Morgunblaðið - 31.12.2022, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 31.12.2022, Qupperneq 8
FRÉTTIR Innlent8 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 2022 WWW.MINIPLAY.IS fallegar og vandaðar vörur fyrir börnin Vilja hefja undirbúning aðgerða lSjómenn án kjarasamnings í á fjórða árlSamþykktu harðorða ályktun Aðalfundur Sjómannadeildar Fram- sýnar á Húsavík hefur skorað á sam- tök sjómanna að hefja undirbúning að aðgerðum gegn útgerðarfyrirtækj- um, í samráði við aðildarfélögin, til að knýja á um lausn kjaradeilunnar milli sjómanna og útgerðarmanna. Sjómenn hafa nú verið samningslaus- ir í á fjórða ár. Fram kemur í ályktun félagsins sem send var fjölmiðlum í gær að miklar umræður hafi farið fram um kjara- málin á fundinum og eru útgerðar- menn sakaðir um virðingarleysi í garð sjómanna, sem hafi nú náð nýjum hæðum. „Krafa aðildarfélaga Sjómannasam- bands Íslands er skýr um að sjómenn fái inn í kjarasamninginn ákvæði um að útgerðin greiði 3,5% viðbótarfram- lag í lífeyrissjóði sjómanna með sama hætti og launafólk á almenna vinnu- markaðnum hefur þegar samið um við atvinnurekendur,“ segir í ályktun fundarins þar sem kröfur félagsins eru ítrekaðar. „Jafnframt fái sjómenn sömu hækk- anir á kauptryggingu sjómanna og aðra kaupliði og samið hefur verið um á almenna vinnumarkaðinum frá árinu 2019. Það er með öllu ólíðandi að kauptrygging sjómanna sé langt undir lágmarkslaunum á Íslandi en hún er í dag kr. 326.780 meðan lág- markslaun eru kr. 402.235 samkvæmt kjarasamningi SGS og SA,“ segir þar ennfremur. omfr@mbl.is Morgunblaðið/Þorgeir Á sjó Sjómenn krefjast þess að gengið verði frá kjarasamningum. Ruslatunnum fjölgað næsta vor lNýjar reglur taka gildi umáramót Á vormánuðum 2023 verður innleitt nýtt samræmt flokkunarkerfi á höfuðborgarsvæðinu þar sem fjórum úrgangsflokkum verður safnað við hvert heimili. Þrátt fyrir að lög um hringrásarhagkerfi taki gildi um áramót hefjast tunnuskiptin ekki fyrr en í vor og verða því engar breytingar við heimili núna um áramótin, að því er fram kemur í tilkynningu á vef Reykjavíkurborgar. Meginmarkmið er að fjölga tunnum hjá íbúum eins lítið og hægt er og í flestum tilfellum verður leitast við að koma tunnum fyrir í því rými sem er þegar til staðar við heimili, segir í tilkynningunni. Breytingar á tunnum íbúa, ef einhverjar verða, hefjast í fyrsta lagi í vor. Íbúar í Reykjavík þurfa ekki að gera neinar ráðstafanir þegar tunnuskiptin koma til fram- kvæmda. Með lögum um hringrásarhag- kerfi, sem taka gildi um áramótin, verður skylt að flokka heimilisúrgang í fjóra flokka við heimili: pappír, plastumbúðir, lífrænan úrgang (matarleifar) og blandaðan úrgang. „Þetta verður stórt framfaraskref í umhverfis- og loftslagsmálum en með- al annars munu öll heimili fá tunnu fyrir matarleifar.“ sisi@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Ruslinu safnaðNýja flokkunarkerfið verður tekið í notkun næsta vor. STAKSTEINAR Óvenjulegar kjarabætur Þekkt er að hér á landi er launamunur almennt með minnsta móti þegar ólík lönd eru borin saman. Hér er með öðrum orðum óvenjulega mikill jöfnuð- ur og flestir búa sem betur fer við allgóð kjör þegar borið er saman við önnur ríki, þó að vissulega megi finna dæmi um hið gagnstæða, því miður. Staðan er líka þannig hér á landi að óvenjulega háu hlut- falli af verðmætasköpun er varið í launakostnað. Hlutfallið er raunar orðið svo hátt að efasemd- ir hljóta að vakna um að það geti haldið til lengdar, en nefna má að þetta hlutfall hefur verið hæst hér á landi allra Norðurlandanna árum saman. Þá er áhugavert að á sama tíma og kaupmáttur rýrnar í samanburðarlöndum er gert ráð fyrir áframhaldandi og jafnvel umtalsverðri kaupmáttaraukn- ingu taxtalauna hér á landi í þeim skammtímasamningum sem flestir hafa nú undirritað. Þetta bætist við þá kaupmáttar- aukningu taxtalauna sem ver- ið hefur hér á landi, ekki aðeins á síðustu árum heldur nánast óslitið frá aldamótum þrátt fyrir dýfu eftir fall bankanna. Aðrir launamenn hafa einnig notið mikillar kaupmáttaraukningar, þó kaupmáttur lægstu launa hafi aukist munmeira en annarra. Tekst að viðhalda þessum árangri? Það fer mjög eftir því hvort raunsæi eða innantóm gífuryrði ráða för. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni www.mbl.is/mogginn/leidarar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.