Rit Mógilsár - 2022, Side 37

Rit Mógilsár - 2022, Side 37
Rit Mógilsár 37 Endurheimt birkivistkerfa – áskoranir, leiðir og ávinningur (BirkiVist) Ása L. Aradóttir1, Kristín Svavarsdóttir2, Þóra Ellen Þórhallsdóttir3, Anna Mariager Behrend1, Arnór Snorrason4, Björn Traustason4, Edda Sigurdís Oddsdóttir4, Guðbjörg Jóhannesdóttir5, Jóhann Þórsson2, Jónína Sigríður Þorláksdóttir1, Ólafur Arnalds1, Snæbjörn Pálsson3, Sólveig Sanchez1 og Þórunn Pétursdóttir2 1LANDBÚNAÐARHÁSKÓLI ÍSLANDS, 2LANDGRÆÐSLAN, 3HÁSKÓLI ÍSLANDS, 4SKÓGRÆKTIN, 5LISTAHÁSKÓLI ÍSLANDS asa@lbhi.is Ágrip Hnignun náttúrulegra vistkerfa samhliða tapi á líf- fræði legri fjölbreytni og loftslagsvá eru mestu áskor- anir jarðarbúa á þessari öld. Því hafa Sameinuðu þjóð irnar tileinkað áratuginn 2021-2030 endurheimt vist kerfa. Hnignuð og röskuð vistkerfi eru útbreidd á Íslandi og losun frá þeim stór þáttur í loftslags- bók haldi landsins. Birkiskógar eru lykilvistkerfi í ís- lenskri náttúru og veita margháttaða og verð mæta vistkerfis þjónustu. Núverandi útbreiðsla birki skóga er þó aðeins brot af því sem áður var. Víð tæk endur- heimt birki vistkerfa hefur margþætta samfélags- lega, menningarlega, efnahagslega og ekki síst umhverfis lega skírskotun, þar sem hún stuðlar að vernd líff ræðilegrar fjölbreytni á Íslandi, myndar frjó söm vistkerfi og er jafnframt leið til að binda varan lega umtalsvert magn kolefnis úr andrúmslofti inn í vistkerfi. BirkiVist er þverfræðilegt rannsókna- og þróunar- verkefni, styrkt af Markáætlun um samfélagslegar áskor anir og unnið af fjölbreyttum hópi sérfræðinga frá mörgum stofnunum. Verkefnið miðar að greiningu tækifæra og þróun skilvirkra leiða við endurheimt birki skóga á landsvísu. Í því eru rannsakaðir þættir sem tak marka sjálfgræðslu birkis og útbreiðslu birki vistkerfa, og þróuð verða líkön sem nýtast mark- vissri áætlanagerð og vistheimtaraðgerðum. Kann- að er hvernig samfélagslegir þættir hvetja eða letja endurheimt, auk þess sem metinn er ávinningur og afleiðingar endurheimtarinnar fyrir kolefnis- bindingu, vatnsbúskap, líffræðilega fjölbreytni, sjón ræn landslagsáhrif og fagurferðileg gildi, að ógleymdri þýðingu birkis í listum og menningu. Hvers vegna er þörf á stórtækri endurheimt birkivistkerfa? Velferð mannkyns er háð vistkerfum jarðar og flest af heims markmiðum Sameinuðu þjóðanna tengj ast ástandi vistkerfa beint eða óbeint (IPBES 2018, IPBES 2019, UN Environment 2019). Ör hnignun og eyð- ing vistkerfa, samfara tapi á líffræðilegri fjölbreytni og loftslagsvá, eru stærstu áskoranirnar sem þjóðir heims glíma við í dag (IPBES 2019, UNCCD 2022). Þær eru jafnframt meginviðfangsefni samn inga Sam- einuðu þjóðanna um líffræðilega fjöl breytni, lofts- lags breytingar og varnir gegn eyðimerkur myndun. Gríðarlegt álag á náttúruleg vistkerfi vegna athafna mannsins veldur því að aðgerðir til að vernda vistkerfi og draga úr hnignun þeirra duga ekki einar sér – það þarf að snúa þróuninni við. Sameinuðu þjóðirnar hafa því tileinkað áratuginn 2021-2030 endurheimt vistkerfa, þ.e. að efla útbreiðslu náttúrulegra vist- kerfa og stöðva eyðingu þeirra (UNEP/FAO 2020). Með þessu er brugðist sameiginlega við áskorunum vegna landhnignunar, loftslagsvár og taps á líffræði- legri fjölbreytni (UNCCD 2022) enda eru vernd og endur heimt náttúrulegra vistkerfa ásamt áherslu á sjálf bæra landnýtingu taldar vera þær aðgerðir sem best sameina verndun líffræðilegrar fjölbreytni og bindingu kolefnis í vistkerfum (Pörtner o.fl. 2021). Á fáum svæðum jarðar hefur orðið jafnalvarleg hnignun vistkerfa og á Íslandi (Arnalds 2015, Crofts 2011). Mikið af koltvíoxíði losnar út í andrúmsloftið í kjölfar jarðvegsrofs (Óskarsson o.fl. 2004) auk þess sem umtals verð losun verður frá rýru landi við niður- brot lífrænna efna í jarðvegi (Jón Guðmundsson 2016, Ólafur Arnalds og Jón Guðmundsson 2020). Að- gerðir til að minnka losun frá landi og auka bindingu kolefnis í jarðvegi og gróðri eru mikilvægur þáttur í áformum íslenskra stjórnvalda um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og ná markmiðum Parísarsamkomulagsins (UAR 2020). Birkiskógar eru lykilvistkerfi í íslenskri náttúru (Dan- fríður Skarphéðinsdóttir o.fl. 2007). Þeir þekja nú um 1.500 km2 (Arnór Snorrason o.fl. 2016), sem er aðeins lítið brot af áætlaðri útbreiðslu þeirra við landnám. Vernd og endurheimt birkiskóga stuðlar að varð- veislu líffræðilegrar fjölbreytni en er jafnframt mikil- væg leið til að binda kolefni. Íslensk stjórnvöld hafa á síðustu árum sett fram skýr-

x

Rit Mógilsár

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rit Mógilsár
https://timarit.is/publication/1563

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.