Rit Mógilsár - 2022, Qupperneq 32

Rit Mógilsár - 2022, Qupperneq 32
32 Rit Mógilsár Áhrif áburðar á gróðurfar og jarðveg í sandjörð Blöndun trjátegunda í skógrækt Guðni Þorvaldsson, Hólmgeir Björnsson og Þorsteinn Guðmundsson gudni@lbhi.is Jón Hilmar Kristjánsson JonHilmar@hotmail.com Árið 1974 var lögð út stór tilraun á Geitasandi þar sem mis stórir skammtar af kúamykju voru plægðir niður í ógróinn sand jarðveg (25, 50, 100 og 150 tonn/ha). Síðan var tætt með tætara einu sinni. Til samanburðar voru tveir meðferðarliðir með tilbúnum áburði (60 og 120 kg N/ha í 17-17-17). Reitirnir vor 13 x 10 m að stærð. Vallar foxgrasi (Engmo) var sáð í tilraunina, 30 kg/ha. Árið eftir var hverjum stórreit skipt í þrjá minni reiti (split plot skipulag) sem fengu mismunandi skammta af tilbúnum áburði næstu 7 árin (100N-20P- 50K, 0N-20P-50K og 100N-0P-0K). Tilraunin var slegin einu sinni á sumri þessi sjö ár og uppskeran fjarlægð. Markmið tilraunarinnar var að mæla áburðargildi kúamykjunnar í samanburði við tilbúinn áburð. Ekkert var gert við tilraunina að þessum sjö árum loknum fyrr en árið 2015. Þá var tilraunin gróðurgreind aftur og jarðvegssýni tekin úr öllum reitum. Á þessum 40 árum höfðu orðið miklar breytingar á gróður fari reitanna og þróun í gróðurfari var mis- munandi eftir því hver upphaflega tilraunameðferðin hafði verið. Vallarfoxgrasið, sem upphaflega var sáð, var nánast alveg horfið. Grös voru mjög áber andi í stórreitum sem fengu mest af kúamykju en kræki- lyng í reitum sem fengu lítið af mykju og nituráburði. Meðaluppsöfnun á C í jarðvegi var 249 kg/ha á ári og á N 21 kg/ha á ári. Áhrif tegundablöndu á vöxt trjáa í skógi hafa verið rannsökuð mun meira á annars staðar á Norður- löndum en á Íslandi. Það er þó mikilvægt að skoða áhrif tegundablöndu við íslenskar aðstæður vegna þess að hér eru bæði jarðvegsskilyrði og veðurfar með öðru móti en gengur og gerist annars staðar og á Íslandi eru notaðar tegundablöndur sem sjaldnast eru ræktaðar í öðrum löndum. LT-verkefnið er fyrsta tilraunin hér á landi með trjá- tegunda blöndu í stórum samfelldum reitum (0,5 ha) í blokkum sem endurteknar voru við sömu jarðvegs skilyrði. Í Gunnarsholti á Rangárvöllum voru bornar saman tegundirnar birki (Betula pubescens), sitkagreni (Picea sitchensis), stafafura (Pinus contorta) og alaskaösp (Populus trichocarpa). Tegundirnar voru ýmist ræktaðar einar sér, í 50% eða 25% blöndu með sitkagreni. Eitt af meginmarkmiðum rannsóknarverkefnisins var að skoða hvort einhver munur væri á lifun, vexti, framleiðni og vaxtarlagi trjáa í tegundablönduðum reitum samanborið við einnar tegundar reiti. Fósturaðferðin (50% sitkagreni/50% alaskavíðir (Salix alaxensis)) hafði marktækt jákvæð áhrif á yfir hæðar- vöxt sitkagrenis. Einu marktæku blönduáhrifin í öðr- um meðferðum voru neikvæð hæðarvaxtaráhrif blöndu saman borið við einnar tegundar reiti, óháð trjá tegund. Það að engin jákvæð áhrif komu fram af blöndun tegunda 15 árum eftir gróðursetningu gæti breyst þegar lengra líður á vaxtarlotuna og vaxtarrýmið fyllist.

x

Rit Mógilsár

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rit Mógilsár
https://timarit.is/publication/1563

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.