Rit Mógilsár - 2022, Blaðsíða 43
Rit Mógilsár 43
Lífmassaföll fyrir sitkagreni
,,Skógar rækta börn: Börn rækta skóga“
Lárus Heiðarsson og Arnór Snorrason
larus.heidarsson@skogur.is
Markmið þessarar rannsóknar var að uppfæra
lífmassaföll þar sem hægt er, með mælingum
á þvermáli og hæð, að áætla lífmassa trjánna
ofanjarðar. Jöfnur til að meta rúmmál og lífmassa
trjáa eru grunnur að mati á viðarmagni, lífmassa og
kolefni í skógum.
Markmið þessa lokaverkefnis er að ná yfirliti yfir
skógarfræðslu í grunnskólum Íslands og að fá innsýn
í sjónarmið skógargeirans um aðkomuna.
Undirmarkmið:
1. Að draga saman tölulegt yfirlit, þ.e. að gera
könnun meðal ákveðins úrtaks af grunnskólum
á nýtingu skóga í útikennslu á:
a) útikennslu, hvernig hún er upp byggð og
fram kvæmd hennar,
b) fjölda skólaskóga og fjölda notenda skóg-
anna. Hvernig er skógarfræðsla framkvæmd
og hvaða skógarfræðsla er í gangi í skól-
unum?
2. Að gera könnun meðal umsjónaraðila skóga á því
hversu mikil aðkoma og nýting grunnskólanna
er á skógunum.
Sendar eru sambærilegar spurningar á hvorn hópinn
um sig.
Einnig verða fengnar upplýsingar og rætt um kennslu
á Menntavísindasviði H.Í. um hvernig nám og kennsla
þar tengist því sem verið er að gera í grunnskólum
landsins í sambandi við úti- og skógarfræðslu.
Niðurstöður lokaverkefnisins fela í sér útkomu
spurninga kannana og þeirra upplýsinga sem koma
fram í þeim. Farið verður yfir stöðuna í dag og hvern-
ig framtíðin lítur út fyrir skógarfræðslu á Íslandi.
Hildur Margrét Einarsdóttir
NEMANDI Á LOKAÁRI Í SKÓGFRÆÐI VIÐ LANDBÚNAÐARHÁSKÓLA ÍSLANDS
nem.hildurme@lbhi.is