Rit Mógilsár - 2022, Qupperneq 11

Rit Mógilsár - 2022, Qupperneq 11
Rit Mógilsár 11 Ungar furuplöntur í bakka. Ljósmynd: Rakel J. Jónsdóttir Efni og aðferðir Gögnum var safnað á föstum mæliflötum sem Skóg ræktin stofnaði til á árabilinu 1970 til 2020 (1. mynd). Við hverja mælingu voru öll tré á mæli- flötunum þver máls- og hæðar mæld. Tíðni endur- mæl inga á mæli flötunum var mis munandi eða frá þremur og upp í sextán ár. Tafla 1 sýnir gögnin sem not uð voru við gerð jafnanna. Vegna óreglulegrar tíðni endur mælinga þurfti að beita bestunar nálgun (optimization approach) til að herma eins árs þver- máls vöxt og sjálfgrisjun. Markmiðið var að finna fasta fyrir þvermáls- og sjálf grisjunar jöfn urnar sem lágmarka muninn á milli mældrar og út reikn- aðrar þver máls dreifingar trjáa við enda mælingar- tímabilsins. Auk þvermáls- og sjálfgrisjunarjafna var að löguð yfirhæðarjafna sem lýsir frjósemi við kom- andi skógar og jafna sem lýsir hæðarvexti stakra trjáa. Yfirhæð er notuð til að gróskuflokka land með tilliti til viðar framleiðslugetu, því hún er að mestu óháð þéttleika og einnig grisjunum nema þegar stærstu trén eru grisjuð. Yfirhæð er skilgreind sem meðalhæð 100 sverustu trjánna á hverjum hektara. Þetta er algengasta aðferðin við að áætla mögulega framleiðslugetu skógræktarlands fyrir jafnaldra og einnar tegundar skóga því mjög sterkt samband er milli hæðar og rúmmálsframleiðslu skóga (Skovs- gaard og Vanclay 2008). Gróskuflokkar geta einnig nýst við að bera saman viðarframleiðslu mis mun- andi trjátegunda við ákveðinn aldur. 1. mynd. Rauðir punktar sýna staðsetningu mæliflatanna sem notaðir voru við gerð vaxtarjafnanna. Til að sýna hvernig jöfnurnar framreikna vöxt sitka- grenis á Íslandi voru mæligögn af mælifleti úr Íslenskri skógarúttekt (ÍSÚ) notuð. Á mælifletinum stóðu aðeins 1.000 tré á hektara, sem telst varla fullnægjandi þéttleiki í timburframleiðslu en bætt var við alla þvermálsflokka sama hlutfalli til að ná 2.500 trjám/ha sem er samkvæmt ráðleggingum Skóg ræktar innar. Við framtíðarspána var notaður hermir (simulator) sem heitir Arborex og hannaður er af Timo Pukkala. Reikniritinn (algorithm) í herminum sem notaður var við bestunina (optimization) er kenndur við Hooke og Jeeves „direct search“ (Hooke og Jeeves 1961). Tafla 1. Upplýsingar um fjölda mælinga ásamt meðaltali og staðalfráviki fyrir mæligögnin sem notuð voru við gerð vaxtar­ jafnanna. Fjöldi Meðaltal Staðalfrávik Max. Min. Þvermál (sm) 7.276 9,4 7,2 36,4 0 Hæð (m) 8.432 5,92 4,62 19,0 0,28 Grunnflötur (m2/ha) 203 18,2 15,9 79,4 0 Aldur (ár) 203 36,6 15,7 63 6 Yfirhæð (m) 203 8,65 5,1 18,0 0,38 Vaxtartímabil 203 5,5 1,62 16 3 Trjáfjöldi/ha 203 2.222 1.414 5.026 458

x

Rit Mógilsár

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rit Mógilsár
https://timarit.is/publication/1563

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.