stað og biðjum börnum hennar og niðjum bless- unar um leið og við minnumst hennar með þökk og af virðingu. Bjarnheiður, Hannes, Októ, Sigríður og Sigurður Karl. Kær vinkona, María Elínborg Ingvadóttir skógarbóndi, er fallin frá óvænt, þótt hún hafi átt við veikindi að stríða um nokkurt skeið. María þessi sterka kona sem var um leið alltaf svo hlý, ein- læg, drenglynd og umhyggjusöm. María varð mjög ung ekkja á Akureyri þegar eiginmaður henn- ar Jónas Þórarinsson lést aðeins þrítugur að aldri. Eftir það áfall flutti hún með börnin sín, Guð- rúnu og Ingva, til Reykjavíkur og lauk viðskiptafræðinámi við Há- skóla Íslands. Hún gegndi fjöl- breyttum störfum, m.a. hjá Sam- bandi íslenskra samvinnufélaga, var fjármálastjóri hjá Útflutn- ingsráði og síðar viðskiptafulltrúi ráðsins í Moskvu í nokkur ár. María var fjármálastjóri Reykja- víkur Menningarborgar, síðar framkvæmdastjóri Íslenska dans- flokksins og rak svo lengi eigið bókhaldsfyrirtæki. Skógræktarmálin áttu hug hennar og hjarta. Hún festi kaup á 200 hektara jörð árið 2000 sem hún nefndi Akurbrekku, reisti þar glæsileg hús og hóf nytjaskóg- rækt. Þar gróðursetti hún fleiri þúsund plöntur á hverju sumri. Lagði hún áherslumálum skógar- bænda lið, var lengi formaður Fé- lags skógareigenda á Suðurlandi, sat í stjórn Landssamtaka skóg- areigenda og Suðurlandsskóga. Skipaði hún sæti í stjórnum, m.a. Neytendasamtakanna og Íslands- banka hf. María hafði einarðar skoðanir á mönnum og málefnum. Var um skeið formaður Hvatar, félags sjálfstæðiskvenna í Reykjavík, og varaþingmaður og sótti að venju Landsfund Sjálf- stæðisflokksins í vetur þrátt fyrir veikindi sín. Við áttum einstaka vináttu sem aldrei bar skugga á. Vorum bridgespilafélagar í rúm þrjátíu ár, en fjórði félagi okkar, Anna Kristjánsdóttir, féll frá fyrr á þessu ári. Við eigum eftir notaleg- ar minningar um góða samveru og frjósamar samræður við þess- ar öndvegis konur, ekki síst póli- tískar, því ekki vorum við allar sammála á þeim vettvangi. Heim- ili Maríu var menningarsetur með sterku svipmóti húsráðanda. Hún var mikill höfðingi heim að sækja á Seltjarnarnesinu, í Kópavogin- um og á Akurbrekku. Moskvu- heimsókn fyrir aldarmótin skipu- lagði hún ekki aðeins sem ógleymanlega menningarlega borgarferð. Við ferðuðumst alla leið niður til Jalta á Krímskaga og dvöldum þar í nokkra daga. Þann- ig var María, lét sér ekki allt fyrir brjósti brenna. María var glæsileg kona, virðu- leg í fasi, skemmtileg og geislaði af innri styrk sem aldrei þraut. Hún hélt einstaklega vel utan um fjölskylduna sína. Innilegar sam- úðarkveðjur til Guðrúnar, Ingva, Sigurrósar, Nökkva Reyrs, Jón- asar Nóa, Högna Hallgríms og Maríu Elenu. Söknuðurinn er sár og sjónarsviptirinn mikill. Minn- ingarnar um mömmunwa og ömmuna góðu munu ylja þeim um ókomna tíð. Ásdís J. Rafnar, Ingveldur Fjeldsted. Það var fyrir um 20 árum að ég kynntist Maríu, en hún hafði þá stofnað nýbýlið Akurbrekku. Áhugi stóð til að hefja skógrækt á jörðinni og gerður var samningur við Suðurlandsskóga árið 2003. Hún var strax áhugasöm og drífandi í sinni skógrækt, við oft erfiðar aðstæður, þar sem kjör- aðstæður voru ekki þær bestu í sendnum og oft þurrum jarðvegi. En María hafði sín