Rit Mógilsár - 2022, Síða 28
28 Rit Mógilsár
Líffjölbreytni æðplantna í Tilraunaskóginum í Gunnarsholti:
Áhrif skógræktar, grisjunar og áburðargjafar
TreProX – aukin viðargæði
í skógrækt og úrvinnslu skógarafurða
Bjarni Diðrik Sigurðsson, Eyrún Gyða Gunnlaugsdóttir, Jón Auðunn Bogason,
Páll Sigurðsson og Esther M. Kapinga
bjarni@lbhi.is
Guðríður Helgadóttir
gurryhelgadottir@gmail.com
Í þessari rannsókn var skoðuð líffjölbreytni plantna
í skógarumhirðutilrauninni í Tilraunaskóginum í
Gunn ars holti á Rangárvöllum. Þessi skógur er dæmi
um eina áköf ustu eða „intensífustu“ skógrækt sem
hér er stunduð og ætti því að sýna meiri svörun í
ýmsum umhverfis mælingum en ræktaðir skógar
almennt.
Ekki reyndist vera marktækur munur á Shannon-
Wiener fjölbreytnistuðli botngróðurs, tegundaauðgi
á hverjum smáreit né tegundaauðgi á stærri tilrauna-
reitum á milli skóglausa graslendisins sem hefur
verið friðað frá 1990 og Tilraunaskógarins.
Áhrif nýskógræktarinnar voru meiri á grósku botn-
gróðursins en fjölbreytileika hans. Þar skipti skógar-
umhirðan hins vegar miklu máli, þar sem áhrifin af
snemmgrisjuninni árið 2004 á grósku voru enn mikil
19 sumrum síðar.
Óvæntustu niðurstöðurnar í þessari rannsókn voru
ann ars vegar að áburðargjöf jók heildarþekju botn-
gróðurs þó að skógurinn væri mun þéttari í áburðar-
reitunum og hins vegar að engin martæk áhrif urðu
á tegundaauðgi eða líffjölbreytni botn gróðurs í
áburðar meðferðunum.
TreProX er samvinnuverkefni Skógræktarinnar, Land-
búnaðarháskóla Íslands, Trétækniráðgjafar slf.,
Kaup manna hafnar háskóla og Linné-háskól ans í Sví-
þjóð. Verkefnið er styrkt af Erasmus+ áætlun Evrópu-
sambandsins og hlaut um 40 milljóna króna styrk til
þriggja ára (2019-2022).
Í verkefninu er fjallað um viðargæði, staðla til að
meta gæði viðar og aðferðir til að auka og viðhalda
viðar gæðum á öllum stigum skógræktar. Í tengslum
við verkefnið var sett saman teymi fólks sem vinnur
við úrvinnslu skógarafurða á Íslandi og taka fulltrúar
úr því teymi þátt í þremur námskeiðum, á Íslandi
haustið 2021, í Svíþjóð í maí 2022 og Danmörku í
september 2022.
Afurðir verkefnisins eru bókin Gæðafjalir - viðskipta-
flokkun á timbri, fræðsluefni í formi fyrirlestra og
myndbanda, gæðastaðall til flokkunar á alaskaösp
og endurskoðuð námskrá Grænni skóga 1-3.