Víkurfréttir - 02.03.2022, Page 2
FINNDU OKKUR Á FACEBOOK
DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA
S U Ð U R N E S - R E Y K J A V Í K
845 0900
FERÐIR Á DAG
ALLTAF PLÁSS
Í BÍLNUM
HREINSUM
RIMLAGARDÍNUR OG
MYRKVUNARGARDÍNUR
NÁNARI UPPLÝSINGAR Á ALLTHREINT.IS
Margrét Ólöf Sanders varð efst
í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í
Reykjanesbæ en prófkjör var haldið
síðasta laugardag. Anna S. Jóhann-
esdóttir, bæjarfulltrúi endaði í 7.
sæti og hefur ákveðið að taka ekki
sæti á lista flokksins fyrir kosning-
arnar í vor.
Guðbergur Reynisson varð annar
og Helga Jóhanna Oddsdóttir þriðja
en ellefu manns tóku þátt í próf-
kjörinu, þar af voru níu þeirra ný-
liðar.
Samtals voru greidd 1352 atkvæði
eða 40,6% kjörsókn. Auðir og ógildir
seðlar voru 40.
Akvæði féllu þannig:
1. sæti: Margrét Ólöf A Sanders með
1067 atkvæði í 1. sæti
2 .sæti: Guðbergur Reynisson með
813 atkvæði í 1.-2. sæti
3. sæti: Helga Jóhanna Oddsdóttir
með 497 atkvæði í 1.-3.sæti
4. sæti: Alexander Ragnarsson með
468 atkvæði í 1.-4.sæti
5. sæti: Birgitta Rún Birgisdóttir með
655 atkvæði í 1.-5. sæti
6. sæti: Gígja Sigríður Guðjónsdóttir
með 678 atkvæði í 1.-6.sæti.
Í næstu sætum voru Anna Sig-
ríður Jóhannesdóttir, Eyjólfur
Gíslason, Eiður Ævarsson, Guðni
Ívar Guðmundsson og Steinþór Jón
Gunnarsson.
Finnum stemmningu
„Þetta var heiðarleg kosningabarátta
og prófkjörið gekk vel. Við erum
frábær hópur og hlökkum til kosn-
inga í vor.
Við verðum
að komast í
meirihluta og
við finnum
stemmningu,
fólk vill vera
með okkur.
Við boðum
breytingar og ég vona að bæjarbúar
séu með okkur í því. Nú er það okkar
að halda áfram með stefnumótun
og sýna bæjarbúum hvað við getum
gert,“ sagði Margrét Sanders, oddviti
sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ að
loknu prófkjöri.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur tvö
síðustu kjörtímabil verið í minni-
hluta í Reykjanesbæ. Þrjú kjör-
tímabil þar á undan var flokkurinn
í hreinum meirihluta.
Ítreka að Fjölþætt heilsuefling 65+
fái áfram hljómgrunn í Reykjanesbæ
Öldungaráð Reykjanesbæjar telur
verkefnið „Fjölþætt heilsuefling
65+“ gríðarlega mikilvægt og hefur
áhyggjur af því að því ljúki þar sem
það hefur sýnt sig og sannað að
verkefnið er að skila miklum árangri
fyrir þátttakendur líkamlega, and-
lega og félagslega.
Dr. Janus Guðlaugsson og Anna
Sigríður Jóhannesdóttir frá Janusi
heilsueflingu mættu á fund ráðsins
og kynntu verkefnið sem er ætlað að
gera þátttakendur hæfari til að takast
á við breytingar sem fylgja hækkandi
aldri. Reykjanesbær hefur veitt fjár-
magni til verkefnisins síðustu ár en
nú hefur sú fjárveiting verið lækkuð
umtalsvert og lítur út fyrir að verk-
efninu muni ljúka í sveitarfélaginu í
september 2023.
„Ráðið ítrekar mikilvægi þess að
verkefnið fái áfram hljómgrunn og
að það verði gert ráð fyrir því í fjár-
hagsáætlun Reykjanesbæjar hjá nýrri
bæjarstjórn 2022-2026. Samkvæmt
Hagstofunni mun fjöldi Íslendinga 70
ára og eldri tvöfaldast næstu 30 árin
sem þýðir að 25% Íslendinga verða
á þeim aldri árið 2050. Mikilvægt er
að ríkið komi að þessari uppbyggingu
þar sem það er gríðarlegur fjárhags-
legur ávinningur fyrir heilbrigðis-
kerfið sem og einstaklinginn sjálfan.“
TJÓNASKOÐUN
BÍLAMÁLUN OG RÉTTINGAR
BÍLRÚÐUSKIPTI/VIÐGERÐIR
INNSTILLING Á ÖRYGGISBÚNAÐI
MYNDAVÉL OG FJARLÆGÐARRADAR
Bolafæti 3 – Njarðvík
Sími 421 4117
bilbot@simnet.is
„Boðum breytingar“
segir Margrét Sanders, oddviti Sjálfstæðisflokksins eftir
prófkjör. Bæjarfulltrúa hafnað í ellefu manna prófkjöri.
