Morgunblaðið - 31.12.2022, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 31.12.2022, Qupperneq 30
30 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 2022 Miklar umræður hafa spunnist undan- farna daga um lokun Vinjar Bataseturs. Vin Batasetur hefur starfað undanfarin ár á Hverfisgötu og veitt skjól einum af okkar viðkvæmustu þjóð- félagshópum; fólki með geðrænar áskor- anir og fólki með geð- ræn vandamál. Á Vin ríkir kær- leiksríkur og heimilislegur andi, þar er boðið uppá hádegismat í hefð- bundnum stíl, og enn fremur geta gestir sinnt ýmissi iðju einsog tálga eða tefla en taflfélag Vinjar er löngu frægt orðið en það stofnuðu Róbert Lagermann og Hrafn Jök- ulsson. Á Vin eru reglulega haldin skákmót með viðhafnarhætti. Þess má geta að mannvinurinn Hrafn Jökulsson lagði á sig mikla vinnu fyrir nokkrum árum þegar átti að loka Vin, setti á laggirnar nýja stjórn og Vin hélt áfram sínu frábæra starfi. Í mótmæla- greinum undanfarnar vikur þakka skjólstæð- ingar Vin fyrir geð- heilsu sína. Þegar sverfur að kemur gildismatið í ljós! Það er rakin ósanngirni og mikil skömm sem dynur á borgaryfirvöldum ef Vin verður lokað. Það er einfaldlega vit- laus leikur. Vitlaus leikur Elísabet Jökulsdóttir Elísabet Jökulsdóttir » Í mótmælagreinum undanfarnar vikur þakka skjólstæðingar Vin fyrir geðheilsu sína. Höfundur er skáld. Í Prédikaranum standa skrifuð þessi heilögu orð: „Það sem hefur ver- ið, það mun verða, og það sem gjörst hefur, það mun gjörast, og ekkert er nýtt undir sólunni.“ Er ekki allt nýtt undir sólunni? Það mætti segja það, og snúa þannig við hinum einkennilegu ummælum hins forna Prédikara. Og væri það satt, þá væru hinar eðli- legu hugsanir á nýárinu þankar um framtíðina, samsettir annars vegar úr vangaveltum, hins vegar úr ímyndunum; hugsanir milli vonar og ótta; heilabrot, sem snúast um ýmis áform og góðar fyrirætlanir. Ef það væri hinn æðsti sannleikur, að allt flýtur, þá hlyti brýnasta spurning okkar um áramót að vera þessi: Hvað skyldi koma fljótandi til mín með nýju ári? Hvað skyldi ókomna árið færa mér nýtt? Eflaust væru þá slíkar bolla- leggingar áleitnastar. Þessi hugmynd um að allt fljóti, og allt sé í heiminum hverfult, hún er svo sjálfsögð og eðlileg, eins fyrir því þótt við höfum aldrei gert okkur þess fylli- lega grein; en við höf- um að minnsta kosti öll fengið að reyna það, hversu allt í umhverfi okkar er breytingum undirorpið, hversu hið nýja, bæði gott og illt, verður óaflátanlega upp á ten- ingnum í lífi okkar, og hversu við tökum um leið breytingum sjálf, hversu við verðum stöðugt að mæta einhverju nýju, og hvernig við sjálf verðum smám saman að öðrum manneskjum en við vorum áður. Það þarf enga heimspeki til þess að skilja þetta. Við sjáum það svo greinilega í fari okkar sjálfra og allra annarra, óðara en við tökum að gefa því gaum. Og af sjálfu leiðir, að við hljótum að ganga til móts við hið nýja og óþekkta full óvissu. En þegar við eigum Guð að göng- um við hughraust og róleg til móts við hið góða, sem við öll eigum örugglega í vændum á nýju ári. Við stefnum á vit þess með tilhlökkun. Við væntum þess ekki með því ang- urværa tómlæti, sem áður einblíndi á forgengileikann. Auðvitað er einn- ig það forgengilegt. Það, eins og allt annað hér í heimi, á sér upphaf og endi. En við aftur á móti, sem þekkjum hinn eilífa Guð, sjáum í forgengilegum gæðum gjöf Hans, og þess vegna hlökkum við til þess að hljóta hana. Og gjafarinn gleður okkur enn þá meira en gjöfin. Það er af því að hún kemur frá Honum, sem hún er góð og mun verða okkur til góðs. Og við eigum ekki að láta þar við sitja að njóta hennar, ekki gleyma okkur í hinum tímanlega fögnuði, sem hún færir, heldur minnast eilífðarinnar, því að öll tím- anleg gæði eru aðeins sem forsmekkur hennar. Þegar við eigum Guð að höldum við líka með ró á vit alls þess, sem við myndum hræðast, ef Hans nyti ekki við. Með ró, segi ég, en ekki með kæringarlausu tómlæti. Tóm- lætið er óhollt hugarástand. Þá höf- um við komist að þeirri niðurstöðu, að erfiðleikar lífsins séu til þess eins að yppta öxlum yfir, nokkuð, sem