Morgunblaðið - 21.12.2022, Side 22

Morgunblaðið - 21.12.2022, Side 22
Minningar MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 2022 Tilboð/útboð Akranes.is Add a subheading Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit. Aliquam feugiat malesuada placerat. Vestibulum eu nulla dignissim, vehicula eros eu, luctus nunc. Vivamus at tempor nulla, vel tincidunt eros. Vivamus dictum mi urna, eget tincidunt lectus posuere non. Praesent id eleifend urna. Duis interdum imperdiet felis. Suspendisse mattis tellus felis, in aliquet ligula imperdiet nec. Bæjarstjórn Akraness samþykkti 13. desember 2022 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi Garðabrautar 1 skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Deiliskipulag Garðabraut 1 nær einungis til lóðarinnar Garðabraut 1. Breytingarnar felast í niðurrifum núverandi byggingar og byggingu fjölbýlishúss sem stallast frá fjórum til sjö hæða með 51 íbúð ásamt bílakjallara. Tillagan liggur frammi í þjónustuveri Akraneskaupstaðar að Dalbraut 4, Akranesi frá 21. desember 2022 til 7. febrúar 2023 og á heimasíðu Akraneskaupstaðar, www.akranes.is/skipulag-i-kynningu. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast skipulagsfulltrúa í síðasta lagi 7. febrúar 2023 annaðhvort á Da braut 4 eða á netfangið skipulag@akranes.is. Skipulagsfulltrúi Akraneskaupstaðar Tilkynningar Mat á umhverfisáhrifum Álit Skipulagsstofnunar Blöndulína 3 frá Blöndustöð til Akureyrar Skipulagsstofnun hefur gefið álit sitt um mat á umhverfisáhrifum um lagningu Blöndulínu 3 samkvæmt lögum nr. 111/2021. Álitið og umhverfismatsskýrslu Landsnets er að finna á vef stofnunarinnar www.skipulag.is. Félagsstarf eldri borgara Árskógar 4 Smíðastofa með leiðb. kl. 9-14. Bónusbíllinn, fer frá Árskógum 6-8 kl. 12.45. Jóla-DansiBall kl. 14. Hádegismatur kl. 11.30- 12.30. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Allir velkomnir. Sími: 411-2600. Boðinn Handavinnustofa opin frá kl. 12:30-15:00. Sundlaugin opin til kl. 16:00. Bústaðakirkja Félagsstarfið er komið í jólafrí, við hittumst aftur á nýju ári þann 11. janúar. Guð gefi ykkur gleðileg jól og áramót. Starfsfólk Fossvogsprestakalls. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8:30-11:00. Morgunleikfimi með Halldóru á RUV kl. 9:45-10:00. Upplestrarhópur Soffíu kl. 10:00-12:00. Hádegismatur kl. 11:30-12:30. Upplestrarhópur Soffíu með Jóla ljóða upplestur kl. 11:45. Heimaleikfimi á RUV kl. 13:00-13:10. Síðdegiskaffi kl. 14:30-15:30. Garðabær 9.00 Pool-hópur í Jónshúsi 10.00 Ganga frá Jónshúsi 10.30 Skák og Scrabble í Jónshúsi 13.00 Ganga frá Smiðju 13.45- 15.15 Kaffiveitingar í Jónshúsi 16.30 Zumba Gold í Kirkjuhv. Gjábakki Opin handavinnustofa og verkstæði kl. 8.30 til 16. Félagsvist kl. 13 til 15. Gullsmári Miðvikudagur: Opið í mat og kaffi, félagsstarf er í jólafríi. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá 8:30-10:30. Aðventa Gunnars Gunnarssonar, seinni lestur upplestur á vinnustofu kl. 10:00. Handavinna – opin vinnustofa 13:00-16:00. Bridge kl. 13:00. Hádegismatur kl. 11:30-12:30, panta þarf fyrir hádegi deginum áður. Seltjarnarnes Kaffikrókur á Skólabraut alla virka morgna frá kl. 9.00. Nú er komið hlé á félagsstarfi og almennri dagskrá fram yfir jól. Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar .Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. .Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. .Smíðum gestahús – margar útfærslur. .Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. .Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Verslun Hringar fyrir jól, frí áletrun Tökum enn við pöntunum og afgreiðum fyrir jól trúlofunar- og giftingarhringa. Mikið úrval. Kíkið á heimasíðuna www.erna.is, ERNA Skipholti 3, s. 552 0775. Rað- og smáauglýsingar Um leið og við kveðjum Rafn Sig- urðsson, kæran vin og samstarfsmann, minnist ég fyrstu kynna er ég hóf störf við Iðnskól- ann í Reykjavík. Rafn og aðrir kennarar grunndeildar málmiðna tóku einstaklega vel á móti okkur nýju kennurunum og settu okkur vel inn í þau fjölbreyttu verkefni sem nemendur áttu að inna af hendi. Slík vinnubrögð byggja upp góðan starfsanda sem er svo mik- ilvægur á öllum vinnustöðvum og hann var svo sannarlega til staðar í skólanum. Vinátta Rafns var mér mikils virði. Hann var sannur vinur og sýndi það á margvíslegan hátt. Þau Dóra eiginkona hans veittu Rafn Sigurðsson ✝ Rafn Sigurðs- son fæddist 27. febrúar 1927. Hann lést 9. desember 2022. Útför hans fór fram 19. desember 2022. mér mjög mikinn stuðning í veikindum mínum. Einnig buðu þau okkur Ástu að byggja sumarbústað í sameiginlegu landi Hæðarenda í Gríms- nesi. Það voru yndis- legar samverustundir sem við hjónin og Rafn og Dóra áttum saman við leik og störf fyrir austan. Þar var Rafn driffjöður í mörgum fram- kvæmdum sem íbúar byggðarinn- ar stóðu að. Ég minnist þess ekki að okkur hafi orðið sundurorða öll þau ár sem við vorum samferða. Hann var einn þeirra sem skipulögðu og byggðu upp grunn- deild málmiðna fyrir rúmlega hálfri öld. Sú deild varð vinsæl og fjölmenn, margir nemendur fundu þar nám sem hentaði þeim vel og skapaði grunn að frekara námi og góðum atvinnumöguleikum. Við kennsluna lagði Rafn ríka áherslu á að nemendur skiluðu í námi og starfi vönduðum vinnubrögðum unnum af skilvirkni og heiðar- leika. Segja má að Rafn og Jón heit- inn Sætran hafi verið í fararbroddi við innleiðingu verknáms fyrir þá sem stóðu höllum fæti í skólakerf- inu og höfðu ekki fengið framgang í framhaldsskólum. Það starf þró- aðist á þann hátt að Iðnskólinn í Reykjavík og nú Tækniskólinn arftaki hans hafa verið í forustu með slíkt nám alla tíð síðan. Öryggismál og brunavarnir voru Rafni sérstaklega hugleikin. Hann útbjó kennslugögn í þeim fræðum og skipulagði verkferla til að tryggja öryggi nemenda á sem bestan hátt. Þessa fræðslu og við- horf til öryggismála hafa nemend- ur án efa flutt með sér á vinnustaði síðar. Fleiri verknámsskólar byggðu upp málmiðnabrautir og sóttu eðlilega til Iðnskólans í Reykjavík um aðstoð og ráð- leggingar. Þar var ekki komið að tómum kofunum hjá Rafni og