Hvatt til þátttöku í fyrir-
tækjakönnun landshlutanna
Fyrirtækjum og einstaklingum í
rekstri er þessa dagana boðið að
taka þátt í fyrirtækjakönnun lands-
hlutanna. Síðast var hún í boði
haustið 2019. Með könnuninni
hafa landshlutasamtök, Byggða-
stofnun og aðrir sem vinna að
byggðaþróun reynt að gera sér
grein fyrir stöðu atvinnulífsins vítt
og breitt um landið. Til skoðunar
hafa verið styrkleikar og veikleikar
þess sem og ógnanir og tækifæri.
„Upplýsingar úr könnununum hafa
ásamt íbúakönnunum verið ein
mikilvægasta stoð þessara aðila til
að móta áherslur í starfi sem snýr
að stefnumótun landshlutanna til
framtíðar, áherslur í styrkveitingum,
ýmissi ráðgjöf, upplýsingagjöf til
stjórnvalda og jafnvel uppspretta
akademískra rannsókna á sviði
atvinnumála hérlendis,“ segir í til-
kynningu frá SSV.
Hingað til hefur þátttaka verið
góð á landsvísu, eða á bilinu 1600-
2000 svör, en nú bregður svo við
að þátttakan er frekar dræm sem
er bagalegt fyrir verkefnið. „Að-
standendur könnunarinnar vilja
því hvetja alla sem eru í rekstri á
öllu landinu, fyrirtæki og einstakl-
inga, einyrkja og opinbera aðila að
taka þátt í birta raunhæfa mynd af
stöðu atvinnulífsins til almennings
og stjórnvalda.“
Fyrirtækjakönnun landshlutanna
er á vegum allra landshlutasamtaka,
atvinnuþróunarfélaga og Byggða-
stofnunar. Hún er ætluð öllum,
stórum og smáum rekstraraðilum/
fyrirtækjum sem eru í framleiðslu
eða bjóða þjónustu. Markmiðið er
að kanna hver staða þeirra er til að
geta stutt þau betur hvar sem þau
eru á landinu.
Barna- og ung-
mennahátíð í
Reykjanesbæ
28. apríl til 8. maí
BAUN, barna- og ungmennahátíð í
Reykjanesbæ er á dagskrá dagana
28. apríl til 8. maí nk. Á hátíðinni
eru börn, ungmenni og fjölskyldur
settar í forgang með fjölbreyttum
og skemmtilegum hætti. Markmið
hátíðarinnar eru m.a. þau að:
Að auka lífsgæði og vellíðan barna
og íbúa Reykjanesbæjar
Að skapa vettvang fyrir börn og
fjölskyldur til virkrar þátttöku í sam-
félaginu
Gerum þetta saman!
Allir þeir sem luma
á góðum hugmyndum
að verkefnum eða
ábendingum fyrir
BAUNina eru tvímæla-
laust hvattir til að setja sig í sam-
band á baun@reykjanesbaer.is eða
á Facebooksíðu Baunar fyrir 15.mars
og koma þeim á framfæri. Möguleiki
er á aðstoð við fjármögnun á góðum
hugmyndum/verkefnum sem falla
að markmiðum hátíðarinnar og
stefnu Reykjanesbæjar.
Hverjir geta tekið þátt?
Allir sem hafa aðkomu að mál-
efnum barna á einn eða annan
þátt eru hvattir til að flykkja sér
undir merki BAUNarinnar og vera
með. Stofnanir Reykjanesbæjar eru
þátttakendur, ýmsir menningar-,
íþrótta- og tómstundahópar einnig
og sömuleiðis eru fyrirtæki sem ætla
að hoppa á vagninn og beina sjónum
að börnum og fjölskyldum þeirra á
þessu tímabili.
Meðal verkefna sem eru í undir-
búningi er BAUNabréfið sem sló
rækilega í gegn hjá börnunum í
fyrra, Listahátíð barna í Duus Safna-
húsum, Skessuskokk, fjölskyldu-
dagur í Fjörheimum og ýmislegt
fleira sem á eftir að líta dagsins ljós.
Endilega sláist í hópinn.
Góð þátttaka var í
prófkjörinu en kosið
var á Réttinum í
Reykjanesbæ.
2 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM