Morgunblaðið - 31.12.2022, Síða 28
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 2022
UMRÆÐAN28
Sex áhrifaviðburðir ársins 2022
H
ér skulu nefnd sex markverð tíðindi á árinu
2022 sem móta það sem gerist árið 2023 og
til lengri framtíðar.
Útlönd
Stríðið í Úkraínu. Innrásin í Úkraínu 24. febrúar
2022 tekur á sig grimmdarlegri mynd eftir því sem
stríðið lengist. Markmið Vladimirs Pútins Rúss-
landsforseta var að afmá Úkraínu sem sjálfstætt
ríki. Að baki bjuggu keisaralegir stórveldisdraumar.
Ástandið er hættulegra í Evrópu en nokkru sinni frá
lokum annarrar heimsstyrjaldarinnar. Vegna óvissu
um áform Rússa sóttu Finnar og Svíar um aðild að
NATO. Í ársbyrjun var óhugsandi að þjóðirnar teldu
nauðsynlegt að velja þá leið. Úkraínumenn sýndu meiri
andstöðu en Pútin vænti og þeir hafa nú varanlega
skipað sér með nágrannaþjóðum Rússa sem verjast
ásókn þeirra hvað sem það kostar. Varanleg breyting
hefur orðið á hernaðarlegum áherslum í okkar heims-
hluta. Athygli beinist meira en áður að norðurslóðum
eftir því sem þrengir að Rússum á Eystrasalti og
Svartahafi. Til að halda Rússum í skefjum þarf öflugar,
varanlegar varnir á Norður-Atl-
antshafi.
Trump til hliðar. Óhugsandi
er að Donald Trump bjóði sig
fram til endurkjörs sem forseti
Bandaríkjanna. Niðurstöður
rannsóknar þingnefndar á
atburðunum 6. janúar 2021
þegar ráðist var á þinghúsið í
Washington við afgreiðslu kjörbréfs Joes Bidens sem
arftaka Trumps á forsetastóli eru áfellisdómur yfir
Trump sem bindur enda á stjórnmálaferil hans. Álög
Trumps á flokk repúblikana hverfa smátt og smátt.
Þeim frambjóðendum var ýtt til hliðar í kosningum í
nóvember 2022 sem börðust undir Trump-merkinu um
að sigrinum hefði verið stolið af honum með svindli í
kosningunum 2020.
Kína í kreppu. Xi Jinping tókst á árinu að rjúfa
óskráðu regluna frá falli einræðisherrans Maós að
enginn valdamaður Kommúnistaflokks Kína skyldi
sitja lengur við völd en í 10 ár. Í tíð Xis hefur Kína ein-
angrast á alþjóðavettvangi og harðstjórn hefur aukist
heima fyrir sem birtist undanfarin misseri skýrast í
ofsóknum gegn minnihlutahópum og innilokun þjóðar-
innar vegna COVID-faraldursins. Þegar þjóðinni var
nóg boðið vegna innilokunarinnar og lá við að upp úr
syði um landið allt kúventi Kínastjórn og situr nú uppi
með hundruð milljóna sýktra og lítt bólusettra einstak-
linga sem sliga heilbrigðiskerfið. Kína er í kreppu um
þessi áramót. Nágrannaþjóðir óttast kínversk áhrif
meira en áður, yfirgangsstefna Xis á heimavelli nær út
fyrir landsteinana. Draumur hans um alheims-ítök í
krafti fjárfestingarstefnunnar sem kennd var við belti
og braut er úr sögunni.
Heima
Kjaramál. Vilhjálmur Birgisson, verkalýðsforingi á
Akranesi og formaður Starfsgreinasambandsins, braut
ísinn í kjaraviðræðum við Samtök atvinnulífsins (SA)
3. desember og síðan sigldu önnur stór félög í kjölfarið.
Markmiðið með samfloti fjölmennra félaga í Alþýðu-
sambandi Íslands (ASÍ) og SA í kjaraviðræðum náðist.
Ríkisstjórnin lagði sitt af mörkum. Samningarnir hlutu
afgerandi stuðning félagsmanna í atkvæðagreiðslum
um þá. Bylting var gerð í ASÍ. Drífa Snædal hrökklað-
ist úr forsetastólnum í ágúst, tveimur mánuðum fyrir
ASÍ-þing. Þar var þó ekki gengið til forsetakosninga.
