Rit Mógilsár - 2022, Blaðsíða 36

Rit Mógilsár - 2022, Blaðsíða 36
36 Rit Mógilsár Umræður Lifun í þessari tilraun í Öræfum, nálægt upprunastað kvæmanna, er mun betri en gengur og gerist í skóg rækt almennt (t.d. Bergsveinn Þórsson, 2008; Valdimar Reynisson, 2008). Þó ber ekki að draga of sterkar ályktanir af því, þar sem vaxtarstaðurinn var valinn sérstaklega í sæmilegra skjólgóðri laut (2. mynd) og vel var vandað til gróðursetningarinnar. Það er áhugavert að Kvískerjabirkið skuli standa sig vel samanborið við hin þekktari kvæmi frá Bæjar- stað og Steinadal, en birki úr Kvískerjum hefur ekki verið notað neitt í tilraunum hingað til. Skógar- leifarnar á Kvískerjum einkennast af lágvöxnu og kræklóttu birki, en þar hefur skógurinn verið í mikilli beitarnýtingu allt fram á hin síðustu ár. Aðlögun þessara þriggja birkikvæma að vaxtar- aðstæð um fyrir miðju útbreiðslusvæðis þeirra á Hofs nesi í Öræfum virðist vera mjög svipuð, en lengri tíma þarf til að skera úr um hvort munur muni reyn ast á vaxtar lagi þeirra. Heimildir Barbara Stanzeit & Bjarni Diðrik Sigurðsson, 2012. Saman- burður á lifun og vexti bæjarstaðar-, kvískerja- og steinadalsbirkis í tveimur landshlutum. Fyrstu niðurstöður. Rit Mógilsár 26/2012: 14. Bergsveinn Þórsson, 2008. Lifun skógarplantna á starfs­ svæði Norðurlandsskóga. BS-ritgerð. Landbúnaðar- háskóli Íslands. 37 bls. Brynjar Skúlason & Brynja Hrafnkelsdóttir, 2022. Birki- kvæmi á Íslandi. Óútgefinn fyrirlestur. Aðgengi- legur á: https://www.skogur.is/static/files/ fagradstefna-2022/Glaerur/brynjar-skulason- birkikvaemi-a-islandi.pdf Erfðanefnd landbúnaðarins, 2009. Íslenskar erfðaauð lindir. Landsáætlun um verndun erfðaauðlinda í íslenskri náttúru og landbúnaði 2009­2013. Erfða nefnd landbúnaðarins. 45 bls. Sigurður Blöndal, 2002. Íslensku skógartrén 1. Birki (Betula pubescens Ehrh.). Skógræktarritið 2002(1): 5-22. Valdimar Reynisson, 2008. Úttekt á lifun skógarplantna á starfssvæði Héraðs­ og Austurlandsskóga. Úttekt gerð sumarið 2007. Héraðs- og Austurlandsskógar. 7 bls.

x

Rit Mógilsár

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rit Mógilsár
https://timarit.is/publication/1563

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.