markmið með skógræktinni á hreinu og fylgdi þeim, enda náði hún oft undra- verðum árangri. Þegar hún hóf skógrækt gekk hún í Félag skógarbænda á Suð- urlandi, tók þar strax virkan þátt og var fljótlega kosin til forystu í félaginu. Einnig sat hún í stjórn Lands- samtaka skógareigenda um ára- bil. Hún lét sig málefni Suður- landsskóga varða og sat í síðustu stjórn verkefnisins, eða þar til Suðurlandsskógar sameinuðust Skógrækt ríkisins árið 2016. María var öflug og ákveðin í því sem hún tók að sér. Beitti sér m.a. fyrir öflugri trjáplöntuframleiðslu og hafði mikinn áhuga á afurða- málum skóga. Sem framkvæmdastjóri Suður- landsskóga hafði ég mikil sam- skipti við Maríu og kynntist henni vel. Hún var ákveðin í sínum skoð- unum, sem gat farið fyrir brjóstið á sumum, en þegar horft er til baka er full ástæða til að þakka hennar mikla framlag til þessarar ungu atvinnugreinar. Hún kom oft við á skrifstofunni á Selfossi þar sem málefnin voru rædd og vinabönd styrkt í gegnum árin. Margir skógareigendur eiga eftir að sakna hennar úr starfinu og það er því með trega sem við kveðjum hana í dag, en skógurinn hennar í Akurbrekku mun minna okkur á Maríu og öflugan stuðn- ing hennar við skógrækt á Ís- landi. Skógarbændur á Suðurlandi votta aðstandendum Maríu sam- úð sína. Björn B. Jónsson, formaður Félags skógar- bænda á Suðurlandi. Við kveðjum þig með sára sorg í hjarta söknuðurinn laugar tári kinn. Dregur ský á dagsins ásýnd bjarta dökkur skuggi fyllir huga minn. Í miðjum leik var komið til þín kallið klippt á strenginn þinn. Eitt af vorsins fögru blómum fallið. (Hákon Aðalsteinsson) Kær vinkona er fallin frá. Það er sárt og óvænt. Hún var í bar- áttu sem allir vonuðu að fengi góðan endi. Við skólasysturnar að norðan höfum hlegið og glaðst saman yfir mat og drykk mörg undanfarin ár og rifjað upp æsku- árin á Akureyri. Mæja naut sín vel sem gestgjafi í slíkri samveru, allt svo fallegt og gott hjá henni. Hún var alltaf svo geislandi glöð og kraftmikil. Hún gerðist skóg- arbóndi síðustu árin og hafði yndi af öllum ræktunarstörfum. Við gerðum ráð fyrir glaðværð og glensi áfram en stundin er runnin upp. Söknuður og tregi yfir þeim stundum sem ekki verða. Við kveðjum elsku Mæju okkar með þakklæti fyrir indælar stundir og sendum fjölskyldu hennar okkar innilegustu samúðarkveðjur. Eyrarrósirnar, Óla Kristín, Sigfríður (Fía), Ragnhildur, Rebekka og Valdís. Í dag kveðjum við Maríu El- ínborgu Ingvadóttur, fyrrverandi formann Hvatar. María starfaði lengi með Sjálfstæðisflokknum, eða allar götur frá árinu 1982. Hún var mjög virk í öllu starfi flokksins en auk þess að vera for- maður Hvatar, félags sjálfstæðis- kvenna í Reykjavík, var hún for- maður ýmissa nefnda, sat í miðstjórn flokksins og einnig sem varaþingmaður. Það er með Maríu eins og svo margar sjálfstæðiskonur hennar kynslóðar að þær ruddu veginn fyrir okkur sem yngri erum. Það tíðkaðist ekki þá að margar konur væru kjörnir fulltrúar, ein og ein í sveitarstjórnum og þingflokkum, en það er meðal annars þeirra baráttu og eljusemi sem við get- um þakkað að blessunarlega er staðan breytt í dag. Við sjálfstæðiskonur viljum þakka Maríu kærlega fyrir henn- ar störf í þágu Sjálfstæðisflokks- ins og ekki