fé- lögum hans. Hugmyndir hans og ráðleggingar voru sérlega mikil- vægar því hann hafði verið með í uppbyggingu og skipulagi náms- leiðarinnar allt frá byrjun. Hann veitti alla aðstoð með bros á vör enda var þetta hans hjartans mál. Það var einstaklega lærdóms- ríkt að vinna með Rafni, hann var lausnamiðaður, ljúfur og snjall kennari enda var hann víða kall- aður til forystu. Hann var öflugur í félagslífi starfsmanna vélsmiðj- unnar Héðins áður en hann hóf kennslu. Var formaður starfs- mannafélagsins þar um árabil og skipulagði m.a námsferðir og kynnisferðir erlendis. Iðnskólinn og samstarfsmenn nutu reynslu hans á þessu sviði sem öðrum. Rafn var mikill keppnismaður, það sanna afrek hans í jafn ólíkum keppnisgreinum og bridge og boxi. Fyrrverandi samstarfsfélag- ar hans hafa reynslu af hæfni hans í fyrrgreindu íþróttinni en til allr- ar hamingju ekki af þeirri seinni. Sá samhenti hópur syrgir og kveð- ur einstaklega vandaðan mann með þökkum fyrir samstarfið og vináttuna. Nú þegar kær vinur er kvaddur viljum við Ásta og fjölskylda okk- ar senda börnum Rafns og fjöl- skyldum þeirra innilegustu sam- úðarkveðjur. Blessuð veri minningin um drengskaparmanninn Rafn Sig- urðsson. Alfreð og Sigurður St. ✝ Guttormur Sig- urðsson fæddist á Sólheimum í Hall- ormsstaðarskógi 6. júlí 1948. Hann and- aðist í Brákarhlíð í Borgarnesi 11. des- ember 2022. Guttormur var fjórða barn foreldra sinna, hjónanna Sigurðar Guttorms- sonar frá Hallorms- stað og Arnþrúðar Gunnlaugs- dóttur frá Eiði á Langanesi. Systkini Guttorms eru Þórhild- ur, f. 1944, drengur, f. 1945, d. sama ár, Daníel, f. 1946, Gunn- laugur, f. 1950, og Elísabet, f. 1956. Guttormur kvongaðist þann 16. desember 1988 Guðríði Pét- ursdóttur frá Glæsibæ í Skaga- firði. Þau eignuðust soninn Sig- urð Pál, f. 8. apríl 1991, en fyrir átti Guðríður, með fyrri eig- inmanni sínum, Árna Gunnari Sigurðssyni, Gunnar Pétur Árnason, f. 10. nóvember 1969, Eyjólfsstöðum í Vallahreppi á Fljótsdalshéraði og landsprófi frá Alþýðuskólanum á Eiðum. Hann nam nokkra vetur við Menntaskólann á Akureyri, en eftir það lagði hann fyrir sig ým- is störf uns hann gerðist félagi í Ananda Marga-hreyfingunni. Þar starfaði hann sem sjálf- boðaliði í fullu starfi uns hann kvongaðist og gerðist skóg- arbóndi með meiru á jörð þeirra hjóna, Miklaholtsseli á Snæfells- nesi. Fyrir nokkrum árum greind- ist Guttormur með parkinson- veiki sem að lokum dró hann til dauða. Hann einbeitti sér í veik- indum sínum að hag fjölskyldu sinnar til framtíðar og eigin sál- arfriði og lauk jarðvist sinni með skýrum huga og friðsælum í faðmi sinna nánustu. Guttormur skrifaði minningar frá tveggja ára tímabili, sem markaði tíma- mót í lífi hans, í bókinni Á fleygi- ferði um eilífðina. Snotra 2007. Útförin hefur þegar farið fram í kyrrþey. og Önnu Sigríði Árnadóttur, f. 20. maí 1980. Unnusta Sigurðar Páls er Ragnhildur Þrast- ardóttir. Gunnar á með fyrrverandi eiginkonu sinni, Freydísi Björns- dóttur, börnin Tinnu, f. 13. apríl 1991, Bríeti, f. 15. október 2000, og Glóeyju, f. 4. ágúst 