Morgunblaðið - 21.12.2022, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 21.12.2022, Qupperneq 12
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 2022 12 STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Pistill Aðmeinaþaðsemþúsegir T ungumál er flókið fyrirbæri til samskipta. Fólk getur svarað á kaldhæðinn, ljóðrænan, háleitan og beinskeyttan hátt – og á svo marga aðra vegu að ómögulegt er að telja það upp í stuttum pistli. Ofan á alla þessa mismunandi möguleika til samskipta bætist að orðanotkun fólks er ekki nákvæm. Fólk leggur mismunandi skilning í ýmis orð, eftir aðstæðum og áherslum. Það er hægt að nota orð af varkárni eða með sannfæringu og allt hefur þetta áhrif á það hvaða merkingu áheyrendur meðtaka. Svo getur verið mismunandi hvort fólk sjái þann sem er að tala, og þá getur látbragð og líkamstjáning haft enn meiri áhrif á þann boðskap sem mælandi flytur. Nokkurs konar andstæða við það er skriflegur flutningur, þar sem hægt er að greina nákvæmlega hvaða orð voru notuð í bæði upphafi og enda greinarinnar. Útlit þess sem talar getur líka haft áhrif. Nákvæmlega sama ræða, flutt af fólki sem lítur mismunandi út. Karli og konu. Einhver stór eða lítil. Fögur eða ekki. Allt hefur þetta áhrif á hvað er verið að reyna að segja og hvað er meðtekið. Heyrist hroki í ræðu eins en ekki annars, þrátt fyrir að þau séu að segja nákvæmlega sömu orðin? Það breytir merkingunni fyrir þau sem á hlusta. Að mínu mati er þetta eitt helsta vandamál sem við glímum við í stjórnmálum. Hvernig á að koma skilaboð- um á framfæri til allra á heiðarlegan og óhlutdrægan hátt. En vandinn er að fólk heyrir það sem ég er að segja öðruvísi af því að ég er Pírati, sama hvað ég segi þá komast skilaboðin ekki á framfæri til allra. Ég upplifði það fyrir nokkrum árum að sjóaður stjórnmálamaður sagði við mig að „við veljum bara þau rök sem henta okkar málflutningi“. Davíð Oddsson sagði forðum að hann hefði hjólað í öll mál, sama hvað honum fannst um málið í hjarta sér. Fjármálaráðherra sagði um daginn að það væri freistandi að kjósa gegn tillögum stjórnarandstöðunnar, „svona prinsippsins vegna“. Þetta eru sjónarmið sem mér finnst forkast- anleg í stjórnmálum. Þau sýna hversu ómál- efnaleg stjórnmálin eru – og það kaldhæðnis- lega við allt saman er að þau sem eru á þessari skoðun telja væntanlega alla aðra stunda svona stjórnmál. Þannig að þegar maður reyn- ir að nálgast málin út frá málefnalegum sjónarmiðum þá heyrir það enginn af því að fólk álítur málflutning manns einungis vera þessa málfundakeppni um rök sem henta. Ég áttaði mig á því um daginn að það skiptir því miður allt of litlu hvað ég segi, það skiptir í alvörunni meira máli hvernig ég segi það – og mér finnst það mjög sorglegt og ég veit ekki hvernig er hægt að laga það. Það eina sem ég get gert er að tjá einlæga skoðun mína á eins heiðarlegan hátt og ég get og vonað að það komist til skila. Gleðileg jól og farsælt komandi ár. Björn Leví Gunnarsson Höfundur er þingmaður Pírata. bjornlevi@althingi.is Hæpin forgangsröðun Morgunblaðið birti í gær athyglisverða grein eftir þá Bjørn Lomborg, forseta Copen- hagen Consensus, og Jordan B. Peterson, prófessor emer- itus við Háskólann í Toronto, þar sem þeir fjölluðu í tilefni komandi áramóta um fyrirheit til framtíðar, sérstaklega þau sem leiðtogar heimsins gáfu árið 2015. Þá, eins og Lomborg og Peterson rifja upp, „gerðu leiðtogar heimsins tilraun til að takast á við höfuðvandamál mannkynsins með því að setja sér markmiðin um sjálfbæra þróun,“ og voru þessi markmið 169 talsins. Þeir benda líka á að nú sé hálfnaður tíminn sem leið- togarnir gáfu sér, til 2030, en markmiðin séu fjarri því að hafa náðst að hálfu