síst í þágu jafnréttis. Við sendum fjölskyldu Maríu og ástvinum hennar okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Nanna Kristín Tryggvadóttir, formaður Landssambands Sjálfstæðiskvenna, Andrea Sigurðardóttir, formaður Hvatar. Lífið getur verið hverfult, hug- sjónakonan og náttúruunnand- inn, María E. Ingvadóttir, hefur yfirgefið þessa jarðvist. Í dag kveðjum við trausta og yndislega samferðarkonu. Af eilífðarljósi bjarma ber, sem brautina þungu greiðir. Vort líf, sem svo stutt og stopult er, það stefnir á æðri leiðir, Og upphiminn fegri en auga sér mót öllum oss faðminn breiðir. (Einar Ben.) Ríkidæmi Maju fólst í afkom- endum hennar, sem hún var stolt af. Skógræktin og náttúran heill- uðu hana og var hún stolt af því að vera skógarbóndi. Maja var félagslynd og hafði skýrar skoðanir á mönnum og málefnum. Við í stjórn Samtaka eldri sjálfstæðismanna fögnuðum því þegar þessi sterka og trausta kona gekk til liðs við okkur sl. haust og fengum að njóta þekk- ingar hennar og reynslu. Við minnumst hennar með hlýju og þakklæti og biðjum al- góðan Guð að blessa minningu hennar. Veitum þínum vildargróðri vaxtarkraft í skógarrjóðri, andann lát þú hefjast hátt. Lát þitt orð á kyrrum kvöldum kenna speki í vorum tjöldum. Dvel þú hjá oss dag og nótt. (Friðrik Friðriksson) Við vottum börnum, barna- börnum, tengdadóttur og fjöl- skyldu Maríu E. Ingvadóttur innilegrar samúðar. F.h. stjórnar Samtaka eldri sjálfstæðismanna, Björg Þórð- ardóttir. María Elínborg Ingvadóttir ✝ Elínborg Jóna Pálmadóttir fæddist á Akureyri 6. október 1940 og ólst þar upp. Hún lést á Landspít- alanum í Fossvogi 10. desember 2022. Foreldrar Elín- borgar: Sóley Jón- asdóttir, f. 1913, d. 1980 og Pálmi Hall- dórsson, f. 1902, d. 1989. Þau voru til heimilis á Bjarmastíg 6 á Akureyri allan sinn búskap, þar sem Elínborg (Ella) ólst upp. Systkini El- ínborgar voru: Jónína Sig- urlaug, f. 1934, d. 1985, Sveinn Reynir, f. 1939, d. 2020, Stein- unn Svandís, f. 1943, d. 1961, Sverrir Viðar, f. 1946, og Dag- björt Pálmey, f. 1948. Elínborg giftist Jóni Guð- mundi Sveinssyni 1960, þau skildu árið 1994. Börn þeirra: 1) Sveinn Pálmar, f. 1961, d. 1966. 2) Sóley, f. 1962, maki Helgi Pét- ursson og eiga þau tvo syni: Jón Pétur og Hafþór. 3) Fjóla, f. 1966, maki Jón Ari Jónsson og eiga þau tvær dætur: Arnbjörgu Ellu Sigmarsdóttur og Árnýju Lind. 4) Lilja, f. 1967, maki Kristóbert Fann- berg Gunnarsson og eiga þau eina dóttur: Hafdísi Fannberg. 5) Sveinn Pálmar, f. 1974, d. 2012. Elínborg hóf sinn búskap í Reykjavík, en fluttist síðan með fjölskylduna til Kópavogs og þaðan í Garðabæ. Eftir skilnað flutti hún til Hafnarfjarðar og síðar Mosfellsbæjar þar sem hún bjó síðustu 18 árin. Elín- borg var mikil hannyrðakona á sínum yngri árum og hún var alla tíð með græna fingur og fallega garða í kringum sig. Hennar mesta eftirlæti voru þó barnabörnin eftir að þau komu. Útför Elínborgar fer fram frá Fossvogskapellu í dag, 21. desember 2022, klukkan 13. Elsku mamma og amma. Minning þín lifir sem ljós í lífi okkar. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Valdimar Briem) Hvíldu í friði. Lilja og Hafdís. Elínborg Jóna Pálmadóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.