2003. Anna Sigríður er gift Daniel Malm- berg og eiga þau dótturina Ronju Dögg, f. 7. nóvember 2013. Guttormur eignaðist þann 14. maí 1971 soninn Arnar Þór með Sigríði Vigdísi Ólafsdóttur frá Seyðisfirði. Eiginkona Arnars Þórs er Karen Jenný Heið- arsdóttir. Börn þeirra eru Þór- hildur Gyða, f. 20. mars 1996, og Jakob Þór, f. 21. febrúar 2004. Sigríður Vigdís lést 2. janúar 2004. Guttormur lauk barnaskóla- prófi frá staðbundnum farskóla á Þú varst fimm ára og ég að verða þriggja. Vorum í berjamó, fjölskyldan, á bökkum Lagar- fljótsins fyrir neðan kletta á Sól- heimum. Mér fannst heiður að því að hafa fengið í hendur hálf- dós undan grænum baunum sem var talsvert stærra ílát en flati baukurinn undan Half and Half píputóbaki sem mér hafði verið úthlutað í byrjun þessarar berja- tíðar. Gekk þó illa jafnvel að botnfylla og vildi velta um koll, niðursuðudósin. En svo komst ég í gjöfula þúfu af stórum, svörtum berjum og fyllti til hálfs á auga- bragði og hróðugur sýndi þér. „En Gulli minn, þetta eru ekki ber. Þetta eru lambaspörð!“ Þrem árum síðar og flutt út á Hallormsstað, fjölskyldan. Beta föðursystir hafði gefið mér agn- arlítinn bangsa úr rauðu gúmmíi og misserum saman var þessi bangsi, ásamt gúmmíhestinum Stormi og tuskuhundinum Seppa, aðalpersónan í lífi mínu. En þér fannst kominn tími til að litli bróðir þinn gerðist liðtækur í þeim leikjum stráka og fram- kvæmdum sem hæfðu svo háum aldri. Tækifærið kom þegar ég missti bangsann í bæjarlækinn og hann var orðinn snjóhvítur þegar við fundum hann undir hol- um bakka vikum síðar. Þú stóðst fyrir virðulegri greftrun bangs- ans við rætur stærsta birkitrés- ins í garðinum, en við tóku daprir dagar og vikur í lífi mínu. Þá hug- kvæmdist þér að bangsinn hefði einungis lagst í dvala, eins og birnir gera, og við grófum hann upp aftur. Þetta reyndist rétt hjá þér, því bangsinn var aftur orð- inn rauður að lit og enn um sinn frestaðist innvígsla mín í heim al- vörustrákaleikja. Þessi upprisa bangsans hafði trúlega langvar- andi áhrif í hugarheimi okkar beggja, því að efnafræðilegar skýringar á litaskiptum hans höfðu tilhneigingu til að víkja fyr- ir áleitnum grunsemdum um að í óljósum huliðsheimum væri verið að glettast við okkur. Við urðum 10 og 12 ára og þú hafðir eignast myndavél, fágætt undratæki í lífi okkar í þá tíð. Þú varst hugkvæmur ljósmyndari og komst þér meira að segja upp að- stöðu til að framkalla filmurnar og stækka með linsum sem þú fékkst úr gamalli skyggnusýn- ingarvél sem átti að henda í Hús- mæðraskólanum. Einn daginn gafstu mér svo þessa myndavél, án skýringa og án skilyrða. Sennilega bara til að gleðja mig. Við urðum síðar á sama róli í héraðs- og menntaskóla, en þú hafðir tafist á námsbrautinni vegna heilahimnubólgu, sem þú með naumindum lifðir af. Eftir menntaskóla skildu leiðir um sinn. Ég taldi nú komið að mér að hafa vit fyrir mér án þín. En einn daginn komstu í heimsókn til okkar Rögnu í Frakklandi og sagðir okkur af því sem þú hafðir fundið í leit þinni. Eftir það urð- um við samstiga á ný. Það var