Rit Mógilsár - 2022, Side 21
Rit Mógilsár 21
Svæði 1 Svæði 2 Svæði 3
Tími sólarhrings klst.
0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23
16,0
14,0
12,0
10,0
8,0
6,0
4,0
2,0
0,0
H
it
as
ti
g
°
C
4. mynd. Meðalsólarhringshiti (°C) í 10 cm jarðvegsdýpt í þremur meðferðarsvæðum í Fljótshlíð, 1. júní–17. ágúst 2016. Svæði 1
er á berangri án skjóls, svæði 2 með skjólbelti á tvær hliðar og svæði 3 inni í miklu skjóli á alla kanta.
við svæði 1 þegar hann var mældur í 10 cm hæð, og
það sama gilti um samanburð milli svæða á meðal-
hámarkshita og meðaldaghita (kl. 8.00–20.00). Á
svæði 2 var meðalsólarhringshiti 0,8°C hærri en
á óskýldu svæði 1 eða 6,7% hærri og á svæði 3 var
munur inn 0,9°C, eða 7,6% hærri miðað við svæði 1.
Hlutfalls legur munur á daghita (kl. 8.00–20.00) milli
svæðanna var meiri en sólarhringshitans; svæði 2
var með 1,9°C eða 9,5% hærri meðaldaghita en svæði
1 og svæði 3 var með 2,85°C eða 10,9% hærri daghita
en svæði 1. Lægsta hitastigið á tímabilinu mældist
0,5°C á óskýldu svæði 1, en lágmarkshiti var 1,0°C og
1,5°C á svæðum 2 og 3.
Svæði 1 Svæði 2 Svæði 3 t-próf: 1-2 t-próf: 1-3
Meðalhiti sólarhrings 11,9 12,7 12,8 *** ***
Meðalhámarkshiti sólarhrings 18,1 19,8 21,0 *** ***
Meðaldaghiti (kl. 8–20) 14,7 16,1 16,3 *** ***
Hámark 25,5 27,5 30,0
Lágmark 0,5 1,0 1,5
Tafla 2. Hitamælingar í 10 cm hæð yfir jörðu á þremur misskýldum svæðum í Fljótshlíð á tímabilinu 1. júní til 17. ágúst 2016.
Svæði 1, 2 og 3 höfðu ekkert, nokkurt og mikið skjól.
Skýringar. t-test, p-gildi táknað með stjörnu þar sem; (óm): p>0,05 , * : p = 0,05-0,01 , ** : p = 0,01-0,001 , *** : p<0,001
Hitasíriti í jarðvegi í 10 cm dýpt: Meðaljarðvegshiti
sólar hringsins yfir sumarið 2016 var 12,5°C á óskýldu
svæði 1, en á skýldu svæðunum var meðalhiti 13,4°C á
svæði 2 og 13,6°C á svæði 3. Munurinn var þannig um
0,9°C eða 7% á milli svæða 1 og 2, en 1,1°C eða tæp 9%
á milli svæða 1 og 3, og var tölfræðilega mark tækur í
báðum tilfellum (t-próf: p<0,001).
Á 4. mynd má sjá samanburð dægursveiflu jarð vegs-
hita í 10 cm dýpt á meðferðarstöðunum þremur.
Munur inn var tiltölulega jafn allan sólar hringinn, eða
um 1°C munur á svæði 1 og 2 og rúmlega 1°C á svæði
1 og 3. Óskýlt svæði 1 var þannig með um 1°C lægri
meðalhita ofarlega í jarðvegi allan sólarhringinn en
skýldu svæðin.