verði svona að vera og hljóti brátt að taka enda. Fólk, sem tekur mót- lætinu þannig, er ekki öfundsvert. Það fer á mis við blessun, á sama hátt og þeir, sem vanmeta gleðina, sem góður Guð vill veita þeim, þeg- ar Hann lætur hina forgengilegu hamingju falla þeim í skaut. Þegar við eigum Guð að, þá vitum við, að hann er að baki hvors tveggja, ham- ingjunnar og mótlætisins. Við meg- um ganga mót þessu hvoru tveggja, án þess að láta það koma okkur úr jafnvægi. Hvort tveggja þetta er að- eins mismunandi máti, sem hann viðhefur til þess að tala til okkar og bíða okkar. Hann er sannarlega óumbreytanlegur og ávallt sjálfum sér samkvæmur og því varir trú- festi Hans að eilífu. Það gerist ekk- ert nýtt undir sólunni! Á bak við hin margvíslegu gervi sársaukans, sem við þurfum að bera, er blessandi, læknandi föðurhönd Hans að verki. Hugsum því ávallt aðeins um hið óbreytanlega eðli Hans, sem öllu stjórnar og ræður, – Jesú Krists, sem er í gær og í dag hinn sami og um allan aldur. Gleðilegt nýár! Gunnar Björnsson » Þegar við eigum Guð að, þá vitum við, að hann er að baki hvors tveggja, hamingjunnar og mótlætisins. Gunnar Björnsson Höfundur er pastor emeritus. Gamlársdagur Í mínum bókum er samfélag byggt upp af fólki sem tekur sig sam- an og hjálpast að. Þú þekkir alla í blokkinni þinni eða götunni þinni með nafni og veist skil á öllum fjölskyldu- meðlimum þeirra sem búa í þínu nærumhverfi. Nágranninn er ekki bara sá sem lánar þér egg einu sinni á ári heldur er hann sá sem hjálpar þér þegar þú þarft á því að halda. Hann ýtir þér úr snjóskafli þegar þú festir þig á bílaplaninu, veit þegar erfiðleikar eru á heimilinu og bankar upp á með heimaeldaða máltíð einfaldlega af því að hann getur það. Hann þekkir börnin þín með nafni og vinkar þeim þegar þau hjóla fram hjá á góðviðrisdegi, hann færir þér rab- arbara úr garðinum og þú færir hon- um kartöflurnar sem þú hefur ræktað í þínum bakgarði. Nágrannarnir taka sig saman um jólin og ganga úr skugga um að enginn sé einn og ef einhver hefur ekki samastað er hon- um boðið að vera með. Lífið snýst um samveru, samkennd, vináttu, virðingu og kærleika í garð ná- grannans. Hvar og hvenær villtumst við af leið? Í nútímasamfélagi hefur tíðkast að nánast enginn veit skil á fólkinu í sínu nærumhverfi, allir húka í sínu boxi – of uppteknir til að taka eft- ir nokkru öðru en eigin vandamálum. Þú þekkir ekki nágranna þinn með nafni og ferð frekar út í búð að kaupa heilan eggjabakka þeg- ar þig vantar einungis eitt egg, mokar þig sjálfur úr snjóskaflinum þegar þú festir þig, ert einn og yfirgefinn þegar þú átt um sárt að binda því allir eru uppteknir á hamstrahjólinu sem lífið er orðið. Enginn þekkir börnin þín með nafni eða veit endilega úr hvaða húsi þau koma. Rabarbarinn hjá ná- grannanum eyðileggst því það var of mikið af honum til að nýta upp í tíma og hellingur af fólki er einn um jólin því enginn vogar sér að bjóða því að vera með. Köllum við það samfélag þegar lítill fjöldi af tæplega 347 þúsund manna þjóð tekur sig raunverulega saman? Við þurfum að breyta þessu. Yfir í „allir með öllum og enginn er skilinn eftir“. Við þurfum að hjálpast virki- lega að við að gera heiminn að betri stað til að vera á. Einmanaleiki er raunverulegt vandamál en ef sam- félagið okkar væri raunverulegt SAMfélag myndi enginn upplifa sig eins einmana og raun ber vitni. Í SAMfélagi eiga fleiri gleðileg jól, ekki bara fáir útvaldir. Allir hjálpast að við að lyfta andanum, koma saman og gera jólin gleðileg fyrir þá sem hafa minna á milli handanna og lífið tekur sannarlega fljótt breytingum til hins betra. Ekki bara fyrir þig heldur alla sem heild. Myndir þú annars halda í fimm björgunarhringi fyrir þig sjálfan þeg- ar þú þarft aðeins einn og láta þessa fjóra sem voru án björgunarhrings drukkna? Hvað er samfélag? Eva Karen Axelsdóttir » Lífið snýst um sam- veru, samkennd, vináttu, virðingu og kærleika í garð ná- grannans. Eva Karen Axelsdóttir Höfundur er heilari og ráðgjafi. evakaren86@gmail.com Um ökunám gilda ákveðin lög hér á landi og í námskrám er nán- ar kveðið á um það hvernig