mikið happ fyrir mig, sem hafði orðið 18 ára það viðburðaríka ár 1968. Þarna, 10 árum síðar, kynntir þú fyrir mér nýja og rót- tæka þjóðfélagssýn, sem í þetta sinn var ekki einfaldlega meiri efnishyggja en sjálfur kapítal- isminn. Ég er þér þakklátur fyrir það og fyrir hönd mannkynsins og alheimsins alls þakka ég þér, kæri bróðir minn, fyrir þitt ötula starf og baráttu til bjargar sið- menningunni á plánetunni Jörð og því sköpunarverki Guðs sem okkur er ætlað að vernda. Gunnlaugur Sigurðsson. Guttormur Sigurðsson Nú þegar ég sest niður og skrifa þessa grein er margt sem flýgur í gegnum hausinn, sorg auð- vitað, sektarkennd, eftirsjá og þannig orð en umfram allt þakk- læti og stolt. Ég er svo þakklátur fyrir að hafa kynnst þér, afa mín- um, já það fór ekkert á milli mála Kristján Ingi Helgason ✝ Kristján Ingi Helgason fæddist 14. maí 1948. Hann lést 27. nóvember 2022. Út- förin fór fram 13. desember 2022. enda vorum við ansi líkir og ég er svo stoltur af því að hafa fundið þig. Ég man ennþá þennan dag þegar ég var orðinn stálpaður, um tví- tugt, sat í sófanum og skyndilega kom hugsunin: já alveg rétt, ég á afa þarna úti einhvers staðar sem ég þekki ekki neitt. Ég ákvað að taka af skarið og finna út úr því hver þú værir og hvar þú værir. Það stóð ekki á svörunum þegar ég hafði sam- band: „Þú ert alltaf velkominn!“ Ég man líka hvað ég var stress- aður að hitta þig í fyrsta sinn eftir öll þessi ár, undirbjó mig þannig að ég væri að fara að kynna mig en annað kom á daginn. Þú vissir nákvæmlega hver ég var og mér fannst þú vita allt um mig og þannig var það alla tíð, stundum liðu mánuðir og stundum ár án þess að við hittumst en alltaf þeg- ar við hittumst þá vissir þú allt um mig og þegar ég skrifa þetta átta ég mig á því að þú fylgdist greini- lega alltaf með mér þótt við hitt- umst ekki reglulega. Ég er líka þakklátur fyrir að hafa tekið aftur af skarið á þessu ári. Ég fékk svo sterka tilfinningu um að ég ætti að heyra í þér í vor sem og ég gerði og þú bauðst mér heim í kaffi, þar útskýrðir þú fyrir mér að heilsan væri búin að vera til vandræða en hafðir fulla trú á að allt færi vel og að í raun væri nú ekkert að þér. Ég er líka þakklátur fyrir að hafa fylgt þessu heimboði eftir og verið í góðu sambandi allt til dagsins í dag, mér þótti afar vænt um öll símtölin, stundum tvö eða þrjú á dag, þar sem þú baðst mig að koma og aðstoða við hitt og þetta, þó aðallega við að stilla sjónvarp- ið, símann já eða bara koma þér heim af spítalanum þar sem þú vildir alls ekki vera enda ekkert að þér. Með þessum símtölum áttaði ég mig á því að ég er fjölskyldan þín og þér þótti vænt um mig al- veg eins og mér þótti vænt um þig. Síðustu vikur var alltaf erfitt að kveðja, stundum var ég ekki viss um hvort þetta væri í síðasta sinn þegar ég sat hjá þér tímunum saman en þú sagðir alltaf: „Sjáumst á morgun.“ Svo kom að því að þú svaraðir: „Komdu fljótt aftur.“ Og hingað er ég kominn og kveð þig þá í hinsta sinn. Drengurinn þinn, Skarphéðinn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.