Morgunblaðið - 21.12.2022, Síða 25

Morgunblaðið - 21.12.2022, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 2022 DÆGRADVÖL 25 FALLEGAR GJAFIR FYRIR KOKKINN Í ELDHÚSINU ÞÍNU Fastus ehf Síðumúla 16 108 Reykjavík Sími: 580 3900 fastus@fastus.is fastus.is Vísnahorn Blæs nú af ruddaskap rokið Ámánudaginn lumaði Ingólfur Ómar Ármannsson að mér eins og tveimur jólavísum þegar aðeins sex dagar voru til jóla: „Gleði bundin ást og yl unaðsfundir skarta. Vermir lund og hugans hyl helgistundin bjarta. Svo kom snjórinn og þá varð þessi til. Jólanótt. Hljótt um bólin breiðist ró byrgir njóla fjöllin. Sveipar hóla holt ogmó hrímhvít jólamjöllin.“ Bólu-Hjálmar kvað: Ofan gefur snjó á snjó snjóum vefur flóa tó. Tófa grefurmóamjó mjóan hefur skó á kló. Stefán Ólafsson í Vallanesi er á svipuðum nótum: Ofan drífur snjó á snjó, snjóar hylja flóa tó. Tófa krafsarmóamjó, mjóan hefur skó á kló. Guðmundur Arnfinnsson yrkir „Jólasveina faraldur (hringhend sléttubönd)“: Jólasveinar fjöllum frá ferðumbeina núna, fóla greinamargamá móða veina lúna. Lúna veinamóðamá marga greina fóla, núna beina ferðum frá fjöllum sveinar jóla. Jón Gissurarson segir á Boðn- armiði að meðan konan hamist við að hnoða deig í smákökur til jólanna sitji hann við tölvuna og velti fyrir sér vísukorni: Aðmér setur engan beyg eða nokkra krísu. Konan hnoðar kökudeig karlinn gerir vísu. Anton Helgi Jónsson yrkir: Það blæs nú af ruddaskap rokið svo reyndar ermér öllum lokið; hér skelf ég sem strá og skiljanlegt þá að skuli í mig geta fokið. Sigurður Breiðfjörð kvað þegar skuldar var krafið: Ég er snauður, enginn auður er í hendi minni, nærri dauður, drottins sauður, í djöfuls veröldinni. Sigurey Júlíusdóttir (1901-1983) kvað: Mikið er þínmenntun klár ogmiklar gáfur þínar. Þú veist alveg upp á hár ávirðingarmínar. „ÞAÐ VAR GAMLI DÚDDI, EN „SÉ DÚDDI MEÐ HATTINN“ ER HANN SULTUSLAKUR.“ „OKKUR LÍÐUR BÁÐUM MIKLU BETUR EFTIR AÐ LÆKNIRINN ÁVÍSAÐI LYFJUM TIL AÐ RÓA Í MÉR TAUGARNAR.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að fara snemma að sofa. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann „KÆRA SPYRÐU HUNDINN, KÖTTURINN MINN ER VONDUR VIÐ MIG. HVAÐ GET ÉG GERT?“ BÍDDU NÚ HÆGUR… ÉG ÞEKKI RITHÖNDINA ÞÍNA JÓN ÁRDAL! ÉG HEF ALDREI TAPAÐ ORUSTU! ÞVÍ ÉG VEIT HVENÆR Á AÐ HÖRFA! Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is þekking til í fjölskyldu minni um mikilvægi þess að halda jólahaldi og afmælum aðskildum. Fyrst það tókst vandræðalaust að fagna afmæli afa á jóladag var það fjarlægt að jólin væru eitthvert vandamál 21. desem- ber! Ég hef því aldrei glímt við hið algenga umkvörtunarefni að fá afmælisgjafir í jólapappír eða því um líkt.“ Fjölskylda Eiginmaður Arndísar er Haukur Þorgeirsson, f. 14.7. 1980, rannsóknarprófessor á Stofnun Árna Magnússonar í íslensk- um fræðum. Þau hafa búið í Safamýrinni undanfarin ár. „Ég kynntist manninum mínum þegar ég var á fyrsta misseri í framhaldsskóla, ég tæplega sext- án ára og hann átján. Við giftum okkur sumarið 2004 og það er mitt mikla lán að hafa rambað á lífsins besta förunaut á meðan ég var enn fákænn unglingur – og hafa haft vit á því að láta mér ekki þetta happ úr greipum ganga!“ Foreldrar Hauks eru Anna Guðrún Pétursdóttir, f. 16.1. 1955, sjúkraliði, búsett í Reykjavík, og Þorgeir Sigurðsson, f. 14.1. 1957, verkfræðingur og fræðimaður, búsettur í Reykjavík. Börn Arndísar og Hauks eru Freydís Hauksdóttir, f. 6.6. 2009 og Þórarinn Hauksson, f. 11.2. 2012. Systir Arndísar er Hildur Þórarinsdóttir, f. 7.8. 1985, lög- maður, búsett í Reykjavík. Foreldrar Arndísar eru Ásdís Guðmundsdóttir, f. 11.8. 1955, deildarstjóri á hugvísindasviði Háskóla Íslands, og Þórarinn Viðar Þórarinsson, f. 25.6. 1954, lögmaður. Þau gengu í hjónaband árið 1978 og hafa búið nær allan sinn búskap í vesturbæ Reykja- víkur. Arndís Þórarinsdóttir Stefanía Árnadóttir húsfreyja í Reykjavík Ragnar Erlingsson málarameistari í Reykjavík Hanna Ragnarsdóttir húsfreyja í Reykjavík Guðmundur Einarsson málarameistari í Reykjavík Ásdís Guðmundsdóttir deildarstjóri á Hugvísindasviði Háskóla Íslands, Reykjavík Guðbjörg Jónsdóttir húsfreyja í Reykjavík Einar Guðmann Guðmundsson verkamaður í Reykjavík Rósalind Jóhannsdóttir húsfreyja á Vaðbrekku og í Reykjavík Hallgrímur Jakob Friðriksson bóndi á Vaðbrekku í Hrafnkelsdal, N-Múl., og verkamaður í Reykjavík Klara Hallgrímsdóttir húsfreyja í Reykjavík Þórarinn Vigfússon verkamaður í Reykjavík Ragnhildur Jónsdóttir húsfreyja í Heiðarseli Vigfús Árnason bóndi í Heiðarseli á Síðu, V-Skaft. Ætt Arndísar Þórarinsdóttur Þórarinn Viðar Þórarinsson lögmaður í Reykjavík

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.