ökunám og ökupróf skuli fara fram. Námskrárnar eru komnar til ára sinna. Námskrá fyrir aukin ökuréttindi var gefin út árið 2005, námskrá fyrir almenn ökuréttindi árið 2010 og námskrá fyrir bifhjól kom út árið 2013. Heilt yfir upplifi ég ánægju með inntak ökunáms hjá ökunemum og forráðamönnum þeirra þar sem það á við og gegnum starf mitt sem öku- kennari og akstursþjálfari í Þýska- landi hef ég áttað mig á að ökunám á Íslandi stenst nokkuð vel samanburð við önnur Evrópulönd. Það er og vel að stjórnvöld hafa í samráði við ökukennara lagt sitt af mörkum í gegnum tíðina til þess að koma ökunámi á þann stað sem það er í dag. En nú stöndum við á kross- götum. Við stöndum m.a. frammi fyr- ir þeim spurningum hvaða inntak við viljum við sjá í nýjum námskrám og hvernig við ætlum að útfæra námsmat. Það er því miður óánægja með fyr- irkomulag ökuprófa hér á landi. Hún er ekki ný af nálinni en fer vaxandi. Það fyrirkomulag að fara í gegnum nám og síðan þreyta próf sem er nokkurs konar stóri- dómur má segja að sé barn síns tíma en eins og flestir vita þarf að þreyta fræðilegt, munnlegt og verk- legt ökupróf til að öðlast ökuréttindi. Ökunemar á öllum aldri hafa lýst óskemmtilegri upplifun sinni af fræðilegum ökuprófum. Spurningar séu flóknar og villandi og við lok prófs sé upplýst um niðurstöðu fyrir framan aðra próftaka. Mörgum þykir það niðurlægjandi aðferð. Ökunemar lýsa oft yfir furðu sinni yfir prófdæmingu í verklegum öku- prófum og eru meintar villur oft í ósamræmi við það sem lagt hefur verið upp með í ökunáminu. Það ligg- ur fyrir að mjög aðkallandi er að end- urskoða fyrirkomulag ökuprófa í öll- um flokkum. Ég legg til að ökupróf, inntak og framkvæmd, verði endurskoðuð og endurbætt svo um muni. Mikilvægt er að fagmennska verði höfð að leið- arljósi. Einnig kalla ég eftir að eftirlit verði aukið með starfsemi ökuskóla og framkvæmd ökuprófa. Eins þarf að uppfæra námskrár fyrir alla öku- réttindaflokka, og er brýnt að sú vinna hefjist sem allra fyrst, og sam- ræma námskrár og ökupróf betur en nú er. Það er mjög mikilvægt að stjórn- vald málaflokksins ljúki þessu verki sem allra fyrst með umferðaröryggi að leiðarljósi. Ökunám og ökupróf við áramót Guðni Sveinn Theodórsson Guðni Sveinn Theodórsson » Það er mjög mikil- vægt að stjórnvald málaflokksins ljúki þessu verki sem allra fyrst með umferðar- öryggi að leiðarljósi. Höfundur er ökukennari í meira- prófum og akstursþjálfari hjá Öku- landi á Íslandi og í Þýskalandi. gudni@okuland.is Nýlega heyrði ég þeirri skoðun flíkað að sjómenn hefðu nú alls ekki verið eins drykk- felldir og margir héldu fram. Ástæðan fyrir því hve valtir þeir stundum voru á fótum var nefnilega hin al- ræmda „sjóriða“, sem ekki rann af þeim fyrr en eftir tvo þrjá daga í landi. Agnar heitir skipstjóri strand- veiðibáts. Hann hefur fundið upp og þróað aðferð til að losna við sjóriðuna, og allt sem henni fylgir af neikvæðum athugasemdum, í eitt skipti fyrir öll. Þar sem strandveiði gefur lítið í aðra hönd hvort eð er, þá sigldi hann bara fleyi sínu í strand og er nú strandaður veiðimaður, en ekki strand- veiðimaður. Aðspurður segir kappinn að í stað veltings og gæftaleysis séu vaktirnar nú mest „þrifaleg innivinna“, en fley hans er smám saman að grafast í sandinn á strandstaðnum. Passa þurfi upp á tækjakost og loggfærslur, og ryksuga skútuna vikulega, en eng- an vélstjóra þurfi hann að hafa á launaskrá lengur. Sjálfur tekur Agnar dagvaktirnar, en félagar hans tveir skipta á milli sín baujuvöktunum og hundavöktunum eftir hendinni. Útgerðin gengur því vel eins og er, segir Agnar, hvað sem síðar kann að verða. Um þetta orti gamall hagyrðingur, Sigurjón úr Kör, eftirfarandi vísu: Sífellt volk við Suðurland, sjóriðuna magnar, en sínu fleyi sigldi í strand, sjómaðurinn Agnar. Sannast hér hið fornkveðna: „Sjó- mennskan er ekkert grín.“ Lítil sjómannasaga Skírnir Garðarsson Skírnir Garðarsson »… sínu fleyi sigldi í strand, sjómaðurinn Agnar. Höfundur er prestur og áhugamaður um sögu íslenskrar strandmenn- ingar. skigard@gmail.com Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.