Rit Mógilsár - 2022, Side 22
22 Rit Mógilsár
Vaxtargreining birkiplantna
Einföld vaxtargreining á úrtaksplöntum og aðhvarfs-
greining var notuð til að finna vaxtarhlutföll allra
plantna og fá þannig skýrari mynd af vexti og dreif-
ingu ljóstillífunarafurða milli plöntuhluta eftir mis-
munandi skjól áhrifum. Niðurstöður vaxtar grein ingar
eru birtar í töflu 3 og 5. mynd. Í vaxtar grein ing unni
er RMR (e. root mass ratio) hlutfall líf massa í rótum
af heildar lífmassa, SMR (e. steam mass ratio) er
hlutfall stofns af heildar lífmassa, BMR (e. branch
mass ratio) er hlutfall greina og blaðstilka af heildar-
lífmassa og LMR (e. leaf mass ratio) er hlutfall laufs
af heildar lífmassa. LA (e. leaf area) er laufatarmál í
cm2/plöntu, LAR (e. leaf area ratio) er laufatarvöxtur
af heildarlífmassa, og SLA (e. specific leaf area) er
hlutfall laufatar af laufþyngd.
Svæði 1 Svæði 2 Svæði 3
1,43
0,13
0,96
0,93
2,24
0,35
1,59
1,39
2,44
0,47
1,51
1,34
DW lauf
DW greinar
DW stofn
DW rót
5. mynd. Meðallífmassi (g) mismunandi plöntuhluta sýnd með mismunandi litum. Svæði 1 er á berangri án skjóls, svæði 2
með skjólbelti á tvær hliðar og svæði 3 í miklu skjóli á alla kanta.
Þegar borin var saman skipting heildarlífmassa í
mis mun andi plöntuhluta, það er rót, stofn, greinar
og lauf, eftir með ferða rsvæðum, kom í ljós að í
öllum plöntu hlut um var mark tækt minna þurrefni í
plöntum á berangri á svæði 1 en á skýldu svæð unum
2 og 3 (5. mynd). Ef litið er hins vegar á hlut fall þurr-
efnis plöntu hluta af heildar þurr efni varð myndin
önnur. Rótar vaxtar hlutfall RMR var hæst hjá plöntum
á berangri á svæði 1 og marktækt hærra en RMR á
skjólmeiri svæðum 2 og 3 (tafla 3; t-testp=0,01-0,001).
Hlutfallið snerist við þegar skoðað var hlutfall lauf-
vaxtar LMR og greinavaxtar BMR. Þar var hæsta gild-
ið á plöntum af mesta skjólsvæðinu, svæði 3, en
minnst á skjól lausu svæði 1. Þetta sýnir að plöntur án
skjóls settu hlutfalls lega meira í rótarvöxt en plönt-
urnar sem uxu á skýldu svæðunum og þar með varð
Breyta
Mælingar MARKTÆKNIPRÓF t-próf
Svæði 1 Svæði 2 Svæði 3 S1-S2 S1-S3 S2-S3
Þurrvigt alls (gr) 3,03 5,19 5,39 *** *** óm
Laufflatarmál LA (cm²) 170,1 309,1 380,1 *** *** **
RMR (gr rót/gr heild) 0,29 0,26 0,23 ** *** ***
SMR (gr stofn/gr heild) 0,27 0,28 0,25 *** ** ***
BMR (gr grein/gr heild) 0,03 0,04 0,06 ** *** **
LMR (gr lauf/gr heild) 0,38 0,39 0,44 óm *** ***
LAR (cm² lauf/gr heild) 54,6 58,6 72,9 * *** ***
Tafla 3. Vaxtargreining á birkiplöntum á 3 meðferðasvæðum í Fljótshlíð við lok vaxtatímabilsins 1. júní–17. ágúst 2016. Svæði
1, 2 og 3 höfðu ekkert, nokkurt og mikið skjól.
Skýringar. t-test; p-gildi táknað með (óm) eða stjörnu þar sem; (óm) : p>0,05 / * : p = 0,05-0,01 /** : p = 0,01-0,001 / *** : p<0,001