Morgunblaðið - 31.12.2022, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 2022
UMRÆÐAN 29
C
O
L
L
E
C
T
I
O
N
B R A N D S O N . I S
Gleðilegahátíð
BRANDSON ÓSKAR
ÞÉR OG Þ Í NUM
GLEÐ I L EGRA HÁT Í ÐAR
OG FARSÆLS
KOMAND I ÁRS
Ólafur
Hallgrímsson
Hinar ýmsuhliðar
frelsisins
Nýafstaðinn landsfund-
ur Sjálfstæðisflokksins
vill afnema einkaleyfi
Áfengis- og tóbaksversl-
unar ríkisins (ÁTVR)
á sölu áfengra drykkja
og gefa hana frjálsa og
samþykkti ályktun um
það efni.
Mál þetta hefur virst
vera ofarlega á baugi
hjá flokknum nú um
sinn, og hafa a.m.k. þrír ráðherrar
flokksins lýst yfir stuðningi við það.
Við Íslendingar höfum búið við rík-
iseinkasölu á áfengi mjög lengi, sem
reynst hefur farsælt fyrirkomulag og
meirihluti landsmanna verið sáttur
við, enda í samræmi við aðhaldssama
stefnu í áfengismálum og áherslur
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunar-
innar (WHO), semmargoft hefur
látið frá sér fara, að besta forvörnin
í áfengismálum sé að takmarka að-
gengi að áfengi, svo sem kostur er.
Nú vill landsfundur Sjálfstæð-
isflokksins og raunar ýmsir fleiri
breyta þessu og fara að selja áfengi í
matvörubúðum innan um brauð og
mjólk, þótt allar rannsóknir sýni, að
með auknu aðgengi að áfengi aukist
neysla þess, ekki síst meðal ungs
fólks, sem þá verður auðveldasta
bráðin.
Áfengisneysla er í dag eitt stærsta
heilbrigðisvandamál þjóðarinnar, það
mun öllummeð heilbrigða skynsemi
vera ljóst.
Auk alls þess margþætta böls,
sem hún hefur í för með sér fyrir
einstaklinga og samfélag, kostar
hún ríkið, sameiginlegan sjóð okkar
allra, verulegar fjárhæðir á ári hverju
vegna afleiðinga áfengisneyslu.
Nú vill landsfundur Sjálfstæðis-
flokksins hleypa einkageiranum í
áfengisgróðann, svo peningamenn
og „einkavinir“ geti makað krókinn.
Verða þá sölumenn áfengis reiðubún-
ir að taka á sig í vaxandi mæli þann
kostnað, sem af áfengisneyslu hlýst,
eða á ríkissjóður að standa undir
kostnaðinum, en einkageirinn að
hirða gróðann?
Er þetta markmið fjármálaráð-
herra Sjálfstæðisflokks-
ins? Vill flokkurinn auka
áfengisneyslu og gefa
skít í lýðheilsusjónar-
mið?
Það er auðvitað
spurningin, sem allt
snýst um og lands-
fundarfulltrúar hefðu
mátt svara, áður en þeir
greiddu atkvæði.
Mönnum varð tíðrætt
um frelsi á landsfund-
inum. Frelsið er gott
og bönn ekki endilega vinsæl, en
stundum nauðsynleg. En frelsi fylgir
líka ábyrgð. Frelsi og ábyrgð verða
að fylgjast að, annars getur frelsið
snúist upp í andstæðu sína, nefnilega
ófrelsi annarra. Það hlýtur að vera
skylda þeirra, sem taka þátt í stjórn-
málum, að sýna ábyrgð, huga að
velferð allra þegna þjóðfélagsins, líka
þeirra sem höllustum fæti standa, til
þess eru þeir kjörnir.
Þrátt fyrir aukið frelsi á mörg-
um sviðum þjóðlífsins nú í dag og
þjóðfélagsbreytingar, sem við erum
að upplifa, efast ég um, að þjóðin vilji
óábyrga stjórnmálamenn.
Sá, sem þessar línur ritar, átti þess
kost sem ungur maður að sitja lands-
fund Sjálfstæðisflokksins í Gamla bíói
veturinn 1959 og hlýða þar á tveggja
tíma setningarræðu Ólafs Thors,
formanns flokksins. Ólafur var sterk-
ur leiðtogi og litríkur persónuleiki,
en virkaði einnig sem góðviljaður
maður, sem þekkti inn á aðstæður
fólksins í landinu. Ég man ekki eftir
öðru en menn töluðu af nokkurri
ábyrgð á þessum fundi, og það var
líka talað um „stétt með stétt“.
Fyrir hvað stendur Sjálfstæðis-
flokkurinn í dag, þegar frjáls sala
áfengis er orðin eitt af höfuðstefnu-
málum hans?
Ólafur Hallgrímsson
Höfundur er pastor emeritus.
Frelsið er gott og
bönn ekki endilega
vinsæl, en stundum
nauðsynleg. En frelsi
fylgir líka ábyrgð.
