Morgunblaðið - 21.12.2022, Side 4

Morgunblaðið - 21.12.2022, Side 4
FRÉTTIR Innlent4 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 2022 Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is Gámaleiga Er gámur lausnin fyrir þig? Við getum líka geymt gáminn fyrir þig 568 0100 stolpigamar.is HAFÐU SAMBAND Búslóðageymsla ❚ Árstíðabundinn lager ❚ Lager ❚ Sumar-/vetrarvörur Frystigeymsla ❚ Kæligeymsla ❚ Leiga til skemmri eða lengri tíma Jólasveinarnir tóku á móti hressum krökkum í Smáralind Jólasveinarnir hafa verið duglegir að láta sjá sig í Smára- lind síðan þeir hófu að koma til byggða. Gluggagægir kom í nótt og það verður að teljast líklegt að hann láti sjá sig í Smáralindinni eins og hinir níu sem hafa nú þegar sést þar. Bjúgnakrækir og Skyrgámur tóku vel á móti krökkunum sem heimsóttu þá í gær, en hvað ætli hafi verið í pokanum? Morgunblaðið/Árni Sæberg Einar Þorsteinsson, starfandi borg- arstjóri, tók í gær við undirskrifta- lista með tæplega fjögur þúsund nöfnum, þar sem þess er krafist að borgin endurskoði ákvörðun sína um að loka Vin. Vin er dagsetur fyrir fólk með geðraskanir sem Rauði krossinn á höfuðborgarsvæð- inu hefur rekið í nær 29 ár. Borgin tók yfir reksturinn fyrir ári en fyrir skömmu var tekin ákvörðun um að loka úrræðinu í hagræðingarskyni. Fastagestur Vinjar segir borg- arfulltrúa ekki gera sér almenni- lega grein fyrir hvað felst í þeirri ákvörðun að loka þessu mikilvæga úrræði. Hann og fleiri sem þangað sækja þjónustu hafi átt í erfiðleikum með svefn eftir að greint var frá lokuninni og hefur hann sömuleiðis þurft að auka lyfjaskammtinn sinn. Kostnaðurinn endar á ríkinu „Það er enginn sparnaður að þessu. Kostnaðurinn endar á ríkinu. Ef þeir loka Vin þá verður örtröð á bráða- og geðdeildum, það er bara þannig,“ segir Garðar Sölvi Helga- son. Hann var greindur með geð- klofa haustið 1970, þá 16 ára gamall, og hefur nú verið fastagestur hjá Vin í rúma tvo áratugi. „Það tók mig tvö ár að komast þangað inn af því að geðlæknirinn minn benti mér á Vin en hann varaði sig ekki á því að það þurfti einhver að koma með mér í fyrsta skiptið. Ég margoft labbaði fram hjá og þorði ekki inn. Hann skildi það ekki, blessaður karlinn.“ Fyrirhuguð lokun Vinjar hefur valdið Garðari miklu uppnámi, sem hefur litið á Vin sem sitt annað heimili. Áður fyrr þurfti hann einungis að taka lyf við geðklofan- um tvisvar í viku en nú þarf hann að taka þau einu sinni til tvisvar á dag. „Ég held að borgarfulltrúar hafi ekki almennilega áttað sig á því hvað þeir voru að gera ef þeim dettur í hug að loka Vin. Það er mín skoðun. Þegar ég heyrði þessar fréttir fyrst þá hætti ég að geta sofið eðlilega – og það eru margir fleiri í Vin sem eru þannig.“ lFastagestur Vinjar segir borgarfulltrúa ekki gera sér grein fyrir vægi þeirrar ákvörðunar að loka Afhentu þúsundir undirskrifta Hólmfríður María Ragnhildar hmr@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Mótmæli Fyrirhugaðri lokun var mótmælt síðdegis í gær, á sama tíma og borgarstjórn kom saman til fundar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.