Morgunblaðið - 21.12.2022, Side 36
Í lausasölu 822 kr.
Áskrift 8.880 kr. Helgaráskrift 5.550 kr.
PDF á mbl.is 7.730 kr. iPad-áskrift 7.730 kr.
Sími 569 1100
Ritstjórn ritstjorn@mbl.is Auglýsingar augl@mbl.is
Áskrift askrift@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is
MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 355. DAGUR ÁRSINS 2022
MENNING
Hattagerðarmeistarar sýna verk
sín í Hönnunarsafni Íslands
Hattagerðarmeistararnir Anna Gulla og Harper hafa
undanfarna þrjá mánuði verið með opna vinnustofu í
Hönnunarsafni Íslands, á Garðatorgi í Garðabæ. Þau
sýna þar afraksturinn og vinna að nýjum höttum fram
á Þorláksmessu. Anna Gulla og Harper kynntust við
nám í Cutters-akademíinu í Gautaborg árið 2010. Þau
starfa nú bæði í Kölingared í Svíþjóð og í Reykjavík
og sérhæfa sig í að hanna og framleiða sérsaumaðan
fatnað og fylgihluti úr náttúrulegum efnum.
ÍÞRÓTTIR
Keflvíkingar í jólafríið á toppnum
Keflvíkingar eru á toppi úrvalsdeildar kvenna í körfu-
bolta þegar þrettán umferðir eru búnar en fjórtánda
umferðin verður leikin á milli jóla og nýárs. Birna Val-
gerður Benónýsdóttir er í stóru hlutverki hjá Keflavík
og segir að liðið ætli sér að vinna deildina í vetur og
Íslandsmeistaratitilinn í vor.» 26
Anna Sigríður Þráinsdóttir og
Elín Elísabet Einarsdóttir sendu
nýverið frá sér bókina Á sporbaug.
Nýyrði Jónasar Hallgrímssonar,
sem Sögur útgáfa gefur út. Sú
fyrrnefnda skrifar um orðin og sú
síðarnefnda
segir söguna í
myndum.
Elín Elísabet
segir að Anna
Sigríður hafi
lengi hugsað
um að taka
saman nýyrði
Jónasar og
hún hafi rætt
um það við framkvæmdastjóra
útgáfunnar. Þau hafi viljað fá
teikningar með og fengið sig með
á fund. „Þá vissu þau ekki að ég
hafði miklar tengingar við Jónas,
aðallega í gegnum ljóðin hans,“
segir hún. Vísar meðal annars til
þess að hún hafi fallið fyrir ljóðum
Jónasar sem barn og sé með húð-
flúr af Hraundranga í Öxnadal á
sér. „Ég gat því ekki sagt nei.“
Helga Gerður Magnúsdóttir sá
um hönnun og umbrot og Elín
Elísabet segir að fundir þeirra
fjögurra hafi verið mjög gefandi.
„Þetta voru hugarflugsfundir þar
sem við vorum öll uppveðruð yfir
orðunum, Jónasi og teikningunum
og hvernig verkið átti að líta út.
Samstarfið var mjög gjöfult.“
Beint í æð
Foreldrar Elínar Elísabetar
áttu stórt kvæðasafn og fyrsta
minning hennar um Jónas tengist
því. „Þegar ég var átta ára man ég
eftir því að hafa setið í sófanum
heima í Borgarnesi, lesið ljóð eftir
Jónas og þá rekist á „Vorvísu“. Ég
byrjaði að dunda mér við að gera
laglínu við það og raulaði lagið,
sem ég samdi.“ Móðir sín hafi líka
hengt upp ljóð eftir Jónas gegnt
salerninu og hún hafi því fengið
hann beint í æð. „Ég kynnti mér
þjóðskáldið vel á meðan ég sat á
klósettinu.“ Eitt sinn hafi „Ferða-
lok“ blasað þar við henni og hún
hafi fallið fyrir því. „Það er falleg-
asta ljóð allra tíma.“
Einu sinni var Elín Elísabet á
ferð með bróður sínum og munaði
minnstu að bíllinn færi út af neðan
við Hraundranga. „Við héldum að
þetta væri okkar hinsta stund,“
rifjar hún upp. Hraundrangi hafi
þá lengi verið í huga hennar í
gegnum „Ferðalok“ og nokkrum
árum síðar hafi þau flúrað drang-
ann hvort á annað.
Vinnulagið var þannig að Anna
Sigríður skrifaði um þau orð sem
helst höfðuðu til hennar og Elín
Elísabet teiknaði síðan myndir við
flest þeirra. „Ég var aðallega að
reyna að gera Jónas aðgengilegri
sem persónu í gegnum teikning-
arnar, því hann er gjarnan settur
upp á stall sem þjóðskáld og
fræðimaður, sem hann var, og þess
á milli dreginn niður í svaðið sem
fyllibytta,“ segir hún. „Við vildum
fara milliveginn og því fær hann
að vera manneskja eins og við
hin. Teikningar hjálpa til við að
skilja hann á þann hátt.“ Meðfram
sögunni um orðin hafi hún ákveðið
að segja ævisögu Jónasar í mynd-
um. „Þess vegna eru ýmis brot úr
ævisögu hans inn á milli orðanna.“
Anna Sigríður segir að fjöldi
nýyrða Jónasar hafi komið sér
á óvart og ekki síður hvað mörg
þeirra séu notuð í daglegu tali. Orð
eins og gráhærður, ókeypis og ný-
vaknaður komi upp í hugann. „Ég
er hrifnust af þessum hversdags-
legu orðum eins og til dæmis mör-
gæs, en ég finn nýtt uppáhaldsorð
í hvert sinn sem ég fletti bókinni.“
Jónas hafi líka verið fyndinn og
auðvelt hafi verið að sjá hann fyrir
sér í nútímasamfélagi. „Þegar ég
grúskaði í bréfum hans og ævisögu
fannst mér ég allt í einu þekkja
hann.“
lNýyrði þjóðskáldsins ímáli ogmyndum í nýrri bók
Elín með skáldinu
Jónasi á salerninu
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Ljósmynd/Árni Torfason
Höfundar Anna Sigríður Þráinsdóttir og Elín Elísabet Einarsdóttir.
Bringusund Jónas spyrnir iljum
skáreitis til hliðanna.
Moggaklúbburinn
...Meira fyrir áskrifendur
GJAFABRÉF18 HOLU HRINGUR FYRIR
FJÓRA Í MINIGARÐINUM
– fylgir öllum seldum 26. og 52. vikna
ÁSKRIFTARKÖSSUM ANDRÉSAR ANDAR
hjá EDDU ÚTGÁFU
Hægt er að kaupa
áskriftarkassana
með kaupaukanum:
edda.is/moggaklubbur
FRÁBÆR
JÓLAGJÖF FYRIR
ANDRÉSAR ANDAR
AÐDÁENDUR!