leyti. Ástæðan sé sú að forgangsröð- un skorti og þegar sett séu 169 markmið geri það sama gagn og að setja ekkert markmið, svo ómarkvisst sé það. Lomborg og Peterson leggja áherslu á markmið sem eru ekki mjög kostn- aðarsöm en skila miklu og nefna baráttu við vöggu- dauða og hungur, en það að forða nýburum og ungum börnum frá hungri skili miklu til fram- tíðar. Hið sama megi segja um menntun, sem víða sé ábóta- vant en hægt sé að bæta mjög með hóflegum tilkostnaði og það skili miklu til framtíðar. Þeir benda á að mikilvæg markmið af þessu tagi verði útundan á meðan „vel meint en jaðarsett markmið eins og að auka endurvinnslu og ýta undir lífsstíl sem hefur samhljóm með náttúrunni“ fái mikla athygli. Í þann flokk falla væntanlega markmið sem skyggja á flest annað í dag og snúast um loftslagsmál, en fátt virðist svo kostnaðarsamt að það megi ekki réttlæta með vísan til loftslags. Þegar slík tískumál eru annars vegar gleymist hins vegar oft að með broti af þeim kostnaði má bjarga miklum fjölda fólks sem býr við raunverulega og aðsteðjandi ógn. Tískumálin eru ekki endilega þau brýnustu} Opinber offjölgun F jármála- og efnahags- ráðuneytið birti í gær tölur um þróun fjölda starfsmanna og launagreiðslna hjá ríkinu og er óhætt að segja að hún sé áhyggjuefni. Í mars árið 2019 voru stöðugildi hjá ríkinu 17.641 en þremur árum síðar voru þau orðin 19.262. Á þess- um þremur árum fjölgaði því um 1.621 starfsmann eða rúm 9%. Í umfjöllun ráðuneytisins kemur fram að stærstur hluti þessarar fjölgunar sé í heil- brigðis- og menntakerfinu, en þar eru líka langflestir starfsmenn ríkisins. Fjölgunin almennt hjá ríkinu er sögð að nokkru leyti tímabundin og sögð tengjast kórónuveirufar- aldrinum, sem má teljast umhugsunarvert að hafi enn teljandi áhrif á fjölda ríkis- starfsmanna í mars á þessu ári. Þá er bent á að um mitt ár í fyrra tók gildi „betri vinnutími í vaktavinnu“ eins og það er orðað, en vinnuvika þeirra sem séu á vöktum hafi styst úr 40 klukkustundum í 36 klukku- stundir á viku. Þetta hafi þýtt fjölgun stöðugilda, en eins og fram hefur komið gengu ríkisstofnanir mun lengra í að stytta vinnuvikuna en ástæða var til. Stóri vandinn er þó sá að vinnuvikan hafi verið stytt því að hvorki atvinnulífið né ríkið, hvað þá sveitarfélögin, hafa með góðu móti getu til að standa undir styttingu vinnuviku á sama tíma og umsamin laun hafa hækkað verulega. Þetta voru mistök við gerð kjarasamninga og algert ofmat á getu atvinnu- lífsins til að standa undir svo hratt vaxandi lífsgæðum, því að staðreyndin er sú að það er á endanum atvinnulífið sem þarf að skapa þau verðmæti sem greidd eru í laun, hvort sem það er í einkageiranum eða hinum opinbera. Ríkið stendur nú frammi fyrir því að umsvif þess eru orðin of mikil, hvort sem horft er á fjölda starfsmanna eða útgjöld í krónum, en þetta fer vitaskuld mjög saman. Staða sveitarfélaganna, einkum þess stærsta, er enn verri að þessu leyti. Ljóst má vera að snúa verður af þessari braut eigi ekki illa að fara. Hið opinbera, ríki og sveitarfélög, verður að grípa til aðgerða til að draga úr umsvifunum, þar með talið að fækka starfsfólki. Fjölgun upp á 9% á þriggja ára tímabili er nokkuð sem augljóslega gengur ekki upp og verður að vinda ofan af. Ríkisstarfsmönnum hefur fjölgað um 9% á þremur árum} B úast má við því að þúsund- ir erlendra ferðamanna verji jólum og áramótum hér á landi í ár ef veður og samgöngur leyfa. Bókunarstaða í ferðaþjónustu er ágæt miðað við þennan tíma árs að sögn Jóhannes- ar Þórs Skúlasonar, framkvæmda- stjóra Samtaka ferðaþjónustunnar. „Á árunum fyrir faraldurinn gæti ég trúað að hér hafi verið um 30- 40 þúsund manns yfir hátíðarnar. Ég myndi halda að það nálgist svipaða tölu núna og hér verði um 25-30 þúsund manns í ár,“ segir Jó- hannes Þór. Jóhannes seg- ir að ferðamenn frá Asíu, eink- um og sér í lagi frá Kína, séu ekki farnir að skila sér hingað eftir kórónuveirufar- aldurinn og munar um minna. „Að sama skapi hefur orkukrísan áhrif á okkur og ferðalög fólks úti í heimi. Bretlandsmarkaður er heldur rólegur núna. Við höfum reyndar ekki séð harkaleg áhrif á Bretlandsmarkaðinn í vetur en við höfum hins vegar ekki náð að stækka hann eins mikið og okkur langar til. Ferðamenn frá Banda- ríkjunum eru sem fyrr langsterk- asti hópurinn.“ Margir ferðamenn veður- tepptir hér á landi Illviðrasamt hefur verið hér á landi síðustu daga. Flugferðir hafa verið felldar niður og erlendir ferðamenn hafa verið strandaglóp- ar á Keflavíkurflugvelli. Þá hefur Reykjanesbrautin verið lokuð fyrir umferð. Jóhannes segir að vitað sé að það geti komið upp aðstæður hér á landi þar sem samgöngur raskist en krossleggur fingur í von um að þetta hafi ekki áhrif á kom- ur ferðamanna yfir hátíðarnar. „Þetta er hins vegar á versta tíma og það er mjög óheppilegt að þetta standi yfir í svona langan tíma. Þarna blandast saman að veður er þannig að ekki er hægt að fljúga og svo er vandamál með einu leiðina út á flugvöll. Ég hef ekki næga þekkingu á snjómokstri til að átta mig á hvað væri hægt að gera betur en ég hugsa að best væri að viðeigandi aðilar hittist þegar þetta er afstaðið og setji upp áætlanir um hvað megi betur fara.“ Hefur ekki áhyggjur af langtímaáhrifum Þeir erlendu farþegar sem hér hafa verið strandaglópar hafa margir viðrað óánægju sína á sam- félagsmiðlum. Jóhannes segir að vissulega sé aldrei gott þegar það gerist en kveðst ekki hafa áhyggjur af langtímaáhrifum að svo komnu máli. „Þetta er sannarlega mjög erfitt ástand og hefur eflaust einhver áhrif. Það er auðvitað skelfilegt fyrir þá ferðamenn sem hafa lent í þessu og vitaskuld spyrst það út. Almennt séð hafa svona atburðir þó ekki mikil langtímaáhrif til hins verra. Áhrifin eru kannski til skamms tíma, rétt eins og þegar verða verkföll á flugvöllum og fólk lendir í hremmingum. En til langs tíma eru ekki varanleg áhrif á áfangastaði. Fyrirtæki hér upplýsa sína kúnna ágætlega um að hér geti brugðið til ýmissa veðra á þessum tíma árs. Stór hluti fólks er því vel upplýstur. Fyrir fólk sem á ekki að venjast svona veðri eru þetta erf- iðar aðstæður og því er eðlilegt að fólk verði frústrerað og grimmt.“ Fjöldi ferðamanna bókaður í jólafrí hér GJÖFULUÁRI AÐ LJÚKA Mikill fjöldi í nóvember Árið sem er að renna sitt skeið á enda hefur verið gjöfult fyrir fyrirtæki í ferðaþjónustu. Fjöldi erlendra ferðamanna er farinn að slaga upp í það sem best lét áður en kórónuveirufaraldurinn skall á. Og ferðamennirnir létu ekki bara sjá sig í sumar. Þannig var greint frá því á dögunum að brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll hafi verið um 138 þúsund í nóvember samkvæmt taln- ingu Ferðamálastofu. „Um er að ræða þriðja fjölmennasta nóvembermánuðinn frá því að mælingar hófust. Brottfarir í ár voru 92% af því sem þær voru í nóvember 2018, þegar mest var. Ríflega helmingur brottfara í nýliðnum nóvember var tilkom- inn vegna Bandaríkjamanna og Breta,“ segir á vef Ferðamála- stofu. Þar kemur jafnframt fram að frá áramótum hefur tæplega 1,6 milljón erlendra farþega farið frá Íslandi en á sama tíma í fyrra voru brottfarir þeirra um 620 þúsund. Jóhannes Þór Skúlason SVIÐSLJÓS Höskuldur Daði Magnússo hdm@mbl.is n Morgunblaðið/Eggert Vetrarríki Fjölmargir ferðalangar hafa verið strandaglópar hér síðustu daga vegna óveðurs. Margir ferðamenn ætla að vera hér yfir hátíðarnar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.