Merkir Íslendingar
Hörður
Ágústsson
Hörður Ágústsson fæddist 4.
febrúar 1922 í Reykjavík og því
eru á þessu ári 100 ár liðin frá
fæðingu hans. Foreldrar hans
voru hjónin Ágúst Markússon,
f. 1891, d. 1965, og Guðrún Guð-
mundsdóttir, f. 1893, d. 1947.
Hörður kenndi við Mynd-
listaskólann í Reykjavík 1953-
59, við Myndlista- og handíða-
skóla Íslands 1962-89 og var
þar skólastjóri 1968-75. Hann
var einn af helstu fulltrúum
abstraktmálverksins og hélt
fjölda myndlistarsýninga.
Hörður var einn af stofn-
endum og ritstjórum tímarits-
ins Birtings 1955-68. Hann
var einn af frumkvöðlum
húsafriðunar hér á landi,
átti m.a. þátt í stofnun
Húsafriðunarnefndar árið
1970 og sat í henni til ársins
1995. Formaður Hins íslenska
fornleifafélags var hann
1982-2001. Hörður stundaði
rannsóknir á sögu íslenskrar
húsagerðar og íslenskum
myndlistararfi og ritaði fjölda
greina og bóka um þau efni.
Hann hlaut Íslensku bók-
menntaverðlaunin fyrir tvö
verka sinna, Skálholt. Kirkjur,
1990 og Íslenska byggingararf-
leifð I, 1998.
Eiginkona Harðar var Sig-
ríður Magnúsdóttir, 1924, d.
2020. Börn þeirra eru þrjú.
Hörður lést 10.9. 2005.
J
ólaskákdæmin í ár mega
sennilega teljast í þyngri
kantinum en lausnir margra
þeirra voru óvæntar svo
sem vera ber þegar skákdæmi
eru annars vegar. Þetta á t.d. við í
dæmum nr. 2, 3 og 4. En hér birtast
lausnirnar:
1. Höfundur ókunnur
Hvítur leikur og mátar í 2. leik
1. Da8
A: 1. ... hrókur eftir 6-reitaröð, 2.
Rc5 mát. B: 1. ... hrókur eftir c- línu
2. Rd6 mát. C: 1. ... Dd4 2. He3 mát.
D: 1. ... Dd6 2. Rxd6 mát, E: 1. ...
Dd1, d2, d7, d8 2. Rc5 mát. F: 1. ...
Dc4. Db5 2. Rd6 mát G: 1. ... Da2,
b3, e6, f7, g8 2. Rc5 mát.
2. Leonid Kubbel 1923
Hvítur leikur og mátar í 2. leik
1. Df2
A: 1. ... Bxd3+ 2. Df5 mát. B: 1. ...
Kxa5 2. Dc5 mát. C: 1. ... Ba2, 1. Bc2
2. Df5 mát. D: 1. ... Rb6, Rc7 2. Dxb6
mát eða 2. Db6 mát.
3. V. Golgauzen 1903
Hvítur leikur og mátar í 3. leik
1. Hh1
A: ... 1. Kxd4 2. He1 Kc4 3. He4
mát B: ... 1. Kf6 2. Dh8+ Kg5 (eða 2.
Kf7, Ke7 3. Hh7 mát) 3. Dh4 mát. C:
... 1. Kf4 2. Kd5 Kg5 3. Dh4 mát.D:
... 1. Ke4 2. Dg3 Kxd4 3. Hh4 mát.
4. J. Cump 1916
Hvítur leikur og mátar í 3. leik
1. Df7
A: 1. ... Ke4 2. d6 Kd4 3. Df4 mát.
B: 1. ... Kc4 2. d6 Kb4 3. Db3 mát.
C: 1. ... Kc5 2. d6+ Kxd6 ( 2. Kb6 3.
Db7 mát, 2. Kb4 3. Db3 mát, 2. Kd4
3. Df4 mát 2. Kxc6 3. Dc7 mát ) 3.
Dd7 mát.
5. C. Chyrulik 1975
Hvítur leikur og mátar í 5. leik
1. Kb8 Kb1 (ekki 1. ... Bb1 2. Dh1
Ka2 3. Da8 mát). 2. Dc3 Ka1 3. Dd4
Bb1 4. Dg1 Ka2 5. Da7 mát.
6. V. Evreinov 1962
Hvítur leikur og vinnur
1. c6 h2 (eða 1. ... bxc6 2. Hxa6 h2
3. b4 Kg2 4. Ha2+ Kg3 5. Ha1 Kg2
6. Kf6 h1(D) 7. Hxh1 Kxh1 ke7 og
hvítur vinnur peðsendataflið). 2. b4
Kg1 3. Hxh2 Kxh2 4. b5 Kg3 5. Kf6
Kf4 6. Ke7 Ke5 7. bxa6 bxa6 8. Kd7
a5 9. Kxc7 a4 10. Kd7 a3 11. C7 a2
12. C8(D) a1(D) 13. Dh8+ og svarta
drottningin fellur.
Lausnir á
jólaskákdæmum
Skák
Helgi Ólafsson
helol@mbl.is
Nú finnur
þú það sem
þú leitar að
á FINNA.is