Líklegasti frambjóðandinn, Ragnar Þór Ingólfsson, gaf
framboðið móðgaður frá sér vegna mótstöðu í umræð-
um á þinginu. Hann skrifaði undir kjarasamning 12.
desember ásamt Kristjáni Þórði Snæbjarnarsyni, for-
manni Rafiðnaðarsambands Íslands, starfandi ASÍ-for-
seta. Ragnar Þór treysti sér þó ekki til að mæla með
eigin samningi. Það gerði Kristján Þórður sem hefur
reynst farsæll ASÍ-forseti. Hann kemur líka beint að
samningaborðinu en er ekki upp-
hafinn skrifstofumaður eins og
forverar hans. Tilraunir þeirra til
að sanna gildi sitt með stóryrtum
yfirlýsingum auðvelduðu ekki
endilega gerð samninga. Sólveig
Anna Jónsdóttir skipar nú hlut-
verk upphafna hrópandans með
hóp einkennisklæddra samninga-
manna að baki sér – til hvers? Lítilsvirðing hennar í
garð brottrekinna starfsmanna Eflingar gagnast ekki
félagsmönnum Eflingar.
Útlendingamál. Alls voru 64.735 erlendir ríkis-
borgarar skráðir með búsetu hér 1. desember 2022,
eru þeir nú 16,72% íbúa landsins. Þeim fjölgaði um
9.758 frá 1. desember 2021, eða um 17,7%. Á sama
tímabili fjölgaði íslenskum ríkisborgurum um 1.564 eða
0,5%. Fyrsta desember 2022 voru alls 2.300 úkraínskir
ríkisborgarar skráðir til heimilis á Íslandi. Nú er 1.251
einstaklingur með venesúelskt ríkisfang búsettur hér.
Þá fjölgaði íbúum frá Palestínu töluvert, það er um
156 einstaklinga eða um 96,3%. Tölurnar sýna mikla
breytingu á íslensku samfélagi. Umræður um þróunina
verða fljótt tilfinningaþrungnar vegna þess að tals-
menn engra landamæra vilja ræða málstað sinn með
skírskotun til einstaklinga í stað þess að tekið sé mið af
dapurlegri reynslu nágrannaþjóða og þeirri staðreynd
að hér eru hömlur við landamæri mun veikari en hjá
þeim. Landamæravörslu hefur því miður ekki verið
breytt hér í ljósi þess sem gerst hefur. Í stað þess að
krefjast harðari vörslu er aðild að Schengen-samstarf-
inu ranglega kennt um skort á varðstöðunni. Þá er
látið eftirlits- og átölulaust að varið skuli á annan tug
milljarða króna m.a. til að laða hælisleitendur hingað.
Samfylkingin. Að lokum skal talið til markverðra
tíðinda á árinu 2022 að skipt var um forystu í Sam-
fylkingunni. Nýr formaður sagði skilið við stefnuna
sem fylgt hefur verið frá Jóhönnu-tímanum um nýja
stjórnarskrá og ESB-aðild.
Þakka samfylgdina 2022. Gleðilegt nýtt ár!
Hér skulu nefnd sexmarkverð
tíðindi á árinu 2022 semmóta
það semgerist árið 2023 og til
lengri framtíðar.
Pistill
Björn Bjarnason
bjorn@bjorn.is
•Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar
Hannes H. Gissurarson
hannesgi@hi.is
Nullum crimen sine lege
Eitt merkasta og mikilvæg-
asta lögmál réttarríkisins
er Nullum crimen sine lege, enga
sök án laga. Það merkir, að ekki
megi sakfella menn fyrir hátt-
semi, sem ekki var ólögleg og
refsiverð, þegar hún fór fram.
En eins og ég bendi á í nýrri bók
minni um landsdómsmálið braut
rannsóknarnefnd Alþingis á
bankahruninu 2008 þetta lögmál,
þegar hún í skýrslu sinni vorið
2010 sakaði þrjá ráðherra og fjóra
embættismenn um vanrækslu.
Eins og hún tók sjálf fram átti hún
við vanrækslu í skilningi laganna
um nefndina sjálfa, sem sett höfðu
verið eftir bankahrunið. Nefndin
beitti með öðrum orðum lögum
afturvirkt, og sætir furðu, hversu
lítill gaumur hefur verið gefinn að
þessu.
Ástæðan til þess, að rann-
sóknarnefndin beitti lögum
afturvirkt, var hins vegar augljós.
Hún átti að róa almenning með
því að finna sökudólga. En þrátt
fyrir sextán mánaða starfstíma,
rífleg fjárráð, fjölda starfsfólks
og ótakmarkaðan aðgang að
skjölum og vitnisburðum fann
rannsóknarnefndin ekki eitt
einasta dæmi um augljóst lögbrot
ráðamanna í bankahruninu.
Þess vegna vísaði nefndin í lögin
um sjálfa sig, þegar hún sakaði
ráðamenn um vanrækslu, því að í
athugasemdum við frumvarpið um
þau sagði, að með vanrækslu væri
ekki aðeins átt við hefðbundinn
skilning hugtaksins í íslenskum
lögum, heldur líka við það, ef upp-
lýsingar væru metnar rangt eða
vanrækt væri að afla nauðsynlegra
upplýsinga.
