Rit Mógilsár - 2022, Blaðsíða 25

Rit Mógilsár - 2022, Blaðsíða 25
Rit Mógilsár 25 ljóstillífunargetu plantna (Chapin, Matson, & Vitou- sek, 2012). Marktækur munur var í þessari rannsókn á SLA milli allra þriggja meðferðarsvæðanna; þar sem SLA-gildi var lægst á berangri á svæði 1 (lægst ljós- tillífunar geta; mest álag), hærra á svæði 2, hálf skýlt, en hæst á svæði 3, mikið skjól. Marktæk aukning varð einnig á LAR (hlutfall laufatar af heildar lífmassa) á skjól svæðunum miðað við ber angur. Það var því ekki bara að hlutfall þeirrar orku sem notuð var til lauf vaxtar ykist í skjólinu (LMR), heldur varð hvert gramm af laufi að allt að 17% meira lauf atarmáli í mestu skjól meðferðinni á svæði 3. Skjóláhrifin voru því: 1) aukinn hiti, 2) meiri ljós tillífun vegna hlýn unar (ef ekki var skuggi), 3) enn meira notað til laufvaxtar og 4) hvert lauf varð stærra og nýtti því sólar orkuna enn betur, sem enn jók upp söfnuðu vaxtaráhrifin. Meiri vindhraði olli óhagstæðum breytingum á nær viðri, jarðvegshita og þ.a.l. hægara framboði næringar efna sem orsakar hægari ljóstillífun, minni vöxt laufblaða (lægra SLA) og breytingu til aukins rótar vaxtar sem allt leiddi til minni heildarlífmassa. Ef aukin útgufun á berangrinum leiddi til neikvæðra breytinga á vatnsbúskap, gæti það kallað fram svip uð stressviðbrögð, með hærra RMR til að auka getu til vatns upptöku (Chapin, Matson, & Vitousek, 2012). Það skal áréttað að þessar niður stöður gefa til kynna jákvæð áhrif sem vindminnkun í skjóli hefur á plöntu vöxt, en aðgreinir ekki nákvæm lega eðlis- eða lífeðlisfræðilegar orsakir mismunar á plöntu- vexti við misjafnt vindálag, þar sem áhrif vinds ins á plöntu vöxt eru að verulegu leyti gegnum marg- breyti leg áhrif hans á aðra nærviðrisþætti og víxl- verkanir þeirra, svo sem hita, raka, vatnsbúskap o.fl., auk beinna álagsáhrifa hans á plönturnar sjálfar. Prófuninni á slitflöggum í þessari rannsókn var ætlað að kanna hvaða mynd slitflaggamælingar gætu gefið af mældu vindálagi á mismunandi stöðum á sama tímabili. Slitflöggin virkuðu strax um sumarið til að magnsetja vindálag á bersvæðinu m.v. skýldu svæðin, þrátt fyrir veðurblíðu og tiltölulega lágan vind styrk sumarið 2016 (Veðurstofa Íslands, 2017). Telewsky (1995) rekur niðurstöður margra rannsókna sem sýnt hafa minnkaða heildarljóstillífun plantna af völdum vindálags, þar sem vindur orsakaði annars vegar minna ljósnám plantna vegna hreyfi nga lauf blaða og minna blaðflatarmáls vegna frumu- skemmda, rifnunar, o.fl. og hins vegar röskun á út- gufun og efna flutningi um loft augu. Grace (1988) nefnir einnig að mis miklar skemmdir, oft ill sjáan- legar, verði á yfir borði laufblaða við vind álag og geti valdið álagi á plöntur vegna skerts yfirborðs viðnáms út gufunar plantna. Á vinda sömum svæðum eins og Ísland er, getur gott „aðgengi“ að lausum jarðvegs- efnum aukið mjög slík áhrif vind skemmda á plöntu- vefi. Eldfjalla jarðvegurinn er oft laus í sér og rof gjarn. Almennt má því ætla að vindbornar jarðvegs agnir séu algengar á Íslandi og skaðleg áhrif þeirra á yfirborð plantna geti verið töluverð þegar vind hraði eykst. Heimildir Chapin, F. S., Matson, P. A., & Vitousek, P. M. (2012). Prin­ ciples of Terrestrial Ecosystem Ecology, Second Edition. New York: Springer. Davis, J., & Norman, J. (1988). Effects of Shelter on Plant Water Use. Í J. Brandle, D. Hintz, & J. Sturrock, Windbreak Technology (bls. 393-402). Amsterdam: Elsevier. Devlin, R. M., & Witham, F. H. (1983). Plant Physiology (Fourth Edition). Boston: Willard Grant Press. Ericsson, T., Rytter, L., & Vapaavuori, E. (1996). Physiology of Carbon Allocation in Trees. Biomass and Bioener­ gy, 11, 115-127. Gerður Guðmundsdóttir, & Bjarni D Sigurðsson. (2005). Photosynthetic temperature response of mountain birch (Betula pubescens Ehrh.) compared to two other broadleaved tree species in Iceland. Icelandic Agricultural Science, 18, 43-51. Grace, J. (1977). Plant response to wind. London: Academic Press Inc. LTD. Grace, J. (1988). Plant Response to Wind. Í J. Brandle, D. Hintz, & J. Sturrock, Windbreak Technology (bls. 71- 88). Amsterdam: Elsevier. Junttila, O., & Nilsen, J. (1993). Growth and development of northern forest trees as affected by temperature and light. Í J. Alden, J. Mastrantonio, & S. Ödum, For­ est Development in Cold Climates (bls. 43-57). New York: Plenum Press. McNaughton, K. (1988). Effects of Windbreaks on Turbu- lent Transport and Microclimate. Í J. Brandle, D. Hintz, & J. Sturrock, Windbreak Technology (bls. 17- 39). Amsterdam: Elsevier. R Core Team (25. nóvember 2016). R: A language and environment for statistical computing. R Foundation for Statistical Computing, Vienna, Austria. Sótt af R Foundation for Statistical Computing: http://www. R-project.org/. Rosenberg, N. J., Blad, B. L., & Verma, S. B. (1983). Microcli­ mate; The Biological Environment, 2nd Edition. New York: John Wiley & Sons Inc. Telewsky, F. (1995). Wind-induced physiological and developmental responses in trees. Í M. Coutts, & J. Grace, Wind and Trees (bls. 237-263). Cambridge: Cambridge University Press.

x

Rit Mógilsár

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rit Mógilsár
https://timarit.is/publication/1563

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.