Athugasemdir í lagafrumvörpum
geta þó ekki vikið til hliðar settum
lögum og föstum venjum. Óeðlilegt
var að víkka út vanræksluhugtakið
og nota það afturvirkt til að saka
fólk um vanrækslu, af því að það
hefði ekki metið fyrirliggjandi
upplýsingar rétt og ekki aflað frek-
ari upplýsinga. En auðvitað þótti
mikilvægara að róa almenning en
fylgja lögmálum réttarríkisins.
Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð
Átti dagur jóla
M
orgundagurinn, nýársdagur, er merkisdagur og helgidagur í
senn, sem fyrsti dagur janúar og nýs árs, í okkar tímatali, og
jafnframt sem hinn áttundi dagur jóla. Í íslensku alfræðihand-
riti um rímfræði (tímatal) segir að janúar komi átta dag jóla. Í
fornritum er einnig nefndur átti aftann jóla og átta kveld jóla. Í Ólafs sögu
helga segir frá því er „Ólafur konungur hafði jólaboð mikið og var þá komið
til hans stórmenni margt“; sótti Ólafur í hirslur sínar „dýrgripi til þess að
gefa vingjafar hið átta kveld jóla“.
Form raðtölunnar varð seinna áttundi (einnig þekktist áttandi), í sam-
ræmi við sjöundi, níundi.
Raðtalan átti beygðist líkt og fimmti, sjötti; þ.e. átti dagur, um átta dag
o.s.frv. Í Gísla sögu Súrssonar er lýst aðför Eyjólfs og förunauta hans og
„lætur Gísli þar líf sitt með mikilli hreysti og drengskap“ en þeir Eyjólfs-
menn „voru allir sárir er eftir lifðu og mjög þreyttir“. „Fara þeir Eyjólfur nú
heim í Otradal og andast hina sömu nótt hinn sjöundi maður af sárum en
hinn átti maður liggur í sárum tólf mánuði og bíður þá bana.“
Töluorðið átta í norrænu má rekja til indóevrópsku og samsvarar það,
auk frænkna sinna í öðrum germönskum málum (sbr. ensku, þýsku, got-
nesku: eight, acht,
ahtau), m.a. astau í
sanskrít, ocht í írsku,
aštuoni í litáísku,
osiem í pólsku o.fl.
Ekki skal gleyma
latínunni, octo, sem
færði okkur októ- í
mánaðarheitinu. Taldist október áttundi (átti) mánuður ársins þar sem
mars var um skeið hinn fyrsti að tímatali Rómverja. Nóvember var hinn
níundi og í dag, gamlársdag, kveðjum við desember, hinn tíunda; heiti hans
er sem sé dregið af latneska töluorðinu decem (tíu).
Ásgeir Bl. Magnússon segir í Íslenskri orðsifjabók (sjá málið.is) frá þeirri
getgátu um uppruna töluorðsins átta að myndir þess í gotnesku og sanskrít
gætu bent til tvítöluendingar og því hafi verið giskað á „að það ætti í önd-
verðu við framrétta fingur beggja handa að þumalfingrum undanskildum“.
Þessi jólin ber aðfangadag, jóladag, gamlársdag og nýársdag upp á venju-
legar helgar, og frídagar almennings fyrir vikið færri en ella að þessu sinni.
Í kaþólskri tíð var mismikil helgi um jól þar sem jóladagur, átti dagur jóla
(nýársdagur) og þrettándinn voru í sérflokki, en annar, þriðji og fjórði í jól-
um höfðu stöðu drottinsdags (sunnudags). Í Kristinna laga þætti Grágásar
segir: „Jólahelgi eigum vér að halda á landi hér. Það eru dagar þrettán. Þar
skal halda jóladag hinn fyrsta og hinn átta (áttunda) og hinn þrettánda sem
páskadag hinn fyrsta; og annan dag jóla og hinn þriðja og hinn fjórða, þá
skal halda sem drottinsdag að öllu annars nema að því þá er rétt að moka
undan fé sínu.“ Í Sögu daganna segir Árni Björnsson frá því að við siða-
skipti hafi fjórði helgidagurinn verið tekinn af jólum, og þriðji helgidagurinn
árið 1770.
Tungutak
Ari Páll Kristinsson
ari.pall.kristinsson@arnastofnun.is
Morgunblaðið/RAX
NýársdagurHvað boðar nýárs blessuð sól?
ÁTT ÞÚ RÉTT Á
SLYSABÓTUM?
Veitum fría ráðgjöf í slysamálum
skadi.is
S. 568 1245 | fyrirspurnir@skadi.is | skadi.is